Geir H. Haarde :
Herra forseti. Við hv. þm. Eggert Haukdal sem eigum sæti í félmn. höfum ekki séð ástæðu til þess að skila sérstöku nefndaráliti í þessu máli og munum láta afgreiðslu þess afskiptalausa hér í deildinni þó að það sé a.m.k. skoðun mín, eins og kom fram við 1. umr., að þetta frv. sé í flestum atriðum óþarft
vegna þess að hér er verið að fjalla um málefni sem hægast gætu rúmast innan samþykktar viðkomandi félaga og eru í raun og veru einkamál félagsins og félagsmanna þar. Þó má að vísu segja að einstök atriði er lúta að tengslum þessara félaga við Byggingarsjóð verkamanna gætu átt hér heima en þeim hefði auðvitað sem hægast mátt koma fyrir í þeim hluta laganna sem varðar þann sjóð.
Ég mun þess vegna ekki skipta mér af afgreiðslu þessa máls frekar en orðið er og láta það afskiptalaust þótt þetta frv. nái fram að ganga. Ég tel að þó svo þetta frv. sé óþarfi þá valdi það engum sérstökum skaða þó það nái hér fram að ganga. Vitanlega er það svo að þessi félög eru staðreynd og þar er hópur manna sem á nú hagsmuna að gæta vegna framkvæmda sem þessi félög hafa ráðist í og ástæðulaust að leggja stein í götu þeirra fyrst það er vilji viðkomandi að þessi ákvæði nái fram að ganga.
Raunar er mikilvægasta atriðið fyrir þennan félagsskap væntanlega það að geta fengið lán og þau ákvæði eru komin í lög fyrir löngu síðan, fyrir nokkrum árum. En það er samt ástæða til að vekja athygli á því að í gegnum þessi búseturéttarfélög geta menn komist í leiguhúsnæði sem greitt er af opinberu fé, annaðhvort 70% eða 90%, jafnvel þó að þeir séu í töluverðum álnum og eigi þó nokkrar eignir eða hafi jafnvel þó nokkrar tekjur. Það er auðvitað mitt meginsjónarmið varðandi þessi mál að það sé óeðlilegt að leggja fram af ríkisins hálfu stórlega niðurgreitt fjármagn til þess að byggja leiguíbúðir fyrir aðila sem geta bjargað sér sjálfir. Þeir eru að vísu í miklum minni hluta meðal félagsmanna í þessum félagsskap enn sem komið er, hvað sem síðar kann að verða. Aðalatriðið í þessum málum á auðvitað að vera það að menn geti valið sér búsetuform án þess að einu formi sé skipulega hyglt á kostnað annarra.
Í fyrra voru gerðar breytingar á lögum, þessum sömu lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins, að því er varðar hið félagslega íbúðakerfi. Þar voru gerðar breytingar á svokölluðum félagslegum eignaríbúðum, sem eitt sinn voru kallaðar verkamannabústaðaíbúðir, allt þar til að Alþfl. ákvað að það heiti væri ekki nógu gott þó svo að menn hrósi sér af því í Alþýðublaðinu í gær á 75 ára afmæli Alþfl. að það kerfi hafi verið fundið upp af Alþfl. En í þessum breytingum sem gerðar voru í fyrra var skipulega gengið á hlut hinna svokölluðu félagslegu eignaríbúða miðað við þær íbúðir sem hér eru til umræðu. Það var gert með ýmsum hætti, fólki var gert erfiðara fyrir en áður var í sambandi við þau mál. Til að mynda lítið atriði, sem hefur sjálfsagt farið fram hjá flestum, eins og það að fyrningarhlutfall í þessum íbúðum var hækkað úr 1%
upp í 1,5% á ári, sem hefur þau áhrif að eignarmyndun þeirra sem þarna eru að reyna að eignast húsnæði verður miklu hægari en ella. Það er vissulega ógeðfellt að lesa síðan þá pistla sem frá hugmyndafræðingum þessa kerfis hafa komið, þessarar nýju skipanar, þar sem beinlínis er hlakkað yfir því hvað eignarmyndun í félagslegu eignaríbúðunum sé núna tiltölulega lítil miðað til að mynda við búseturéttaríbúðir, sem menn eignast nú reyndar aldrei. Þótt menn leggi þar fram ákveðinn hlut í byrjun og borgi síðan sitt leigugjald ár og síð, þá eignast menn engan hlut í íbúðinni, þó þeir geti að vísu fengið endurgreitt það sem þeir hafa lagt fram í upphafi ef þeir kjósa að flytja út aftur.
En það var fleira sem breyttist í fyrra í félagslega íbúðakerfinu en fyrningarhlutfallið. Það voru ýmis fleiri atriði sem breytt var til þess að gera þennan kost óvænni en hann áður var og ófýsilegri en aðra möguleika. Til að mynda var felldur brott sá möguleiki sem áður var í lögum að fólk, sem býr við sérstaklega erfiðar fjölskyldu- eða fjárhagsaðstæður og á í erfiðleikum með að ráða við útborgun í félagslega íbúðakerfinu, þessi 15% sem þá voru af íbúðarverðinu, gæti fengið skammtímalán, lán til þriggja ára til þess að brúa þetta bil, að hluta eða öllu leyti. Þetta var hugsjón Alþfl. á afmælisárinu í því efni að gera fólki sem býr við erfiðar fjölskyldu- eða fjárhagsaðstæður mögulegt að eignast íbúðarhúsnæði í verkamannabústöðum. Sú hugsjón birtist í þeirri breytingu sem var gerð í fyrra að fella niður þann möguleika að veita fólki lán til þriggja ára til þess að greiða fyrir því að viðkomandi gæti staðið í skilum með útborgun áður en hið langa lán, 43 ára lán, úr Byggingarsjóði verkamanna kæmi til endurgreiðslu í verulegum mæli. Þá var það sérstök hugsjón Alþfl. að þetta mætti ekki gera. Það mætti alls ekki veita fólki þessi lán. Brtt. sem við fluttum nokkrir í fyrra um að ákvæðið um þessi skammtímalán fengi að halda sér var felld. Auðvitað varð þetta til þess að ákveðinn hópur manna, sem áður átti möguleika á því að eignast íbúð í gegnum félagslega verkamannabústaðakerfið fyrir tilstilli þessara skammtímalána, missti þann möguleika og á þá ekki í önnur hús að venda en hinn almenna leigumarkað eða þann leigumarkað sem er í þessu frv. sem nú er til umræðu, búseturéttarfrumvarpið, sem nýtur sérstakrar velþóknunar um þessar mundir af hálfu ráðandi afla. Niðurstaðan af þessu varð auðvitað sú að það fólk sem sá fram á það að geta komist yfir sína eigin íbúð í verkamannabústaðakerfinu fyrir tilstilli þessa viðbótarláns, missti í mörgum tilfellum þennan möguleika.
Röksemdirnar í fyrra voru þær að það þýddi ekkert að vera að hjálpa fólki sem stæði svona á fyrir og því væri enginn greiði gerður með því, eins og það var orðað, enginn greiði gerður með því. Og auðvitað útilokað að leyfa fólkinu að taka um það sjálft ákvarðanir hvort það treysti sér til að standa undir slíku láni, heldur varð bara að taka þennan möguleika alveg úr lögum.
Nú er um það bil ár síðan þetta var samþykkt hér
á hinu háa Alþingi og um þessar mundir standa víða yfir úthlutanir og ýmis vinna á vegum húsnæðisnefndanna að því er varðar félagslegar eignaríbúðir. Mér er tjáð að einmitt þetta atriði, þessi breyting, sé núna farin að hafa áhrif í alvöru, það sé farið að koma fram sem ég spáði í fyrra og ýmsir tóku undir, þótt sú breyting hlyti ekki náð fyrir augum ráðamanna í Alþfl. eða meiri hluta stjórnarliðsins.
Af þessum sökum hef ég leyft mér ásamt hv. þm. Alexander Stefánssyni, Guðmundi G. Þórarinssyni, Eggert Haukdal og Ólafi Þ. Þórðarsyni að flytja þessa brtt. á nýjan leik við 68. gr. laganna um Húsnæðisstofnun ríkisins. Hún er að vísu ekki í beinum tengslum við það frv. sem hér er til umræðu þar sem á að bæta inn nýjum kafla, hún er ekki um að breyta neinu í þeim kafla. En hæstv. félmrh. hefur flutt fimm frv. á þessu þingi um að breyta þessum sömu lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins. Það er búið að flytja hvorki meira né minna en fimm frv. á einu og sama þinginu um að breyta þessum einu lögum, þannig að það þarf ekki að koma neinum á óvart þó menn noti tækifærið við eitthvert af þeim frv. og flytji breytingar við aðrar greinar í lögunum sem menn vilja fá breytt. Það liggur í eðli málsins að sá möguleiki er alltaf opinn þegar verið er að flytja frv. um að breyta tilteknum lögum.
Það sýnir kannski best hversu mikill glundroði er í þessum húsnæðismálum af hálfu ríkisstjórnarinnar að það skuli hafa þurft að flytja fimm frv. á einu og sama þinginu til þess að breyta einum og sömu lögunum. Nú hef ég að vísu enga hugmynd um það, herra forseti, hvort þessar breytingar sem nú eru óafgreiddar á Alþingi ná fram að ganga. Það voru tvö frv. samþykkt fyrir jól en þrjú frv. eru enn þá í meðförum þingsins. Það er þetta frv. hér um Búseta eða húsnæðissamvinnufélögin og síðan eru tvö frv. í Ed. Annað um að breyta yfirstjórn Húsnæðisstofnunar og hitt um að leggja niður húsnæðiskerfið frá 1986.
Ég hef enga hugmynd um það hvort ríkisstjórnin og stuðningsflokkar hennar hafa náð innbyrðis samkomulagi um hvað af þessu eigi að ná fram að ganga. Vissulega hefur ríkisstjórnin meiri hluta hér á Alþingi og getur fengið samþykkt það sem hún vill, bæði á þessu sviði sem öðrum og þarf ekkert að leita til stjórnarandstöðunnar með það. Mér er ekki kunnugt um það hvað af þessum þremur frv. sem enn eru hér óafgreidd og varða þessi mál er samkomulag um að afgreiða. En ég bendi enn á hversu mikill glundroði er í þessum málum, að ekki skuli vera hægt að leggja fram í einu frv. þær breytingar sem ætlunin er að gera á þessum lögum, heldur þurfa menn að vera að krafla í þetta hér og þar í hinni margumræddu sérprentun félmrn. á lögunum, menn þurfa að vera að krafla fram og aftur um lögin í mismunandi frv. og taka hér níu umræður í hverri deild í staðinn fyrir þrjár um þessi þrjú frv. Þar fyrir utan er dálítið óvenjulegt og undarlega að því staðið að leggja eitt af þessum frv. fram í Nd. en tvö í Ed. þegar hægt hefði verið að leggja þau öll fram í einu frv. í einni deild þannig að menn gætu unnið þessi mál í einhverju samhengi. Þetta sýnir auðvitað og staðfestir það sem við sjálfstæðismenn höfum margsinnis haldið fram, að viðskilnaðurinn í þessum málaflokki hjá núv. ríkisstjórn er þannig að það verður að vera fyrsta verk nýrrar ríkisstjórnar að taka þessi mál öll til algjörrar endurskoðunar, byrja á því, og gera þessi mál þannig að þau verði almenningi skiljanleg. Hvernig er hægt að ætlast til þess að venjulegt fólk sem ætlar að fara að kaupa sér íbúð eða hyggst reisa sér húsnæði, botni nokkurn skapaðan hlut í þeim frumskógi sem liggur eftir núv. ríkisstjórn, sem ekki getur einu sinni samið eitt frv. um breytingar á þessu þingi, heldur þarf að leggja fram fimm mismunandi frv. um breytingar á sömu lögunum, tvö fyrir jól og þrjú eftir jól. Hvers lags vinnubrögð eru þetta sem þingmönnum eru sýnd hér?
Það liggur náttúrlega í hlutarins eðli að það hlýtur að verða fyrsta verk næstu ríkisstjórnar að gera eina allsherjar endurskoðun á þessum málaflokki, lögum og reglum, og gera þetta þannig að bæði þingmenn og almenningur geti átt að þessu greiðan aðgang og auðskilinn.
Eins og ég gat um áðan, virðulegi forseti, voru verkamannabústaðirnir einu sinni sú rós í húsnæðismálum sem Alþfl. stærði sig mest af. Sá tími er nú reyndar löngu liðinn og það hefur skipulega, eins og ég gat um áðan, verið unnið að því að gera verkamannabústaðina eða félagslegar eignaríbúðir að lakari kosti en áður var. Það var sagt fullum fetum þegar þessi mál voru til umræðu hér í fyrra að þetta fólk, sem ég er hér að gera að umtalsefni varðandi mína brtt., gæti bara farið og leigt, það ætti ekkert að gefa þessu fólki kost á að eignast eigin íbúð í verkamannabústaðakerfinu og það mætti ekkert koma til móts við það fólk sem ætti við sérstaklega erfiðar fjölskyldu- eða fjárhagsaðstæður að glíma jafnvel þótt það sama fólk gæti sýnt fram á það að það mundi eftir ákveðinn tíma geta ráðið við þetta viðbótarlán og jafnvel þó að þetta sama fólk vildi sjálft fara þessa leið frekar en aðrar og jafnvel þó að þetta sama fólk vildi leggja mjög hart að sér um ákveðinn tíma, t.d. þessi þrjú ár sem er leyfður lánstími þessa láns, til þess að geta komist í eigið húsnæði. Nei, það var stefna og skyldi verða stefna Alþfl. og ríkisstjórnarinnar að bola þessu fólki út úr verkamannabústaðakerfinu.
Ég hef tekið þá ákvörðun ásamt nokkrum fleiri hv. þm., sem ég gat um áðan, að freista þess enn á ný að fá þessu breytt og vænti ég stuðnings hv. formanns fjvn. í því efni. ( SighB: Þó það nú væri.) Og ég trúi því ekki almennilega að nú, þegar afleiðingar þessara breytinga sem voru gerðar í fyrra eru komnar fram, verði enn á ný verið að þjösnast á þessu fólki með því að fella þessa brtt. sem liggur hér fyrir á þskj. 887. Ég trúi því nú ekki, a.m.k. vil ég fá að sjá framan í þá stjórnarliða sem ætla að taka á sig ábyrgðina á því.
En að því er varðar, virðulegi forseti, þær brtt. sem hv. formaður félmn. gat hér um og koma frá meiri hl. nefndarinnar, þá er rétt að það komi hér fram til marks um það hvernig vinnubrögðin eru í þessum efnum að þegar félmn. var með þetta mál til meðferðar kom á daginn að þetta frv. hafði aldrei verið borið undir Byggingarsjóð verkamanna eða starfsmenn þar eða húsnæðismálastjórn sjálfa. Það hafði ekki verið talin nein ástæða til þess. Og það er nauðsynlegt að það komi hér fram að þær brtt. sem meiri hl. nefndarinnar hefur flutt í þessu máli eru til komnar vegna ábendinga frá starfsmönnum í Húsnæðisstofnun og hjá Byggingarsjóði verkamanna vegna tæknilegra og faglegra galla sem á þessu frv. voru. --- Nú þætti mér vænt um, herra forseti, ef hægt væri að sussa á liðið þarna í hliðarherberginu. Ég veit að þótt ég tali hátt get ég ekki yfirgnæft fundinn þarna. ( Forseti: Forseti mun bæði sussa á liðið og syngja Bíbí og blaka, ef hv. þm. vill.) Já, ég vil það gjarnan. Ég skal taka forseta á því loforði síðar meir, ekki á þessum fundi. En það er sem sagt nauðsynlegt að það komi fram að undirbúningur þessa máls var með þeim hætti að sjálfsöryggið eða hvað ég á að kalla það, sjálfstraust þeirra sem frv. undirbjuggu var svo mikið að þeir töldu ekki ástæðu til að bera það undir Húsnæðisstofnun ríkisins eða þá starfsmenn þar sem fjalla um félagslega kerfið þó svo verið sé að breyta lögunum um stofnunina með þessu frv. og setja þar inn nýjan kafla. En svo þegar það var gert, reyndar að beiðni hv. 1. þm. Vesturl., sem benti á þetta atriði fyrstur manna í félmn., þá kom hér langur listi af athugasemdum frá Húsnæðisstofnun ríkisins vegna meintra galla sem á þessu frv. væru. Ég tel að úr því sem komið var hafi nefndin og formaður hennar unnið vel úr því máli að því er varðar þær breytingar sem bent var á að nauðsynlegt væri að gera. Og ekkert í sjálfu sér við það að athuga hvernig unnið var úr þeim tillögum. Þó mætti benda á að athugasemdir Húsnæðisstofnunar voru nokkru fleiri en meiri hl. nefndarinnar tók upp á sína arma. Þannig voru gerðar athugasemdir við 124. og 127. gr. að því er varðar hinn svokallaða eignarhluta, það er a- og d-liður 1. gr. En meiri hl. nefndarinnar, að höfðu samráði við félmrn., sá ekki ástæðu til að taka þær ábendingar til greina. Ég ætla ekki að skipta mér af þeirri afgreiðslu frekar en frv. að öðru leyti.
Ég vil ljúka máli mínu, herra forseti, með því að endurtaka það að þetta frv. í sjálfu sér breytir ekki miklu þó það sé að mínum dómi ástæðulaust að setja lög um alla skapaða hluti hér í þessu landi. Ef eitthvað er eru frekar afgreidd of mörg lög hér á Alþingi en of fá. En ég fæ ekki séð að þetta frv. geti valdið neinu tjóni og á vissan hátt má segja að það sé gott fyrir aðila sem þarna eiga hlut að máli að hafa skýrar reglur fyrir framan sig þó svo að auðvitað væri þeim í lófa lagið að setja slíkar reglur í eigin samþykktir. Þetta frv. veltir ekki þungu hlassi og skiptir ekki miklu máli í heildarsamhengi húsnæðismálanna. Það sem við blasir í þeim efnum er auðvitað meira og minna ein brunarúst sem lýsir sér best í því að á einu og sama þinginu skuli ríkisstjórnin hafa flutt fimm frv. um að breyta þessum einu vesalings lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins og glundroðinn lýsir sér best í því að nú er allt í óvissu um afdrif þessara mála
þriggja sem liggja hér fyrir deildum þingsins, tvö í efri deild og eitt í hinni neðri.
Þetta er bara lýsandi um hvernig ástandið er hér í málum almennt í þinginu þegar það er stjórnarliðið sjálft sem getur ekki komið sér saman um hvað eru forgangsmál og því um líkt. Auðvitað þarf enga stjórnarandstöðu til þess að leggja stein í götu mála þegar ástandið er þannig á sjálfu stjórnarheimilinu.