Þorv. Garðar Kristjánsson :
Herra forseti. Forseti virðist albúinn til þess að taka til 3. umr. frv. um breytingu á stjórnskipun landsins sem við vorum að afgreiða við 2. umr. fyrir augnabliki. Ég geri mér grein fyrir því að það þarf að hafa hraða á þingstörfum, en ég geng út frá því að Alþingi verði ekki slitið í dag. Þess vegna rekur okkur engin nauður til þess að taka málið til 3. umr. nú. Mér þykir það slík óvirðing við þetta mál að það ættu allir að geta verið sammála því að veita ekki afbrigði nú, hvort sem þeir eru efnislega með þessu máli eða á móti. Ég vil því leggja það til við hæstv. forseta að þetta mál verði ekki tekið til umræðu og ekki leitað eftir afbrigðum vegna þeirrar algeru sérstöðu sem þetta mál hefur sem er ein mikilvægasta breyting á stjórnarskrá landsins, eins og ég hef tekið áður fram, frá 1874.