Fyrirspyrjandi (Málmfríður Sigurðardóttir) :
Virðulegi forseti. Á fundi Vestnorræna þingmannaráðsins í Stykkishólmi árið 1989 voru samþykktar ýmsar ályktanir um norrænar ráðstefnur, þar á meðal um jafnréttismál sem ætti að halda árið 1992 og hana skyldi halda á Íslandi. Nú er að verða nokkuð skammt til stefnu því að slík ráðstefna verður væntanlega nokkuð fjölmenn. Alla vega veit ég að frændur okkar í Færeyjum hyggjast fjölmenna. Slík ráðstefna þarf allnokkurn undirbúning á ýmsan hátt og því hef ég leyft mér að spyrja hæstv. félmrh. á þskj. 738:
,,1. Hefur verið skipuð undirbúningsnefnd fyrir vestnorræna ráðstefnu um jafnréttismál sem halda á 1992?
2. Ef svo er, hverjir eru í henni?
3. Hefur verið sótt um styrk í Norræna menningarsjóðinn eða ,,Vestnorden fonden``?
4. Hvernig er fyrirhugað að kynna þessa ráðstefnu?
5. Hvenær og hvar skal ráðstefnan haldin?
6. Hver á að vera yfirskrift ráðstefnunnar?``
Ég vænti þess að hæstv. ráðherra svari þessum spurningum.