Samningar um álver
Miðvikudaginn 13. mars 1991


     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Vegna þessara orða hv. 2. þm. Austurl. varð það að samkomulagi milli formanna þingflokka að þessari umræðu verður haldið áfram þar til henni lýkur. Sem svar við síðari spurningu hv. þm. þá er það alveg óheyrt í þingsögunni að krafa sé gerð um að öll ríkisstjórnin sé viðstödd umræðu. Hér eru staddir þrír hæstv. ráðherrar, (Gripið fram í.) fjórir hæstv. ráðherrar, (Gripið fram í.) og er sá fimmti kominn. Forseti treystir sér ekki til þess að ætlast til að fleiri ráðherrar séu hér viðstaddir, enda málið í höndum þessara umræddu ráðherra, hæstv. iðnrh., umhvrh., utanrrh., hér er staddur hæstv. dómsmrh. og einhver sá fimmti af ráðherrunum sem ég sé ekki héðan úr stólnum. ( Gripið fram í: Forsætisráðherra.) Það er sjálfur forsrh. Þannig að allvel er nú báturinn skipaður. Svo ég held að við verðum að byrja þessa umræðu og láta okkur nægja þessa fulltrúa hæstv. ríkisstjórnar að sinni.