Almannatryggingar
Föstudaginn 15. mars 1991


     Anna Ólafsdóttir Björnsson :
    Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nál. heilbr. - og trn. um þetta mál. Álitið er svohljóðandi:
    ,,Nefndin hefur fjallað um frv. og leggur til að það verði samþykkt.
    Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir og Ragnhildur Helgadóttir voru fjarstaddar afgreiðslu málsins.``
    Undir þetta rita Jón Sæmundur Sigurjónsson, Anna Ólafsdóttir Björnsson, Geir H. Haarde, Guðmundur G. Þórarinsson og Geir Gunnarsson.