Fjáraukalög
Föstudaginn 15. mars 1991


     Forseti (Geir H. Haarde) :
    Hæstv. fjmrh. hefur borið fram formlega ósk um að haldinn verði fundur í fjvn. þingsins. Forseti væntir þess að ef hv. formaður fjvn. hyggst verða við þeirri ósk, þá geri hann forseta viðvart ef hann óskar eftir því að deildin geri hlé á störfum sínum á meðan.
    Forseti vill upplýsa að í þessari umræðu um þingsköp hafa nú talað átta aðilar. Það hafa verið haldnar hér átta ræður, þar af ein úr hópi stjórnarandstæðinga, sjö af hálfu stjórnarliða, þar af þrjár af hálfu ráðherra. Enn eru fjórir á mælendaskrá og er það ósk forseta og sjálfsagt ráðherra líka að þeir sem eiga hér eftir ótalað reyni að tempra mál sitt og stytta eftir föngum og halda sig við umræður um þingsköp til þess að unnt verði að ganga til dagskrár hér á fundinum og afgreiða öll þau brýnu mál sem hér liggja fyrir.