Leikskóli
Föstudaginn 15. mars 1991


     Frsm. meiri hl. menntmn. (Eiður Guðnason) :
    Herra forseti. Menntmn. þessarar hv. deildar kom saman til fundar hér fyrir skömmu. Nefndin fjallaði um frv. til laga um leikskóla. Meiri hl. nefndarinnar mælir með því að frv. verði samþykkt með þeirri breytingu sem gerð var á því í meðförum Nd.
    Það væri kannski ástæða til að fara um þetta mál einhverjum fleiri orðum hér, en ég mun ekki gera það að þessu sinni vegna þess hvernig hagar til og þingstörfum nú er háttað. Meiri hl. nefndarinnar mælir með því að málið verði samþykkt óbreytt. Undir nál. skrifa auk þess er þetta mælir Valgerður Sverrisdóttir, Skúli Alexandersson og Jón Helgason.