Salome Þorkelsdóttir :
    Hæstv. forseti. Góðir áheyrendur. Þegar sjónvarpað var útvarpsumræðum héðan úr sölum Alþingis á vordögum fyrir þremur árum, eins og gert er í kvöld, sagði Jóhanna Sigurðardóttir, hæstv. félmrh., að alþýðuflokksmenn töluðu gjarnan um að í landinu byggju tvær þjóðir. Hún nefndi tvö dæmi máli sínu til sönnunar. Efnaða manninn sem átti allt sem hugurinn girnist, en vissi ekki og trúði því ekki að nokkur maður hefði svo lág laun að ekki væri hægt að lifa af þeim.
    Hún sagði okkur einnig frá unga manninum sem hafði komið til hennar í viðtal og sýnt henni launaseðilinn sinn sem sýndi mánaðartekjur um 34 þús. kr. Hann var fjölskyldumaður. Hann átti ekkert húsnæði. Hann var á götunni en húsaleiga á almennum markaði á þeim tíma var þá 35 þúsund krónur.
    Það var dapurlegt að hlusta á þetta og ég var sammála félmrh. um að slíkan blett á velferðarþjóðfélagi okkar yrði að uppræta.
    Þegar þessi umræða fór fram var Sjálfstfl. í samsteypustjórn með Framsfl. og Alþfl. undir forsæti Þorsteins Pálssonar. Stjórnin hafði setið í eitt ár.
    Síðla þetta sumar rufu Steingrímur Hermannsson, formaður Framsfl., núv. hæstv. forsrh., og Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþfl., núv. hæstv. utanrrh., stjórnarsamstarfið við Sjálfstfl.
    Síðan hefur hæstv. forsrh. komið á fót tveimur vinstri stjórnum með Alþb., Alþfl. og síðast hluta af Borgfl.
    Það verður ekki hjá því komist að skoða feril stjórnarinnar þessi þrjú ár nú við lok kjörtímabilsins. Ekki síst þegar það er haft í huga að hún hefur mikinn áhuga á því að fá endurnýjað umboð eftir næstu kosningar.
    Ekki er nú allt vont sem gerst hefur á ferli stjórnarinnar. Það má t.d. nefna þjóðarsáttina, þegar forustumenn launþega og vinnuveitenda höfðu frumkvæði um að fá ríkisstjórnina til að söðla um í efnahagsstefnu sinni og gera þjóðarsátt við aðila vinnumarkaðarins sem leitt hefur til þess að kaupmáttarrýrnun varð minni en til stóð og verðbólgan komst á viðráðanlegt stig.
    En hvað stendur þá eftir? Hvernig er staða heimilanna nú? Hefur fátæktin verið upprætt? Er minna atvinnuleysi og meira atvinnuöryggi?
    Ég ætla að gera það sama og hæstv. félmrh. gerði fyrir þremur árum og koma með dæmi.
    Í desember sl. gerðist það, sem ekki hefur gerst árum saman, að til mæðrastyrksnefndar leitaði nú ungt fólk --- ungar fyrirvinnur --- sem aldrei áður höfðu þurft að leita á náðir opinberra aðila, ungt vinnandi fólk, eins og ungi maðurinn fyrir þremur árum. Og hver voru vandamál þessara fjölskyldna? Vantaði kannski peninga til að kaupa eitthvað fallegt til jólanna, nýja flík, svo að börnin færu ekki í jólaköttinn? Nei, það var ekki erindið. Erindið var að ekki voru til peningar til að kaupa mat til jólanna.
    Staðan í okkar velferðarþjóðfélagi nú þegar vinstri

stjórnin er að skila af sér er sú að það hefur gleymst að uppfylla fyrsta markmiðið í aðgerðum ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum, sem var að bæta lífskjör hinna tekjulægstu. Það er enn stór hópur fólks sem hefur svo lágar tekjur að endar ná ekki saman.
    Á fyrstu tveim mánuðum þessa árs hafa 420 einstaklingar orðið gjaldþrota. Fjölmörg fyrirtæki hafa farið sömu leið. Önnur draga saman seglin og hagræða með því að segja upp starfsfólki. Það lendir oftast á fólki á miðjum aldri, á besta aldri, sem af trúmennsku hefur þjónað sama fyrirtæki í áratugi. Konur og karlar á besta aldri eru sett út í kuldann þegar þau eiga jafnvel ekki nema örfá ár eftir til að ljúka starfsaldri sínum með reisn. Ég þekki dæmi um atvinnuleysi af þessu tagi sem staðið hefur í hálft annað ár.
    Ástandið hefur ekki batnað þó að vinstri stjórn, sem kennir sig við félagshyggju og jafnrétti, hafi ráðið ferðinni undanfarin þrjú ár. Við verðum enn að horfast í augu við það að það búa tvær þjóðir í þessu landi hvað lífskjörin varðar.
    Það verður æ fleirum ljóst að sú grundvallarstefna sem Sjálfstfl. markaði sér í upphafi fyrir sex áratugum er enn í fullu gildi. Stefna, sem byggir á sjónarmiðum mannúðar, frelsi einstaklingsins, lýðræðislegum stjórnarháttum, virðingu fyrir umhverfinu og gæðum jarðar og kristilegum siðgæðisviðhorfum, er reist á bjargi og hefur staðist tímans tönn með því að aðlagast þeim breytingum sem orðið hafa í þjóðlífinu á undanförnum áratugum.
    Við sjálfstæðismenn þurfum ekki að setjast niður og hugsa upp á nýtt eftir hrun Berlínarmúrsins og kommúnismans vítt um heim. Við þurfum ekki að leita í smiðju annarra flokka til að smíða nýja stefnuskrá, en þannig er nú komið vinstri flokkunum á Íslandi í dag. Þeir eiga ekki lengur grundvallarstefnu. Hún hefur beðið skipbrot, er dauð og ómerk.
    Flóttinn úr Alþb. talar sínu máli. Flokkurinn er orðinn erindislaus í íslenskum stjórnmálum.
    Framsfl. hefur nú setið í ríkisstjórn í tvo áratugi og þykir mörgum kominn tími til að gefa honum frí frá störfum. Undir forustu Steingríms Hermannssonar hefur siðgæði í íslenskum stjórnmálum minnkað. Forsrh. er kunnur að því að skjóta sér undan ábyrgð þegar honum þykir það henta og kenna gjarnan samstarfsráðherrum um þegar miður gengur. Framkoma einstakra ráðherra einkennist af valdhroka og lítilsvirðingu í garð þeirra sem leyfa sér að koma með ábendingar eða gagnrýni á störf þeirra eða stjórnarathafnir, eins og glögglega kom fram gagnvart embætti Ríkisendurskoðunar á dögunum.
    Skollaleikur og blekkingarvefur forsrh. og iðnrh. um staðsetningu álvers er mönnum í fersku minni og nú á síðustu þingdögum reynir Alþb. að stöðva framgang málsins hér í þinginu.
    Þegar litið er yfir farinn veg ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar verða einkunnarorðin ekki fögur: Ríkisstjórn skattpíningar, forsjárhyggju og valdhroka. Stjórnin er innbyrðis sundurþykk sem endurspeglast í orðum og gjörðum einstakra ráðherra. Nú er

varla flutt stjfrv. þessa síðustu þingdaga að ekki séu gefnar yfirlýsingar um fyrirvara á stuðningi einstakra flokka innan stjórnarheimilisins. Nú þeysa alþýðubandalagsráðherrarnir ekki lengur um landið á rauðu ljósi með alþýðuflokksráðherrunum. Ljósin eru slokknuð eins og stefnan. Nú fer Alþfl. um í myrkrinu og boðar Ísland í A - flokk.
    Undir forustu vinstri stjórnar Steingríms Hermannssonar hefur íslenskur þjóðarbúskapur staðnað, hagvöxtur er minni en annars staðar og horfur á minnkun kaupmáttar. Efnahagssérfræðingar halda því fram að við séum að falla úr hópi A-þjóða, sem við höfum tilheyrt í lífskjörum, niður í hóp C-þjóða um næstu aldamót.
    Þetta eru afrek A-flokkanna í íslenskum stjórnmálum, Alþb. og Alþfl. undir forustu Framsfl. Er ekki tímabært að gefa þreyttum forsrh. og Framsfl. frí frá stjórnarstörfum?
    Fjölflokkastjórnir eru þrautreyndar í íslenskum stjórnmálum. Við höfum ekki efni á slíkum tilraunum. Þess vegna liggja straumarnir í farveg til Sjálfstfl. Hann er eina raunhæfa kjölfestan sem getur leitt íslenskt þjóðfélag á ný í hóp A-þjóða. Úr fari stöðnunar inn á framfarabraut frelsis og mannúðar.
    Ég þakka áheyrnina. Góðar stundir.