Fyrirspyrjandi (Sólveig Pétursdóttir) :
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. dómsmrh. fyrir skýr og skilmerkileg svör og ég fagna því að þetta mál er komið svo langt. Mig langar til að gera aðeins grein fyrir rökum með sameiginlegri forsjá eins og þau koma fram í frv. sem lagt var fram á þinginu 1987 um breytingar á barnalögunum. Þar segir m.a.:
,,Hinar nýju reglur um sameiginlega forsjá höfða til ábyrgðarkenndar foreldra, stefna að því að gera þá báða virka, þrátt fyrir samvistaslitin, um málefni barnsins, umönnun þess og ákvarðanir sem varða undirbúning að ævistarfi. Jafnframt má ætla að þetta fyrirkomulag stuðli að auknum tengslum barns og þess foreldris sem það býr ekki hjá.
Alkunna er hve mikil átök og togstreita verða oft milli foreldra, er skilja, út af forsjá barna. Samningur um sameiginlega forsjá getur haft það gildi að lægja öldurnar, foreldri getur betur sætt sig við að barnið búi hjá hinu ef því er tryggður afskiptaréttur af persónuhögum barns og hlutdeild í umsýslu vegna fjármála þess. Getur þetta dregið úr þeirri spennu sem oft ríkir milli foreldranna út af forsjármálum, en hún bitnar oft harkalega beint og óbeint á barninu.
Sameiginleg forsjá hefur einnig þann kost með sér að ef annað foreldra andast eða verður óhæft til þess að gegna forsjánni þá er fyrir að fara skipan sem ræður forsjármáli þegar til lykta án þess að til afskipta stjórnvalda þurfi að koma.
Heimild til að semja um sameiginlega forsjá er líkleg til að auka jafnstöðu foreldra, giftra og ógiftra, mæðra og feðra, sem er grunnviðhorf í sifja - og erfðarétti. Ef vel er ætti slíkt fyrirkomulag að auka öryggiskennd barnsins sem oft og einatt á þá ósk heitasta að njóta beggja foreldra sinna eftir því sem fært er, njóta trúnaðar þeirra og hlíta leiðsögn þeirra.
Þetta fyrirkomulag um sameiginlega forsjá gæti því dregið úr fjölda forsjárdeilumála og er það svo sannarlega þarft því að slíkar deilur bitna fyrst og fremst á barninu sjálfu.``
Þá langar mig til þess að segja frá stuttri grein eftir einstæðan föður sem kemur fram í afmælisblaði Félags einstæðra foreldra 1969 -- 1989 þar sem hann lýsir góðri reynslu sinni af þessu fyrirkomulagi þar sem foreldrarnir höfðu samið um sameiginlega forsjá. Þar segir m.a.:
,,Yfir höfuð verður samkomulag foreldranna að vera gott, ekki sé verið að nota börnin til að koma beinum eða óbeinum skilaboðum á milli og að hvorugt foreldranna reyni að kaupa sér vinsældir hjá börnum á kostnað hins. En kostirnir eru helst þeir að börnin njóta samveru við báða foreldrana jafnt og foreldrarnir jafnt við börnin. Einnig kemur ekki til aðskilnaðar systkina eins og við venjulega forræðisskiptingu.``
Það er því von mín að þetta frv. sjái sem fyrst dagsins ljós og verði lagt fyrir á hinu háa Alþingi.