Frsm. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson) :
    Herra forseti. Við 2. umr. þessa máls var hér í deildinni vakin athygli á því að lögfræðingur hér í bænum hafði fundið misræmi í lagatexta og í greinargerð. Þegar farið var að athuga þetta nánar kom í ljós að hann hafði rétt fyrir sér.
    Fjh. - og viðskn. hefur tekið málið til umfjöllunar, fallist á ábendingar sem fram hafa komið og flytur brtt. á þskj. 972. Þessar brtt. eru nú ekki stórvægilegar en verða þó til að skýra málið. Þessar villur í lagatextanum eru aðallega vegna misprentunar. Og nefndin leggur til að frv. verði samþykkt með þessum breytingum.