Stefán Valgeirsson :
Virðulegi forseti. Góðir Íslendingar. Þjóðin hefur nú hlustað á alla flokkana sem eru kallaðir hér á Alþingi og heyrir að það sem hefur farið úrskeiðis er hinum að kenna. Það sem hefur verið vel gert er þeim að þakka sem er í ræðustól hverju sinni.
Það var dálítið merkilegt að hlusta á hv. 1. þm. Reykv. hér áðan. Hlusta á það þegar þeir eru að tala um að þeir fari undir formerkjunum ,,frelsi og mannúð``. Hvaða frelsi? Frelsi peninganna er það frelsi sem hefur ráðið þegar Sjálfstfl. ræður ferðinni og meira segja, því miður, hafa þeir flokkar sem nú stjórna ekki haft manndóm í sér til þess að taka á þeim málum eins og var lofað og hefði þurft. Hver er mannúðin? Er ekki komið í ljós að 420 gjaldþrotabeiðnir hafa komið fram á fyrstu tveimur mánuðum þessa árs og fleiri hundruð gjaldþrotabeiðnir á undanförnum árum eftir vaxtavitleysuna sem var framkvæmd af Sjálfstfl., Alþfl. og Framsfl. Það er mannúðin. Mannúðin í verki. Og heldur Alþfl. að það þýði að ræða við þjóðina á þann veg sem hæstv. félmrh. gerði hér áðan? Dettur mönnum í hug að menn fylgist ekki með hvað er að gerast í húsnæðismálunum? Það er verið að stytta lánstíma og hækka vextina. En hvað með launin? Hækka þau? Er þetta ekki skýringin á því að fólk með lágar tekjur er að missa í tugatali, í hundraðatali, íbúðirnar sínar? Fátækt fólk náttúrlega. Og svo eru það sumir sem raka saman auðæfum á þessari harmsögu allra þessara mörgu einstaklinga.
Hæstv. félmrh. var að tala um að það ættu ekki að vera tvær þjóðir í landinu. Það eru tvær þjóðir í landinu og það eru tvær þjóðir í raun og veru hér í borginni. Og það eru tvær þjóðir í sambandi við sveitarfélögin þar sem Reykjavíkurborg hefur yfir 30% meira á hvern einstakling í tekjur heldur en önnur sveitarfélög í landinu. Á meðan þetta gengur svo þá þarf enginn að halda það að fólkið, sem fær ekki þá þjónustu sem er meira að segja samkvæmt lögum, sæki ekki hingað þar sem hún er meiri
og þar sem hægt er að byggja milljarða hallir, fleiri en eina, fleiri en tvær, á sama tímabili. Hvernig er svo með börnin, unglingana, fjölskyldurnar sem eru þó hornsteinar hvers þjóðfélags? Hvernig er hugsað um þetta fólk þegar foreldrarnir verða að vinna langan dag og hafa þó ekki fyrir lífsnauðsynjum? Hvernig haldið þið að sé með fólk sem þarf að borga í húsaleigu 35 -- 40 þús. fyrir utan ljós og hita en hafa ekki nema 50 -- 60 þús. kr. á mánuði hvert um sig. Vilja hv. alþingismenn lifa á slíkum launum? Eða konurnar sem eru að missa núna íbúðirnar sínar þrátt fyrir hið góða félagshúsnæðiskerfi sem félmrh. var að guma hér af áðan.
Þá er ég kominn að hæstv. iðnrh. Það er dálítið undarlegt að hlusta á þann söng sem er út af álbræðslunni, út af umræðunum um það mál hér á Alþingi. Ég veit ekki til þess að það hafi farið fram skoðanaskipti á milli þeirra sem vilja álbræðslu og hinna, ekki frá þeirra hendi sem vilja hana. Það hefur verið talað bara frá þeim sjónarhóli að reyna að
skýra málin og það gerði hv. 2. þm. Austurl. af reisn og þekkingu sem hefur ekki farið og fer ekki fram hjá þjóðinni ef hún les þá ræðu. Og hann á þakkir skildar fyrir þær upplýsingar sem þjóðin fær af þessu máli.
En hvað er verið að sækjast eftir að samþykkja? Hvert er innihald þessarar tillögu sem er verið að ræða hér? Það er traustsyfirlýsing á hæstv. iðnrh. og það að fá samþykki fyrir því að halda áfram sem og hann hefur. Það er aðeins traustið til þess að veifa framan í kjósendur í Reykjaneskjördæmi. Það er ekkert annað. Og ég mótmæli því alveg að við sem höfum tekið þátt í þessari umræðu, a.m.k. af minni hálfu, að ég hafi notað þar málþóf. Ég held að iðnrh. ætti að segja frá því hvernig á að borga Blöndu miðað við þá greiðslustefnu sem Landsvirkjun hefur sett fram. Það á að borga hana af því sem íslensku notendurnir greiða á næstu 14 árum. Ég get ekki farið út í það hér nákvæmlega fyrir tímaleysi. En það þyrfti að svara því hér á hv. Alþingi hvernig þetta er hugsað. Hvernig stendur á því að orkuver með línum og spennivirkjum sem kostar um 57 milljarða, hvernig er hægt að selja orkuna innan við 20 mill? Það er gaman að fá það. Ég held að þessir spekingar sem eru síknt og heilagt með tölur ættu að lofa okkur að heyra það.
Það var líka gaman að heyra í hæstv. iðnrh. þegar hann var að tala um verðbólguna á undanförnum árum. Maðurinn sem var allan tímann ráðunautur hverrar ríkisstjórnar eftir aðra. Það væri gaman fyrir hann og hefði átt að minna á það.
Það hefur borist bréf til allra þingflokka sem er vegna þess að bændur víðs vegar af landinu hafa fengið Sigurð Líndal lagaprófessor til að kanna stjórn búvöruframleiðslunnar á undanförnum árum frá lagalegu tilliti. Fram kemur í þessu bréfi að prófessorinn telur að miklir annmarkar séu á lögunum og reglugerðum sem settar hafa verið eftir þeim, einkum með tilliti til stjórnarskrárinnar. Þá hefur framkvæmd þeirra að nokkru leyti farið úrskeiðis að hans mati. Ég held að stjórnvöld og bændasamtökin ættu að fá þessa skýrslu frá prófessornum áður en þau stíga ný skref í þessu máli.
Það er nú ákveðið að boðið verði fram í öllum kjördæmum af félögum mínum. Og áherslupunktar sem við höfum sett fram eru m.a. eftirfarandi: Sjálfstæði Íslendinga í eigin fullvalda landi án erlendrar íhlutunar og án aðildar að Evrópubandalaginu. Aukið lýðræði og jafnrétti. Valddreifing frá miðstýrðu kerfi til fólksins. Öflugar heimastjórnir byggðanna sem tryggi öllum landsmönnum jafnan rétt til aukinna lífsgæða. Byggðum verði úthlutað kvótum í landbúnaði og sjávarútvegi, auðlindir Íslendinga í höndum landsmanna sjálfra. Fjölþætt atvinnuuppbygging íslenskrar framleiðslu en ekki risaálver. Hreint land án rányrkju og mengunar. Mannréttindi, jöfnun þegnanna, bætt réttarkerfi og aukið lýðræði. Lágmarkslaun miðað við það sem nú er 75 þús. kr. á mánuði að raungildi og verði ekki hægt að knýja það fram með öðru móti, þá á að gera það með lögum. Sömu laun karla og kvenna. Skattkerfi þjóðarinnar jafni kjör fólks og
byggða. Löggjöf um hámarksvexti gegn okri í lánaviðskiptum. Fjármagnstekjur verði skattlagðar. Skattþrep verði fleiri en eitt og matarskattur aflagður. Breyttar kosningareglur, aukið valfrelsi kjósenda að velja þingmenn og fulltrúa í sveitarstjórnir. Tryggja þarf frjálsan og jafnan rétt stjórnmálaafla að ríkisfjölmiðlum en á því er mikill misbrestur að það sé.
Stofnun fríhafnar og skattfrjáls svæðis við alþjóðaflugvelli í landinu sem geri Ísland að alþjóðlegri viðskiptamiðstöð. Utanríkisþjónusta verði endurskoðuð. Raforka frá hinu hringtengda flutningakerfi Landsvirkjunar verði seld með sama verði um land allt. Landsvirkjun verði að jöfnu í eign allrar þjóðarinnar. Byggðum verði tryggð aðstaða til þess að geyma og ávaxta eigið aflafé, svo sem lífeyrissjóði og sparifé íbúanna. Stefnt verði að jöfnum lífeyrisréttindum allra landsmanna. Húsnæðislánakerfið taki hliðsjón af kjörum fólks og tryggi verðmæti í kaupum og endursölu fasteigna. Félagslega íbúðakerfið verði aukið og búseturéttur tryggður. Æskan og menntun hennar er framtíð þjóðarinnar. Tryggja þarf velferð og aðstæður ungs fólks til heilbrigðs lífs, svo sem á sviði íþrótta og félagslífs. Fólkið á landsbyggðinni og láglaunafólk í þéttbýlinu verður að standa saman til að verja rétt sinn til þess að geta náð og notið eðlilegra lífskjara.
Samtök jafnréttis og félagshyggju munu bjóða fram með Heimastjórnarsamtökunum um allt land, fyrst og fremst í því augnamiði að koma í veg fyrir að þeir flokkar geti myndað viðreisnarstjórn að loknum kosningum sem ætla að vinna að því að við Íslendingar göngum í EB og eru að móta okkar þjóðfélag í það mynstur sem til þess þarf og að vinna að því nú leynt og ljóst að byggðar verði álbræðslur á næstu áratugum og stefna að því að flytja inn landbúnaðarvörur sem eru í mörgum tilfellum mengaðar og eru ekki í söluhæfu ástandi að mati erlendra heilbrigðisyfirvalda. Fylgni við þessa stefnu hefur komið fram hjá báðum flokkunum, Sjálfstfl. og Alþfl., í þessum umræðum. Þjóðin ætti að átta sig á því hvað er í húfi ef þeir ná meiri hluta á Alþingi Íslendinga í þeim kosningum sem í hönd fara.