Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson) :
Frú forseti. Góðir áheyrendur. Hvernig sem viðraði í náttúrunni geisaði fárviðri áratugum saman í íslensku þjóðlífi, verðbólgufárviðrið. Öll þekkjum við aldrað fólk sem varð eignalaust vegna verðbólgunnar. Öll þekkjum við ungt fólk sem kiknaði undan skuldabyrðunum og við þekkjum öll til fyrirtækja sem brunnu til ösku á verðbólgubálinu. Verðbólgan sjálf var meginástæða þessara vandræða, óstöðugleikinn, það tjá og tundur sem henni fylgdi, þokan sem byrgði okkur sýn og gerði okkur ómögulegt að skipuleggja framtíðina. Íslendingar eru sögulega sinnuð þjóð og á hátíðastundum segja menn oft með Einari Benediktssyni:
Að fortíð skal hyggja, ef frumlegt skal byggja,
án fræðslu þess liðna sést ei hvað er nýtt.
Stundum sýnir sagan okkur víti til varnaðar.
Abraham Lincoln Bandaríkjaforseti sagði við þjóð sína á öldinni sem leið og vísaði til ánauðar þrælahaldsins: Við verðum að brjóta af okkur hlekki fortíðarinnar. Þannig björgum við landinu. --- Það er einmitt það sem íslenska þjóðin hefur nú gert. Hún hefur loksins, loksins brotið af sér hlekki verðbólgunnar. Við erum ekki lengur þrælar óvissunnar.
Haustið 1987 var verðbólgan 25%. Haustið 1980 var hún 30% og á uppleið. Nú um þessar mundir er hún um eða innan við 5%. Þetta er mikil breyting á 2 1 / 2 ári. Við, sem vorum eftirbátar allra Evrópuþjóða og höfum nú reyndar siglt fram úr þeim mörgum, erum komin í fremstu röð í viðspyrnu gegn verðbólgunni. Haustið 1988 töldu spámenn Sjálfstfl., allt frá Verslunarráði til VSÍ, að algert hrun sjávarútvegsins væri óumflýjanlegt. Þeir spáðu óðaverðbólgu og atvinnuleysi þúsundanna. Þeir spáðu kreppu til lands og sjós. Þeirra úrræði voru ný gengisfelling, nýr hringur í gömlum hrunadansi. Ríkisstjórnin hratt hins vegar í framkvæmd aðgerðum til þess að varðveita atvinnuöryggið og koma á stöðugleika. Við vildum varanlegar lausnir án verðbólgu. Árangurinn hefur líka verið mikill og góður. Við höfum ekki aðeins varist áföllum heldur höfum við snúið vörn í sókn. Það hefur náðst betri friður í íslenskum efnahagsmálum en dæmi eru um frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Það hefur tekist með einföldum orðum að koma á kyrrum kjörum.
Hrakspárnar eru líka hljóðnaðar. Fárviðrið er gengið yfir. Þessi árangur náðist með samstilltu átaki verkalýðshreyfingar, atvinnurekenda og ríkisstjórnar. Vegna hvers? Vegna þess að ríkisstjórninni tókst að vinna traust aðila vinnumarkaðarins. Þeir treystu okkur og við treystum þeim. Þess vegna hefur tekist að ná áratuga gömlu markmiði í íslenskum stjórnmálum, markmiði sem lengi sýndist óraunverulegur draumur, að verðþróun hér væri eins og með siðuðum þjóðum.
Þetta vekur spurningar. Um hvað snúast stjórnmálin? Hvenær rís stjórnmálabaráttan hæst? Er það við sigra í átökum milli manna, bræðravígin, eða er það þegar tekst að gera lífið í landinu betra? Hverjar eru skyldur stjórnmálamanna? Að lama þingræðið og
framfarir með þvergirðingi og málþófi eða finna færar leiðir til framtíðar? Hvernig hefur fólk áhrif á þetta?
Um þetta verður senn kosið. Hvernig á að bæta íslenskt þjóðfélag, hvernig á að slá skjaldborg um réttlætið? Í stjórnmálum eiga verkin að tala og af þeim á auðvitað að dæma stjórnmálamenn. Við alþýðuflokksmenn erum óhræddir við þann dóm eftir fjögur ár í ríkisstjórn. Við sækjumst eftir umboði kjósenda til áframhaldandi stjórnarstarfa í krafti þeirra verka sem við höfum af hendi leyst og í krafti okkar kosningastefnu. Við biðjum kjósendur einfaldlega að bera saman loforð okkar og efndir. Við biðjum þá að bera saman málflutning okkar frambjóðenda og frambjóðenda annara flokka. Hverju lofaði flokkurinn og hverju hefur hann komið áleiðis? Við lofuðum að gera okkar til að binda endi á óstjórn í efnahagsmálum og sigrast á verðbólgunni. Það hefur verið gert. Við lofuðum að einfalda bankakerfið. Það höfum við gert. Bönkunum hefur fækkað úr sjö í þrjá. Áður byggðu bankarnir stórhýsi og keyptu fasteignir. Nú selja þeir. Söluverð þeirra fasteigna sem Íslandsbanki einn losaði við sameininguna er nálægt hálfum milljarði kr. Þannig lækkaði kostnaðurinn í bönkunum og þannig lækka vextirnir. Við lofuðum auknu frjálsræði í viðskiptum. Það hefur verið veitt. Bensíninnflutningur og verðlagning er nú orðin frjáls og samkeppnin skilaði strax verðlækkun.
Við höfum innleitt gjaldeyrisfrelsi. Nú getur allur almenningur og öll fyrirtæki, stór og smá, keypt gjaldeyri eftir þörfum. Nú njóta þess allir sem áður stóð aðeins fáum útvöldum til boða. Við leyfðum verslunarmönnum að taka eðlileg vörukaupalán frá útlöndum á eigin ábyrgð án þess að þurfa að knékrjúpa fyrir bankastjórum. Allt er þetta til marks um mestu breytingar í átt til viðskiptafrelsis í 30 ár eða meira. Allt eru þetta breytingar sem eiga það líka sameiginlegt að Sjálfstfl. hefur þóst berjast fyrir þeim en ekki komið þeim í framkvæmd þótt hann hafi árum saman verið í aðstöðu til þess.
Við viljum styrkja byggðir landsins. Til þess höfum við beitt okkur fyrir því að auka jöfnuð í húshitunarkostnaði. Við leggjum til að í þremur áföngum á næstu tveimur árum verði kostnaður við hitun íbúðarhúsa húsnæðis vísitölufjölskyldunnar hvergi hærri en 5 þús. kr. á mánuði miðað við verðlag í janúar 1991. Þetta skiptir miklu máli fyrir þann fjórðung þjóðarinnar sem býr við háan hitunarkostnað.
Loks höfum við lagt grunninn að nýtingu orkulinda til uppbyggingar iðnaðar. Það er búið að bjóða út fyrstu framkvæmdir við Fljótsdalsvirkjun. Stærstu iðnaðar - og virkjunarframkvæmdir Íslandssögunnar eru í sjónmáli. Áratuga stöðnun hefur verið rofin. Nú ríður á að öfundarmenn og andstæðingar álmálsins nái ekki að bregða fyrir það fæti á síðustu dögum þingsins með kosningaupphlaupum. Því er spáð að álver á Keilisnesi muni auka kaupmátt ráðstöfunartekna almennings um 4%. Hvað þýðir þetta í reynd? Hvað gæti andstaðan við álver kostað fólkið í landinu í kjörum? Það þyrfti reyndar að greiða ungri fjögurra manna fjölskyldu 2 millj. kr. nú til þess að vega upp
álversmissi ef svo hrapallega tækist til.
Ýmsir hafa lagt stein í götu álmálsins. Sumir þeirra ætla nú reyndar meira að segja að reyna að slá sig til riddara á því að þykjast koma til bjargar en fólkið í landinu sér í gegnum slíka hræsni. Við eigum ekki að líða skemmdarverk í svo mikilvægum málum. Leiðin til framfara er nógu torsótt samt. Því nú er lag til að hefja nýja sókn til framfara. Við höfum hafið endurreisnarstarfið en hvaða leiðir munu helst færa okkur í átt til betri kjara? Um hvað verður kosið í vor? Hvað þarf að gera?
Í fyrsta lagi þarf að bæta afkomu þeirra sem lægstar tekjur hafa með hækkun persónuafsláttar, lækkun matvælaverðs og greiðslu húsnæðisbóta, endurskoðun launakerfis og umbótum í lífeyrismálum.
Í öðru lagi þarf að ljúka samningum um nýtt álver á Keilisnesi og hefja framkvæmdir. Í þessum málum mun nást góður árangur ef skynsemin fær að ráða.
Í þriðja lagi þarf að knýja fram hagstæða niðurstöðu fyrir Ísland í samningaviðræðum EFTA og Evrópubandalagsins um evrópska efnahagssvæðið. Íslendingar vilja vera öflug þjóð í opnu landi. Þannig rís bæði menning og hagsæld hæst.
Í fjórða lagi þarf að stokka landbúnaðarstefnuna algerlega upp til að lækka matvælaverð, draga úr ríkisútgjöldum, hlífa gróðri landsins og efla sjálfstæða framtakssemi bænda. Þau drög að samkomulagi um búvöruframleiðslu sem gerð hafa verið eru skref í rétta átt en ekki nema hálfnað verk. Við viljum ljúka því.
Í fimmta lagi þarf að gerbreyta stjórn fiskveiða með það að markmiði að endurgjald fyrir veiðileyfi leysi af hólmi núverandi kvótakerfi. Við leggjum áherslu á að veiðiheimildir myndi aldrei séreignarrétt á sameiginlegri auðlind. Fiskstofnarnir eru sameign þjóðarinnar en ekki séreign fárra kvótakónga. Þjóðin á öll að fá sanngjarnan arð af sameign sinni.
Frú forseti. Góðir áheyrendur. Ég hef drepið hér á nokkur atriði sem miklu máli skipta í nýrri framfarasókn á Íslandi og sem Alþfl. vill beita sér fyrir. Það er um þetta sem verður kosið. Á grundvelli þessarar stefnu viljum við halda Íslandi í A - flokki Evrópuþjóða. Alþfl. biður um umboð til þessara verka á næsta kjörtímabili. Við lifum á spennandi tímum. Það verður kosið um framtíðina.