Geir H. Haarde :
Herra forseti. Það er nú út af fyrir sig ekki mikið um þetta mál að segja til viðbótar því sem fram hefur komið við fyrra mál, en ég ákvað að láta það gott heita þótt utanrrh. svaraði ekki þeim spurningum sem hér voru upp teknar við hið fyrra mál vegna þess að ég vissi að þetta mál kæmi á dagskrá strax á eftir. Nú ber svo vel í veiði að þeir eru báðir hér í salnum, hæstv. utanrrh. og hv. 2. þm. Austurl., sem í gær bar fram ákveðnar spurningar til hæstv. ráðherra sem lúta að þeim málum báðum sem hér hafa verið á dagskrá, fjárfestingum erlendra aðila í atvinnurekstri og breytingum á lagaákvæðum þeim tengdum.
Ef ég skildi hv. þm. Hjörleif Guttormsson rétt var hann að segja það í gær að þetta frv., sem hér væri verið að gera að lögum, um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri, væri skammgóður vermir, ef svo má segja, vegna þess að það mundi hvort eð er verða úrelt og yrði að víkja fyrir þeim samningum sem gerðir yrðu um Evrópskt efnahagssvæði þar eð reglur Evrópubandalagsins mundu ganga fyrir og ryðja þessum nýbreyttu lögum úr vegi. ( HG: Á því svæði.) Auðvitað á því svæði og að því gefnu að við yrðum aðilar að því svæði.
Hv. 2. þm. Austurl. var með fleiri athugasemdir um þetta mál, sem er nú kannski eðlilegra að hann sjálfur geri grein fyrir, en mér þykir það óviðeigandi eins og ég sagði áðan, virðulegi forseti, að hæstv. utanrrh. bara sitji hér --- og hann var hér í salnum þegar þessar athugasemdir komu fram af hálfu hv. þm. --- og svari þeim ekki neitt.