Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson) :
Virðulegi forseti. Það er nú misskilningur að núv. menntmrh. ætli að hætta þeim störfum við kosningarnar heldur gefur hann kost á sér til áframhaldandi starfa. Og þó að Sjálfstfl. sé sigurviss þessa dagana eftir hinn harða landsfund, þá dugir það ekki til þess að það réttlæti það að þingmenn Sjálfstfl. tali með þessari fullvissu um að þeir muni hremma Stjórnarráðið frá og með 21. apríl.
Í öðru lagi spurði ég þingmanninn að gefnu tilefni. Sjálfstfl. skar niður framfærslulán íslenskra námsmanna um 20% á sínum tíma. Sú skerðing hefur sem betur fer verið bætt af núv. ríkisstjórn.
Loks þetta. Það er alveg augljóst mál að um þau mál sem snúa að Lánasjóði ísl. námsmanna hefur tekist mjög góður friður, óvenjulega góður friður. Þannig hefur verið haldið á þessum málum undanfarin ár. Og ég skora á þingmenn hvar í flokki sem þeir standa að hjálpa til þess að sá friður geti haldist.