Danfríður Skarphéðinsdóttir :
Virðulegur forseti. Góðir áheyrendur. Eitt þeirra verka sem konur ganga til á þessum árstíma er að hlúa að lífinu með því að skipta um mold á þeim plöntum sem þær hafa á heimilum sínum. Konur vita að moldin er orðin þurr og næringarlaus og hefur ekkert lengur að gefa. Ef ekkert er að gert visna plönturnar og deyja að lokum.
Þannig er það líka með mannlífið. Til þess að dafna og blómstra verður það að vera sprottið úr frjóum jarðvegi. Það sama gildir um hugmyndir. Ef þess er ekki gætt að hlúa að jarðveginum fjara hugmyndirnar út. Án lifandi hugmynda verður stöðnun og skapandi kraftur fólksins nýtur sín ekki.
Það er til lítils að grafa í næringarsnauðri mold í leit að hugmyndum eins og gömlu stjórnmálaflokkarnir hafa sameinast um til þessa. Leit þeirra birtist m.a. í gegndarlausri valdabaráttu þar sem mennirnir skipta öllu en málefnin eru látin sitja á hakanum, okkur öllum til ómælds tjóns. Virðing fyrir lífinu og framsýni eru einkennandi fyrir hugmyndir Kvennalistans. Kvennalistakonur hafa frá upphafi látið sig málefni barna miklu varða. Í börnunum býr framtíðin. Þess vegna hafa kvennalistakonur m.a. lagt mikla áherslu á að öllum börnum undir skólaaldri standi til boða vist á leikskóla ef þess er óskað. Í samræmi við þessa skoðun lögðu þingkonur Kvennalistans þegar á fyrsta þingi þessa kjörtímabils fram frv. um sérstakt átak til uppbyggingar dagvistarheimila. Því var vísað til ríkisstjórnarinnar. Hún aðhafðist ekkert. Leikskólafrv. ríkisstjórnarinnar sem nú liggur fyrir þinginu veldur vonbrigðum. Það er gegnsætt, alveg eins og nýju fötin keisarans. Engin áætlun liggur fyrir um það hvernig fjármagna skuli uppbyggingu leikskólanna og það tryggir ekki rétt allra barna til leikskólavistar. Eins og dæmin sanna er hugkvæmni stjórnarherranna og örlæti mun meira þegar kemur að uppeldi fiskseiða en barna.
Þingkonur Kvennalistans lögðu fram fyrsta frv. sem fram hefur komið á Alþingi um einsetinn skóla og samfelldan skóladag. Með því vildum við undirstrika nauðsyn þess að tryggja börnum góð uppeldisskilyrði og öryggi meðan foreldrarnir stunda vinnu sína. Samfelldur skóladagur, skólamáltíðir og athvörf í skólunum eru alger forgangsverkefni í því tilliti. Nú eru ýmsar blikur á lofti sem ættu að opna augu manna fyrir því að ekki má lengur bíða með að gera verulega bragarbót í íslenskum skólum. Nauðsynlegt er að koma með ákveðnari hætti til móts við breytt þjóðfélag og breyttar þarfir en frv. ríkisstjórnarinnar um grunnskólann gerir ráð fyrir.
Í námsskrá fyrir grunnskóla kemur vel fram hvaða kröfur eru gerðar til kennara. Varla er til sá eiginleiki, persónulegur eða faglegur, sem kennarinn á ekki að hafa til að bera auk alls þess námsefnis og fræðslu sem honum er ætlað að miðla. En kjörin eru ekki í neinu samræmi við þær kröfur sem gerðar eru til þeirra sem sinna uppeldi og fræðslu barnanna. Mat stjórnvalda á mikilvægi uppeldis og fræðslu endurspeglast í launum þeirra sem þessi störf vinna. Þessu verður að breyta.
Það er í sjálfu sér fagnaðarefni að verða vitni að því hvernig frumkvæði Kvennalistans í málefnum barna og ungmenna hefur orðið til þess að ríkisstjórnin sá sig knúna til að bera þessi mál fram þó við hefðum sannarlega viljað að á þeim væri tekið af meiri myndarskap en raun ber vitni.
Góðir áheyrendur. Eftir þessa upptalningu kann einhver ykkar að hugsa: Enn eru þær í mjúku málunum. Það er alveg rétt. Við teljum að það sé nauðsyn og við erum stoltar af frumkvæði okkar í þessum málaflokki. Stjórnmál eiga ekki síst að snúast um hinn mjúka, mannlega kjarna en ekki bara hina hörðu, köldu tækni. Minnumst þess að börnin eru á ábyrgð okkar allra.
Góðir áheyrendur. Kvennalistakonur hafa verulegar áhyggjur af atvinnumálum landsbyggðarinnar, einkum með tilliti til stöðu kvenna. Við kvennalistakonur höfum haldið fundi og ráðstefnur. Við höfum heimsótt konur um allt land til að hlusta á hugmyndir þeirra og viðhorf. Hugmyndir kvenna eru frjóar og gefandi og mun betri og lífvænlegri en þær sem koma úr smiðju ríkisstjórnarinnar.
Kvennalistakonur hafa hvað eftir annað bent á þá staðreynd að mun fleiri konur flytja af landsbyggðinni en karlar. Í öllum landsbyggðarkjördæmunum eru konur mun færri en karlar og mestur er munurinn milli karla og kvenna í aldurshópnum 20 -- 44 ára. Það segir sína sögu. Ef svo heldur áfram munu byggðirnar tæmast því að án kvenna verður ekki mannfjölgun, ekkert líf og karlarnir munu fylgja á eftir þeim. Þetta breytist ekki nema hlustað verði á hugmyndir kvenna og tillit tekið til þeirra.
Við höfum frá upphafi hafnað álveri og bent á fjölmargt sem mælir gegn því. Álver er atvinnustefna gærdagsins. Vilt þú, áheyrandi góður, fórna náttúru landsins fyrir mengandi stóriðju? Ertu reiðubúinn til að auka erlendar skuldir þjóðarbúsins? Telur þú að álver leysi atvinnuvandann, t.d. hjá konum í þinni heimabyggð? Eigum við ekki að líta á aðra kosti? Kvennalistakonur vilja aðrar leiðir í atvinnusköpun.
Allt bendir til þess að vetni verði eldsneyti framtíðarinnar. Framleiðsla og notkun vetnis veldur ekki umhverfismengun. Kvennalistakonur hafa lagt fram tillögu um að kannaðir verði möguleikar á framleiðslu vetnis hér á landi. Í hreinni og tærri íslenskri náttúru felast ómetanleg verðmæti sem hinn mengaði, iðnvæddi heimur mun sækjast eftir.
Íslendingar eru fyrst og fremst matvælaframleiðendur. Sérstaða okkar á að byggja á kröfunni um ómengaða framleiðslu sem virðir þol lands og sjávar. Ferðaþjónusta er mikilvæg atvinnugrein og vænlegur kostur ef rétt er að málum staðið. Kvennalistakonur hafa lagt fram margar tillögur um úrbætur í ferðaþjónustu og umhverfismálum. Við viljum efla rannsóknir og ráðgjöf í þágu atvinnuveganna. Við viljum stuðla að uppbyggingu umhverfisvæns iðnaðar sem byggir á þeirri sérstöðu og þeim möguleikum sem landið hefur. Atvinnuuppbygging á þessum nótum
stuðlar að öflugri landsbyggð, tryggir skynsamlega nýtingu auðlinda okkar og fjölskrúðugt og blómlegt mannlíf um land allt.
Undanfarin kvöld hafa farið fram umræður hér í þinginu um byggingu nýs álvers. Í þeirri umræðu höfum við kvennalistakonur talið okkur skylt að koma sjónarmiðum okkar á framfæri. Ég vísa á bug þeim staðhæfingum að með því séum við að brjóta gegn lýðræðinu. Það er grundvallarhugsjón lýðræðis að sjónarmið minni hlutans fái að koma fram ekki síður en sjónarmið meiri hlutans. Það er alvarlegt og mjög hættulegt lýðræðinu ef þeir sem ráða ferðinni vilja ekki viðhalda þessari grundvallarhugsjón og við slíkri hugsun viljum við kvennalistakonur vara. Ég hefði reyndar heldur viljað eyða síðustu kvöldum hér á þinginu til að ræða atvinnustefnu fyrir okkur Íslendinga. Ríkisstjórnin hefur gleymt sér í álverinu og láðst að hugsa fyrir heildstæðri atvinnustefnu.
Í fyrrakvöld þyrptust konur upp á Hvanneyri þar sem Kvennalistinn á Vesturlandi efndi til fundar undir yfirskriftinni ,,Heimilisiðnaður og hönnun``. Þar kynntum við tillögur Kvennalistans um heimilisiðnaðarráðgjöf sem samþykkt var hér í þinginu í vetur og við hlustuðum á fræðandi og uppörvandi erindi kvenna sem eru sérfræðingar á ýmsum sviðum, t.d. í ullarvinnslu, veflist og markaðsfærslu. Áhugi hinna fjölmörgu kvenna og nokkurra karla sem fundinn sóttu leyndi sér ekki. Hefði farið betur á því að álráðherrarnir legðu land undir fót þetta kvöld og hlustuðu á hugmyndir og viðhorf kvenna í stað þess að loka sig inni í álversumræðunni suður í Reykjavík.
Góðir áheyrendur. Kvennalistinn er stjórnmálaafl sem vill breyta samfélaginu. Við viljum samfélag þar sem konur standa jafnfætis körlum og vel er búið að börnum. Til þess að svo verði þarf hugarfarsbyltingu. Um áraraðir var konum sagt að mennta sig, þar með næðist jafnrétti. Þrátt fyrir stóraukna menntun kvenna hefur þetta ekki ræst. Því ræður staðnað hugarfar sem þarfnast breytinga. Plönturnar í pottum gömlu stjórnmálaflokkanna eru visnar og líflausar. Það nægir ekki að umpotta, það þarf nýjar plöntur í nýrri mold þar sem lífið og það sem gefur líf situr í öndvegi.
Við lifum á tímum þar sem náttúrunni er sýnt ofbeldi og einnig eru konur beittar ofbeldi. Það er í hrópandi mótsögn við hlutverk beggja sem er að gefa líf og viðhalda því. Ekkert er fjarri konum en að beita ofbeldi.
Á vegum ríkisstjórnarinnar eru unnar jafnréttisáætlanir fyrir ráðuneytin. Í nýrri jafnréttisáætlun kemur fram að iðnrn. ætlar að vinna að jafnrétti með því að fá konur til starfa í nýju álveri. Samgrn. hvetur konur til starfa í vegavinnu og línuflokkum Pósts og síma. Heilbrrn. hefur engin áform um að fjölga körlum í hjúkrunar - og sjúkraliðastörfum. Forsrn. ætlar að halda áfram að gefa út skýrslur um laun kvenna og karla. Kvennalistakonur hafna jafnrétti sem felst í því að konum sé vísað í karlastörf. Við teljum það grundvallaratriði að konur, rétt eins og karlar, fái að velja á hvaða sviði þær vilja vinna. Lausnin felst í því að hefja kvennastörf til vegs og virðingar.
Í aldanna rás hafa konur oft sýnt hvaða kraftur býr í samstöðu þeirra. Nú er brýnt að konur sameinist um að leiðrétta launamuninn. Kvennalistakonur hafa lagt fram fjölmargar tillögur um launa - og kjaramál hér í þinginu. Við munum áfram leggja áherslu á þau mál vegna þess að það er meginatriði í allri kvennabaráttu að efla efnahagslegt sjálfstæði kvenna.
Í síðustu viku voru nokkrir vegfarendur spurðir í útvarpi hvort þeir vissu hvenær alþjóðlegur baráttudagur kvenna er. Einn karl sem var spurður svaraði að bragði: Er hann ekki alla daga ársins? Þetta er auðvitað hið eina rétta svar þó 8. mars hafi verið valinn til að sameina konur um allan heim í kvenfrelsisbaráttunni. Í svari mannsins speglast skilningur á stöðu kvenna og þörfinni fyrir stöðuga baráttu þangað til settu marki er náð. Sem betur fer eru augu margra karlmanna að opnast fyrir því að þeir geta tekið þátt í að hlúa að jurtum jafnréttis og jafnstöðu til að skapa okkur öllum betra og réttlátara þjóðfélag. En fyrst og síðast verður það frumkvæði kvenna og samstaða sem ræður hvenær við náum settu marki. Kvennalistakonur hvetja konur því til frumkvæðis og til að leggja málefnum lið hvar sem því verður við komið. --- Ég þakka áheyrnina. Góða nótt.