Jóhann Einvarðsson :
    Hæstv. forseti. Ég held að við þurfum ekki að ræða mikið um nauðsyn þess að kaupa þyrlu hingað til landsins. Um það erum við öll sammála. Hins vegar hefur þetta mál þvælst hér víða í þinginu sem er okkur ekki til sóma. Ég segi já við þessari tillögu fyrst og fremst vegna þess að í lið 5.4.0 í fjárlögunum er ríkisstjórninni gefin heimild til þess að ganga til samninga um kaup á björgunarþyrlu fyrir Landhelgisgæslu Íslands og taka til þess nauðsynleg lán að því tilskildu að önnur fjármögnun komi til, m.a. af happdrættisfé. Þetta tel ég nægilega skýringu til þess að ljúka þessu máli og segi já.