Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson) :
Virðulegi forseti. Hvernig getum við bætt lífskjör almennings á næsta kjörtímabili? Hvernig getum við rétt hlut þeirra sem hafa borið skarðan hlut frá borði á samdráttarskeiði? Hverjum er treystandi til þess á næsta kjörtímabili að vinna verkin og skila árangri? Það er nefnilega laukrétt að það er kosið um framtíðina og þess vegna brenna þessar spurningar á vörum manna.
Undanfarnar nætur höfum við, sem hér sitjum, orðið aðnjótandi sýnikennslu í því hvernig fulltrúar tveggja stjórnmálaflokka, Alþb. og Kvennalista, hafa svarað þessum spurningum undir lok kjörtímabils. Þau hafa látið dæluna ganga á andvökunóttum málþófsins. Það væri synd að segja að hv. þm. Hjörleifur Guttormsson svæfi svefni hinna réttlátu að næturþeli þegar hann lætur dæluna ganga ásamt fylgikonum Kvennalistans. Þau fara hamförum gegn þeim staðfasta ásetningi iðnrh. að hrinda í framkvæmd stórvirkjunum á Austurlandi og samningum um nýtt álver á Keilisnesi. Þau vilja kæfa meirihlutavilja þings og þjóðar í síbylju orðaflaums. Þau eru á móti og mörg svör þeirra önnur eru á sömu bókina lærð. Þau eru á móti flestu því sem helst horfir til framfara á næsta kjörtímabili. Hin ráma rödd andvökunnar berst til okkar úr fortíðinni. Vissulega virði ég svörin, en svörin dæma þau líka úr leik.
Virðulegi forseti. Ólíkt höfumst við nú að. Við jafnaðarmenn svörum spurningum kjósenda með því að vísa hvort tveggja til reynslunnar af störfum Alþfl. í ríkisstjórn og til vandaðrar stefnuskrár sem við birtum fyrir kosningar, fjögurra ára áætlunar um það hvernig bæta megi lífskjör Íslendinga á næsta kjörtímabili undir kjörorðinu ,,Ísland í A-flokk --- auðugra mannlíf``.
Ég bið ykkur, sem mál mitt heyrið, berið saman fyrirheit okkar fyrir seinustu kosningar og framkvæmdir okkar á þessu kjörtímabili. Reynslan er ólygnastur dómari og verkin tala. Þau markmið sem við settum okkur voru margvísleg. Að koma verðbólgunni niður á sama stig og í viðskiptalöndum --- hún er nú 5,3%. Að skapa stöðugleika og festu í atvinnulífi og snúa hallarekstri atvinnuveganna í hagnað. Að lækka vexti og verðbólgu. Að beita skattakerfinu í auknum mæli í tekjujöfnunarskyni. Að koma á jafnvægi á peningamarkaði, annars vegar milli greiðslubyrði skuldara og hins vegar ávöxtunarkröfu sparifjáreigenda. Að gefa fólki sem var í biðröð gamla kerfisins nýja valkosti í húsnæðismálum milli séreignar í húsbréfakerfi og félagslegra lausna í kaupleigu. Að efla hlut sveitarfélaga og byggðarlaga í stjórnkerfinu. Að rjúfa 15 ára kyrrstöðu í virkjana- og stóriðjuframkvæmdum. Að laga starfsskilyrði og treysta samkeppnisstöðu íslensks atvinnulífs með því að laga umgjörð þess að frjálsari viðskiptaháttum nýrrar Evrópu.
Virðulegi forseti. Þrátt fyrir samdrátt þjóðarframleiðslu vegna ytri áfalla og þrátt fyrir andóf úrtöluafla þá hefur okkur tekist að þoka þessum málum áleiðis jafnt og þétt að settu marki. Á grundvelli þessa
góða árangurs getum við horft með vaxandi bjartsýni til nýs framfaraskeiðs á nýju kjörtímabili. Engu að síður fer því fjarri að við búum nú í alfullkomnu þjóðfélagi. Þess vegna spyrja margir: Hvers vegna skilar þessi árangur sér ekki strax í buddunni? Hvers vegna hefur kaupmáttur okkar rýrnað? Og sumir af hv. ræðumönnum hér í kvöld hafa nefnt dæmi um það að vissulega hafa margir borið skarðan hlut frá borði. En við erum fljót að gleyma. Hvers vegna er þetta svona? Það er m.a. vegna þess að óðaverðbólga og gengiskollsteypur á liðinni tíð höfðu kaffært fyrirtæki og heimili í skuldum. Það er líka vegna þess að minni sjávarafli og lægra verð á erlendum mörkuðum í tvö og hálft ár á núverandi kjörtímabili rýrði þjóðartekjur okkar um 25 milljarða króna. Þá er minna til skiptanna. Það er líka vegna þess að með langvarandi kyrrstöðu í virkjana- og stóriðjumálum höfum við misst af tækifærum til að renna nýjum stoðum undir verðmætasköpun og hagvöxt. Þannig hefur málþófslið andvökunnar borið ábyrgð á því að við höfum hægt og sígandi verið að dragast aftur úr öðrum þjóðum í lífskjörum. En sem betur fer, þessu tafli hefur verið snúið við, undanhaldið hefur verið stöðvað og á næsta kjörtímabili getum við hafið nýja sókn. Vissulega höfum við orðið að færa fórnir til þess að stöðva hrunadans verðbólgunnar. En það sem skilur á milli feigs og ófeigs er það að nú hafa þessar fórnir ekki verið færðar til einskis. Við höfum náð árangri sem hægt er að byggja á.
Virðulegi forseti. Svör okkar jafnaðarmanna við spurningunni um það hvernig við getum jafnað lífskjör á næsta kjörtímabili eru skýr og undanbragðalaus. Helstu vegvísar á þeirri framfarabraut eru þessir:
Í fyrsta lagi aðlögun að nýrri Evrópu. Fyrst og síðast verðum við að varðveita stöðugleikann og byggja á honum. Það gerum við best með því að ljúka samningum okkar um aðild Íslands að evrópsku efnahagssvæði nú í sumar. Þar með tryggjum við að ekki verður aftur snúið til einangrunar og haftastefnu. Þar með væri stigið stærsta skrefið í sögu þjóðarinnar í átt til nútímalegrar hagstjórnar og frjálsra viðskiptahátta.
Mér þykir miður að hæstv. forsrh. sagði að við alþýðuflokksmenn værum í seinni tíð að daðra við inngöngu í Evrópubandalagið. Það er ekki rétt. Við leggjum á það höfuðáherslu að það er ófrávíkjanlegt skilyrði í þessum samningum að Íslendingar varðveiti forræði sitt óskert yfir auðlindum sjávar og orkulinda og með svolitlu bessaleyfi vil ég árétta kjörorð þeirra framsóknarmanna: Við viljum á næsta kjörtímabili sjá öfluga þjóð í opnu samfélagi og samstarfi við grannþjóðir.
Annar vegvísir á þessari leið er virkjun orkulindanna og stóriðja á þeim grundvelli. Lúkum samningunum um byggingu álvers á Keilisnesi og hefjum framkvæmdir við stórvirkjanir á Austurlandi. Það mun þýða aukinn hagvöxt, auknar gjaldeyristekjur. Það mun þýða stöðugleika í efnahagslífinu. Það mun þýða þúsundir nýrra starfa á byggingartímanum og í framtíðinni og aukið atvinnuöryggi. Það er svarið við spurningunni: Hvernig getum við bætt lífskjörin?
Þriðji stólpinn á þessari leið er að lækka verð á lífsnauðsynjum. Nú vildu allir þá Lilju kveðið hafa sem Alþfl. hefur farið með í gagnrýni sinni á hina misheppnuðu landbúnaðarstefnu sl. ár. Við segjum einfaldlega: Við eigum að komast út úr þessu kerfi. Við þurfum að gera það með því að lækka byrðar skattgreiðenda, lækka verð til neytenda, tryggja afkomu bjargálna bændastéttar og verja landið fyrir gróðureyðingu.
Við höfum samþykkt heimildir til hæstv. fjmrh. um það að hefja fyrsta áfanga á þeirri leið en við skilyrtum stuðning okkar við undirskrift landbrh. því að engir samningar taki gildi eða verði hrundið í framkvæmd án þess að Alþingi segi sitt síðasta orð að loknum kosningum. Þannig að þetta mál er nú í höndum kjósenda. Þeirra er valið hverjum þeir treysta til að gæta hagsmuna neytenda jafnt sem bænda.
Fjórði stólpinn á þessari leið er endurskipulagning í málefnum sjávarútvegs. Þar leggjum við grundvallaráherslu á það að auðlindir sjávarútvegsins eru sameign þjóðarinnar. Að við verðum smám saman að þoka okkur út úr kvótakerfi sem byggir á úthlutun til fárra útvalinna vegna þess að þjóðin á sameiginlega heimtingu á arði af sameiginlegri auðlind sinni.
Og fimmti stólpinn á þessari leið er að skera upp í ríkisfjármálum. Við höfum náð verulegum árangri á þessu kjörtímabili, en við skulum hins vegar viðurkenna það að þar er mikið verk að vinna. Tókuð þið eftir því að fiskvinnslufólk er nú að setja fram þá kröfu að skattfrelsismörk verði hækkuð og það verði leiðin til þess að bæta lífskjör? Hæstv. menntmrh. lýsti furðu sinni á því að Alþfl. hefði ekki stutt tillögur um hátekjuþrep sem ætti síðan að nota til að fjármagna hærri skattfrelsismörk. Svar mitt við hæstv. menntmrh. er þetta:
Við alþýðuflokksmenn, og það hafa fulltrúar Borgaraflokksins líka gert, höfum stutt hugmyndir um að hækka skattfrelsismörkin með hærri persónuafslætti. En til þess þurfum við að svara spurningunni: Hvar ætlum við að fá peningana? Það er misjöfn forgangsröðin. Ég hefði heldur kosið að sjá þau hundruð milljóna sem fóru í þarflausa framkvæmd í Þjóðleikhúsinu nýtta með þessum hætti en þær upphæðir mundu svona nokkurn veginn standast á. Við verðum að svara því með hvaða hætti við viljum draga úr síþenslu ríkisútgjalda ef við ætlum að svara því svo að mark sé takandi á hvernig eigi að lækka skatta.
Virðulegi forseti. Lokaspurningin er þessi: Hverjum getum við treyst til þess að ná árangri? Alþfl. hefur sýnt það í verki á þessu kjörtímabili að hann nær árangri. Reynslan sýnir að það er óhætt að treysta honum til vandasamra verka. Hann sýndi það á erfiðu samdráttarskeiði að hann gefst ekki upp þótt á móti blási. Alþfl. býður fram vandaða stefnuskrá, fjögurra ára áætlun þar sem helstu verkefnin á næsta kjörtímabili eru skilgreind og skynsamlegar lausnir vandlega rökstuddar. Við skilum ekki auðu. Alþfl. er þess vegna valkostur fyrir þá sem vilja hemja öfgaöfl til hægri og vinstri. Alþfl. hefur verið í 75 ár málsvari
lýðræðislegrar jafnaðarstefnu á Íslandi. Hann hefur með verkum sínum lagt grundvöllinn að hinu íslenska velferðarkerfi, hinu íslenska velferðarríki, og við munum sannarlega ekki spara kraftana til að verja það. Alþfl. er því góður valkostur fyrir þá kjósendur sem láta sér ekki nægja mótmæli og málþóf heldur vilja taka til hendinni og láta verkin tala og vilja móta þjóðfélagið í anda nútíma jafnaðarstefnu. Jafnaðarstefnan á það sameiginlegt með sígildri tónlist að hún stenst tímans rás. Hún hefur varanlegt gildi og hún er mannbætandi í orðsins fyllstu merkingu. Þakka ykkur fyrir.