Aðflutningsgjöld af leigubifreiðum
Föstudaginn 15. mars 1991


     Fyrirspyrjandi (Guðmundur Ágústsson) :
    Virðulegi forseti. Ég hef lagt hér fram fsp. á þskj. 817 til fjmrh. um aðflutningsgjöld af leigubifreiðum. Fyrirspurnin er á þessa leið:
    ,,Stendur til að lækka aðflutningsgjöld af leigubifreiðum til samræmis við aðflutningsgjöld af öðrum bifreiðum til mannflutninga?``
    Ástæða þessarar fsp. ætti fjmrh. ekki að koma á óvart. Lengi hafa leigubifreiðastjórar barist fyrir því að aðflutningsgjöld af atvinnutækjum þeirra yrði lækkuð til samræmis við þá aðra sem stunda fólks - og vöruflutninga. Eins og ástatt er nú greiða leigubifreiðastjórar 56 -- 76% innflutningsgjöld af atvinnutækjum sínum meðan t.d. sendibifreiðastjórar og eigendur minni rútubifreiða greiða einungis 30% innflutningsgjöld. Innflutningsgjöld af stærri rútubifreiðum eru aðeins 17%. Gætir þarna mikils og óréttmæts mismunar á milli starfsstétta. Einnig er í hæsta máta óeðlilegt að atvinnutæki sem menn byggja lífsafkomu sína á séu sett í lúxustollflokk. Eitthvað mundi vera sagt hér á hinu háa Alþingi ef dráttarvélar yrðu settar í sams konar tollflokk.
    Að lokum, virðulegi forseti, leyfi ég mér að vitna í grein Þóris Guðmundssonar sem birtist í blaði leigubifreiðastjóra, en þar segir m.a.:
    ,,Þá vil ég leggja áherslu á það að afgreiðsla þessa máls ræður úrslitum um afkomu og framtíð margra leigubifreiðastjóra og ekki síður um það hvernig þeir bílar verða sem í framtíðinni verða notaðir til leiguaksturs. Þar er um stórmál að ræða, ekki aðeins hvað varðar afkomumöguleika manna heldur einnig hvað varðar öryggi bæði farþega og ökumanna. Í dag eru 56% atvinnutækja leigubifreiðastjóra fjögurra ára eða eldri eins og fram kemur og endurnýjun hefur hrapað niður úr öllu valdi. Verði sama ástand í tollamálum að liðnu ári verður ástandið enn verra. Það er fullvíst að margir standa þetta ekki af sér fjárhagslega.``