Kvöldfundir
Miðvikudaginn 13. mars 1991


     Málmfríður Sigurðardóttir :
     Virðulegi forseti. Nú á klukkan eftir 17 mínútur í 7 og er að hefjast fundur í Sþ. Ég mundi vilja mælast til að forseti upplýsti okkur þingmenn um það hversu lengi er áætlað að halda áfram fundum í kvöld. Það var fundur fram á nótt í gær, það var kvöldfundur kvöldið þar áður og það verður kvöldfundur annað kvöld. Þegar forsetar og þingflokksformenn héldu fund um þinghald hér í fyrradag, þá mótmælti ég því að það yrði kvöldfundur á hverju kvöldi. Ég sagði að mér fyndist hæpið að Alþingi væri bjóðandi upp á það að það væri kvöldfundur á hverju kvöldi og mig langar að fá upplýsingar um það hjá hæstv. forseta hvað er fyrirhugað með þinghald í kvöld.