Jóhann Einvarðsson :
Hæstv. forseti. Meðlimir í fjh. - og viðskn. þessarar hv. deildar hafa litið yfir þetta mál milli 2. og 3. umr. og fengið ábendingu um að nauðsynlegt væri að breyta einu orði. Hefur verið ákveðið að flytja svohljóðandi skriflega brtt. við 3. umr.: ,,Í stað orðsins ,,Deildinni`` í upphafi 4. efnismálsliðar 2. gr. komi: Stjórn Byggðastofnunar.`` Deildin er að sjálfsögðu ekki sjálfstæður aðili frekar en aðrar deildir þessarar stofnunar til þess að taka slíkar ákvarðanir og eðlilegt að það sé stjórn Byggðastofnunar sem er heimilt að grípa til ráðstafana til að vernda eignir sínar. Og því höfum við ákveðið í fjh. - og viðskn. að flytja þessa brtt.