Afgreiðsla frv. um stjórnarskipunarlög
Föstudaginn 15. mars 1991


     Forseti (Jón Helgason) :
    Þetta mál er búið að vera á dagskrá á mörgum fundum til 2. umr. þannig að það hefur verið nægur tími fyrir hv. deildarmenn að skoða það. Það var ekki tekið með afbrigðum til 2. umr. en það er mjög algengt að fyrir málum sem yfirgnæfandi meiri hluti er fyrir séu veitt afbrigði. Ég mun því leita eftir áliti hv. deildarmanna.