Fjáraukalög
Föstudaginn 15. mars 1991


     Pálmi Jónsson :
    Herra forseti. Ég vil gjarnan taka tillit til óska hæstv. forseta um, eins og hann orðaði það, að leitast við að hemja mál mitt, ég held að ég noti hans óbreytt orð. En ég hlýt að vekja á því athygli að það er hæstv. aðalforseti þessarar virðulegu deildar, hv. 3. þm. Norðurl. e. Árni Gunnarsson, sem hóf þessa umræðu um þingsköp. Það er frekar óvenjulegt að forsetar hefji umræðu um þingsköp þannig að þó ekki sé nú annað en það, þá hefur hæstv. aðalforseti deildarinnar, hv. þm. Árni Gunnarsson, farið hér af stað með umræðu með nokkuð óvenjulegum hætti, en þó þannig að það er ekki hægt að meina óbreyttum þingmönnum að taka þátt í henni með eðlilegum hætti. Eigi að síður skal ég leitast við að verða við tilmælum hæstv. forseta, Geirs H. Haarde, um að stytta mál mitt.
    Það var augljóst að hæstv. fjmrh. kveinkaði sér undan þessari umræðu. Hann sagði að vegna orða minna hér í ræðu áðan væri veruleg hætta á því að fjölmiðlamenn og þjóðin færu að taka mark á einhverju öðru heldur en því sem hæstv. fjmrh. heldur sjálfur fram. Og hæstv. fjmrh. vildi þess vegna auðvitað fyrir alla muni komast hjá því að umræða um þessi mál færi fram eins og hún hefur gert hér í dag. Umræðan er að sjálfsögðu hin þarfasta.
    Það var rakið hér í ýmsum greinum í máli hv. 1. þm. Reykv. að í fréttatilkynningum hæstv. ráðherra er jafnan slegið fram fullyrðingum og leitast við að styðja þær tölum sem í raun og veru eru allar rangar. Og það er auðvitað af þessum sökum, eins og ég sagði í fyrri ræðu, að hæstv. fjmrh. kýs ekki að leggja fram fjáraukalög fyrir árið 1990 vegna þess að það er frv. sem fer til athugunar í þingnefnd, í fjvn., þar sem þingnefnd sem er vön að fást við slík mál fer ofan í kjölinn á málunum og dregur fram þær upplýsingar sem hæstv. ráðherra kýs að ekki komi fram. Fjvn. getur þess vegna og hefur burði til að koma frv. í breyttu formi fyrir Alþingi þannig að sannleikurinn komi í ljós. Það er þetta sem hæstv. fjmrh. óttast. Það er þetta sem hæstv. fjmrh. kveinkar sér undan hér í þessari umræðu og á er vakin athygli. Og það er þetta sem ræður því að hæstv. fjmrh. hefur kosið að leggja ekki fram fjáraukalagafrv. fyrir árið 1990.
    Hæstv. fjmrh. var með sínar afsakanir og útskýringar á því hvers vegna þetta hefði ekki verið gert og þær voru heldur aumkunarverðar. Hann bar í fyrsta lagi á móti því að forustumenn í fjvn. hefðu verið eitthvað að ganga eftir því að þetta frv. væri lagt fram. En það vill svo til að hér í þessari sömu umræðu hafa komið í ræðustól bæði formaður fjvn. og varaformaður fjvn. og greint frá því að þeir hafi gengið eftir því hjá hæstv. fjmrh. að frv. væri flutt. Og hv. 1. þm. Vesturl., varaformaður fjvn., hefur greint frá því og staðfest það að ég hafi krafist þess á fundum nefndarinnar að þetta yrði gert. Svo kemur hæstv. fjmrh. og segir: Fjárveitinganefndarmenn hafa ekkert verið að eltast við mig með það að biðja um að þetta sé flutt. --- Er að furða þó að þessi hæstv. ráðherra sé farinn úr salnum, sem ekki þorir að hlusta á það

hvernig hann sjálfur í sömu umræðunni fer með staðlausa stafi og er borið til baka hér af forustumönnum fjvn. hverjum á fætur öðrum. Er að furða þó hæstv. fjmrh. sé horfinn á braut.
    Þá sagði hæstv. fjmrh. að það hefði verið hæpið að það þjónaði einhverjum tilgangi að vera að leggja fram fjáraukalagafrv. í febrúar vegna þess að þinginu mundi ljúka í mars, og vitnaði til þess að á síðasta ári tók fjvn. sér drjúgan tíma til að fjalla um þessi mál, bæði fjáraukalög fyrir árið 1989 og fjáraukalagafrv. fyrir árið 1990 sem flutt var vegna kjarasamninga í febrúar. Í fyrsta lagi var það nú vegna þess að þá þurfti að yfirfara frv. vegna breytinga á formi og það var í sjálfu sér ekkert sem rak sérstaklega á eftir afgreiðslu málsins í fjvn. og á Alþingi fyrr en það væri öruggt að það kláraðist fyrir þinglok, sem og varð.
    Fjvn. er því vön að leggja á sig mikla vinnu og ef koma fram kröfur í fjvn. um að frv. sé flutt sem þar á að fjalla um, þá er ekki að efa það að á því er tekið innan nefndarinnar, í málið er kafað og það er afgreitt úr nefndinni með eðlilegum hætti þó svo að nefndin hafi ekki margar vikur til umráða, a.m.k. ekki marga mánuði. En ég fullyrði að þessi afsökun hæstv. fjmrh. er röng.
    Þá kom að þeirri sérkennilegu yfirlýsingu hæstv. fjmrh. um að það væru svo miklar annir í fjmrn. að það hefði ekki unnist tími til að útbúa þetta frv. Ja, einhverjum verður nú spurn. Það eru ekki svo miklar annir í fjmrn. að það gefist ekki tími til að útbúa allar þær fréttatilkynningar sem hæstv. fjmrh. hefur verið að birta í fjölmiðlum í sinni tíð. Það hefur verið nógur tími til þess í fjmrn. að útbúa öll þau gögn sem hæstv. fjmrh. hefur verið að birta í fjölmiðlum og eru áróðursgögn. Og það hefur verið nógur tími til þess í fjmrn. að semja þessa skýrslu um ríkisfjármál árið 1990, þessa bók hér, sem lögð er fram á Alþingi fyrir fáum dögum og er því marki brennd að hún birtir niðurstöður eins og hæstv. fjmrh. kýs að leggja þær fyrir, á þann hátt að þetta er eins konar fréttatilkynning, eins konar skýrsla sem lögð er fyrir Alþingi, en Alþingi hefur enga möguleika til þess að fjalla um í nefnd og fara ofan í lið fyrir lið. Það var nógur tími til þess í fjmrn., hæstv. fjmrh., að búa út þetta plagg og allar þær fréttatilkynningar sem hæstv. fjmrh. hefur látið frá sér fara, og að búa út í hendur hæstv. ráðherra það áróðursstagl sem hann hefur flutt fjölmiðlum á undangengnum mánuðum og missirum. Það hefur verið tími til þess.
    Auðvitað var nægur tími til þess í fjmrn. að ganga frá fjáraukalagafrv. og það átti vitaskuld að gera það og með fjáraukalagafrv. gat hæstv. fjmrh. látið útbúa greinargerð eins og honum þóknaðist, þ.e. láta þar koma fram skýrslu fjmrh. til Alþingis því að þetta er afbrigðilegt plagg og ekkert sem gerir ráð fyrir því að slík skýrsla sé flutt. Það er ekki hlutverk fjmrh. né fjmrn. að leggja fram skýrslu um ríkisfjármál á Alþingi. Það er ekki hlutverk fjmrn. né ráðherra. Það er á hinn bóginn hlutverk Ríkisendurskoðunar að taka saman skýrslu um framkvæmd fjárlaga og birta þá skýrslu á Alþingi.

    Hæstv. fjmrh. á ekki, og það er ekki í samræmi við hans hlutverk, að taka saman skýrslu um sín eigin verk og sitt eigið ágæti og birta það Alþingi. Það er hlutverk Ríkisendurskoðunar. Á hinn bóginn gat hæstv. fjmrh. lagt fram í greinargerð fjáraukalagafrv. það sem honum þóknaðist. Það var hans skýrsla. En fjáraukalagafrv. mátti ekki flytja á eðlilegum tíma vegna þess að þá hafði þingnefnd, sem er vön að fást við mál, aðstöðu til að kafa í málin og kalla eftir upplýsingum og sýna fram á rangfærslurnar í málflutningi hæstv. ráðherra. Það var þetta sem ekki mátti. Þetta er af sama toga og hann kveinkar sér hér undan því í umræðunni að hér sé því haldið fram af einstökum þingmönnum sem er eitthvað annað heldur en hann sjálfur segir og heldur en hann sjálfur vill láta gott heita. Hann lýsti því sjálfur að hann óttaðist það að fjölmiðlamenn og þjóðin gætu farið að trúa einhverju öðru heldur en því sem hann sjálfur segir. Þess vegna var þessi umræða hættuleg fyrir hæstv. fjmrh. Þess vegna kveinkaði hann sér svona undan þessari umræðu.
    Ég hlýt að benda hæstv. fjmrh. á að það sem ég sagði í minni fyrri ræðu var í raun staðfest af formanni fjvn., hv. 5. þm. Vestf., og af hv. varaformanni fjvn., hv. 1. þm. Vesturl. Hv. formaður fjvn. sagði orðrétt í sinni ræðu, með leyfi forseta, ég skrifaði það eftir honum: ,,Allar tölur sem gefnar eru út um afkomu ríkissjóðs eru bráðabirgðatölur þangað til fjáraukalög hafa verið afgreidd.``
    Orð hv. formanns fjvn. sem ég hef hér flutt staðfesta það að það sem hæstv. fjmrh. hefur verið að halda fram um afkomu ríkissjóðs á síðasta ári er það sem hv. þm. Sighvatur Björgvinsson auðvitað kallar með kurteislegu orðalagi sem sjálfsagt er, hann er nánasti samverkamaður hæstv. fjmrh. hér af hálfu þingmanna, hann kallar það með kurteislegu orðalagi bráðabirgðatölur. Ég kallaði það í minni ræðu að hæstv. fjmrh. hefði farið með áróðurstal. Og með kurteislegu orðalagi hefur hv. 5. þm. Vestf., formaður fjvn., sagt í raun hið sama. Hæstv. ráðherra hefur birt bráðabirgðatölur en hann hefur komið sér undan því að leggja málið fram á þingskjali hér á þinginu í fjáraukalagafrv. þannig að það er ekki hægt að fara ofan í málið í þingnefnd til þess að kafa í það og sýna fram á allar rangfærslurnar og vitleysur sem í þessu eru og allt áróðursbullið. Þannig er nú staðan.
    Hæstv. fjmrh. bauð upp á það að Sjálfstfl. færi að tilnefna einhverja menn til þess að koma til viðræðna við starfsmenn fjmrn., til að fara yfir það hvernig þessi mál stæðu. Sjálfstfl. þarf ekki að tilnefna neina menn til þess. Sjálfstfl. hefur tilnefnt sína menn í fjvn. Alþingis og það er þar sem á að fara ofan í þessi mál og það er þar sem hæstv. fjmrh. átti að leggja málin fyrir. En það er þar sem hann kemur sér undan því að málin séu tekin til athugunar til þess að hann geti haldið áfram að vaða elginn í sínu áróðurstali og blekkingum um afkomu ríkissjóðs og einstaka þætti ríkisfjármála, eins og hann hefur gert á undanförnum mánuðum. Og svo segir hann hér í þessum ræðustól að það sé bara mikil hætta á því að fjölmiðlamenn og

þjóðin geti farið að taka mark á því sem einstakir þingmenn séu að segja hér á Alþingi um fjármál ríkisins sem er ekki nákvæmlega það sama eins og hann segir. Og hann líkti mér við glæpareyfarahöfund. Honum er það velkomið. (Gripið fram í.) Það sem ég hef talað og það sem ég hef skrifað hefur verið mest um afrek þessa hæstv. ráðherra, um það háttalag hans sem felst í störfum hans sem ráðherra. Og ætli það sé þá ekki þar að leita þeirrar sögupersónu sem hann er hér að gefa í skyn að ég vilji fjalla eitthvað um. Það er nokkuð nærri lagi. Hann er eitthvað að tala um sjálfan sig í þessu efni.
    Virðulegi forseti. Ég skal stytta mál mitt. Þetta er vitaskuld viðamikið mál, en það er sjálfsagt að verða við óskum um að stytta mál mitt.
    Hv. 1. þm. Reykv. bar fram kröfu þess efnis að nú yrði lagt fram fjáraukalagafrv. Ég tek undir það. En það er sjálfsagt að vekja á því athygli eigi að síður að þó að fjáraukalagafrv. væri lagt fram á morgun eða í dag, þá er ekki mikill tími eins og nú er komið til þess að fara ofan í málið í þingnefnd og skoða hvað þar vantar, hvaða tölum er haldið utan við uppgjörið og hvaða tölur eru þar teknar inn á hæpnum forsendum, hvað það er sem hæstv. ráðherra er að leyna þegar hann leggur fram slíkt plagg og hvað það er sem hann er að geyma í sínum skúffum en þarf að draga fram í dagsljósið til þess að staða mála sé metin og störf þessa hæstv. ráðherra í fjmrn. Þannig að þó að það bætist við einn eða tveir dagar í þingi, þá er auðvitað nú komið svo að það er orðinn lítill tími til þess að sýna fram á það sem nauðsynlegt er að komi í dagsljósið í þessum efnum.