Fyrirspyrjandi (Sólveig Pétursdóttir) :
Hæstv. forseti. Hér legg ég fram fsp. til hæstv. dómsmrh. á þskj. 748 sem hljóðar svo:
,,Hvað líður samningu frv. til laga um breytingu á barnalögunum, m.a. varðandi heimildir foreldra til að fara sameiginlega með forsjá barna sinna eftir skilnað eða samvistarslit?``
Ástæða fyrirspurnar minnar er sú að ýmissa réttarbóta er þörf í þessum málum, bæði hvað snertir rétt foreldra og barna. Það hefur því miður komið of oft fyrir að frv. um þessi málefni hafa ekki hlotið afgreiðslu hér á hinu háa Alþingi og þar með ekki hlotið þá umræðu sem þörf var á. Ég tel ástæðu til þess að draga sérstaklega fram það atriði sem snertir sameiginlega forsjá foreldra með börnum sínum þar sem ég tel mikla þörf á því að þessi valkostur sé fyrir hendi.
Frv. um breytingu á barnalögum nr. 9/1981 var lagt fram á löggjafarþingi 1987. Þetta frv. fól fyrst og fremst í sér ákvæði um sameiginlega forsjá auk ýmissa tæknilegra lagabreytinga. Í athugasemdum við þetta frv. er gerð grein fyrir rökum sem mæla bæði með og á móti slíku fyrirkomulagi. Sifjalaganefnd komst engu að síður að þeirri niðurstöðu eftir ítarlega könnun á málinu, m.a. löggjöf á Norðurlöndum, að rétt væri að þessi valkostur stæði til boða fyrir þá foreldra sem um það væru sammála. Þetta mál var ekki afgreitt.
Sl. haust ætlaði hæstv. dómsmrh. að leggja fram á ný breytingar á barnalögunum, aðallega hvað snerti nýtt hlutverk sýslumannsembætta. Mér er tjáð að ráðherra hafi hætt við framlagningu frv. þar sem hann hafi viljað koma að fleiri atriðum eins og um sameiginlega forsjá og hafi falið sifjalaganefnd það verkefni. Þetta frv. hefur hins vegar ekki enn verið lagt fram á hinu háa Alþingi og því legg ég þessa spurningu fyrir hæstv. dómsmrh.