Fjáraukalög
Föstudaginn 15. mars 1991


     Forseti (Geir H. Haarde) :
    Í tilefni ummæla hv. síðasta ræðumanns varðandi það hvort forseti mundi hlutast til um að gera hlé á fundum deildarinnar til þess að ríkisstjórninni gæfist ráðrúm til að boða til fundar, þá vill forseti taka það fram að forsetastólnum hefur ekki borist neitt erindi frá réttum aðilum um það efni og mun forseti ekki hafa frumkvæði að því að boðað verði til ríkisstjórnarfundar og hlé gert á deildarstörfunum á meðan.
    En forseti vill ítreka það sem hann áður sagði að hér liggja mörg mál fyrir deildinni á útbýttri dagskrá og það er brýnt að geta hafið störf og greiða úr þeim málum. Forseti vill því ítreka fyrri óskir um að menn reyni eftir föngum að stytta mál sitt og halda sig við umræðu um þingsköp á þeim grundvelli sem málshefjandi markaði.