Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Umræðurnar fara þannig fram að hver þingflokkur fær 30 mínútur til umráða sem skiptast í tvær umferðir, 15 -- 20 mínútur í fyrri og 10 -- 15 í þeirri seinni. Röð flokkanna verður í báðum umferðum Sjálfstfl., Framsfl., Alþfl., Kvennalisti, Alþb. og Borgfl. Stefán Valgeirsson, 6. þm. Norðurl. e., talar síðastur í fyrri umferð og hefur 15 mínútur til umráða. Ræðumenn flokkanna verða: Fyrir Sjálfstfl. Friðrik Sophusson, 1. þm. Reykv., og Salome Þorkelsdóttir, 6. þm. Reykn., í fyrri umferð og Halldór Blöndal, 2. þm. Norðurl. e., í hinni síðari. Af hálfu Framsfl. tala Páll Pétursson, 1. þm. Norðurl. v., og Halldór Ásgrímsson sjútvrh. í fyrri umferð, en Steingrímur Hermannsson forsrh. í þeirri seinni. Ræðumenn Alþfl. verða í fyrri umferð Jón Sigurðsson viðskrh. og Jóhanna Sigurðardóttir félmrh., en Jón Baldvin Hannibalsson utanrrh. í þeirri síðari. Fyrir Kvennalista tala Guðrún J. Halldórsdóttir, 18. þm. Reykv., og Danfríður Skarphéðinsdóttir, 6. þm. Vesturl., í fyrri umferð og Anna Ólafsdóttir Björnsson, 10. þm. Reykn., í hinni síðari. Af hálfu Alþb. tala Margrét Frímannsdóttir, 4. þm. Suðurl., og Svavar Gestsson menntmrh. í fyrri umferð, en Steingrímur J. Sigfússon landbrh. og Ólafur Ragnar Grímsson fjmrh. í hinni síðari. Ræðumenn Borgfl. verða í fyrri umferð Júlíus Sólnes umhvrh., Óli Þ. Guðbjartsson dómsmrh. og Guðmundur Ágústsson, 5. þm. Reykv., en í þeirri seinni Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, 11. þm. Reykv., og Ásgeir Hannes Eiríksson, 16. þm. Reykv.
    Hefst nú umræðan og tekur fyrstur til máls hv. 1. þm. Reykv. Friðrik Sophusson og talar af hálfu Sjálfstfl.