Skúli Alexandersson :
    Herra forseti. Fjh. - og viðskn. þessarar hv. deildar hefur fjallað um frumvarpið. Nefndin náði ekki samkomulagi en meiri hl. nefndarinnar leggur til að frumvarpið verði samþykkt eins og það var samþykkt í Nd. Breytingartillaga mun vera flutt af Guðrúnu J. Halldórsdóttur og mun vera mælt fyrir henni af öðrum aðila hér.
    Meiri hl. nefndarinnar, sem er skipaður Guðmundi Ágústssyni, Jóhanni Einvarðssyni, Eiði Guðnasyni og Skúla Alexanderssyni, leggur til að málið verði samþykkt.