Fjáraukalög
Föstudaginn 15. mars 1991


     Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson) :
    Virðulegi forseti. Eins og fram hefur komið hjá hv. þm. Árna Gunnarssyni þá var um þessi mál rætt við afgreiðslu fjárlaga. Ætlunin er að næstu daga muni fulltrúar heilbrrn. og fjmrn. fara yfir þær tillögur sem fram hafa komið frá ríkisspítulunum. Það hefur ekki gefist tími til þess að gera það milli ráðuneytanna, m.a. vegna þess að það er tiltölulega stutt síðan tillögurnar komu fram frá ríkisspítulunum. Það er síðan ætlun mín og hæstv. heilbrrh. að við munum gera tillögu til ríkisstjórnar í framhaldi af þeirri athugun um ákveðna upphæð sem ríkisstjórnin skuldbindur sig til þess að gera tillögu um varðandi fjáraukalög og er væntanlega einnig hægt að hafa samráð við stjórnarandstöðuflokkana um það mál.
    Ég vil lýsa þeirri skoðun hér sem hefur komið fram af hálfu Alþb. að við teljum nauðsynlegt að það komi þing saman hér í síðasta lagi í lok maí til þess að afgreiða ýmis mál, m.a. fjáraukalög. Ég tel satt að segja ekki rétt og ekki verjandi, hvorki lýðræðislega né efnislega, að þinginu ljúki hér um miðjan mars og komi ekki aftur saman fyrr en 10. okt. Það er ekki í neinu samræmi við nútímavinnubrögð í stjórn landsins og sérstaklega slæmt varðandi meðferð ríkisfjármála. Ef það gengi eftir að hér yrðu flutt fjáraukalög seinni partinn í maí, þá á þetta allt saman að geta tekist og yfirvöld ríkisspítalanna í sínum áætlunum gengið út frá þeirri pólitísku vissu að sú tillaga sem ríkisstjórnin hefði gert og samþykkt á næstu dögum yrði kynnt t.d. fulltrúum stjórnarandstöðunnar í fjvn., yrði lögð til grundvallar í þeim fjáraukalögum.
    Ég vona að það sé sú meðferð málsins sem fullnægi bæði stjórn ríkisspítalanna og öðrum sem láta sig þetta mál varða.