Leikskóli
Föstudaginn 15. mars 1991


     Frsm. meiri hl. menntmn. (Ragnar Arnalds) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um leikskóla. Nefndin hefur fjallað um frv. á nokkrum fundum en menn hefðu vissulega viljað fá miklu lengri tíma til þess að fjalla um þetta stóra mál. Nefndin fékk á sinn fund til viðræðna um það Berg Felixson, framkvæmdastjóra Dagvistar barna í Reykjavík, Selmu Dóru Þorsteinsdóttur, formann Fóstrufélags Íslands, Jónínu Bjartmarz, Odd Sigurðsson og Stefaníu Björnsdóttur frá Samtökum foreldra barna í leikskóla. Einnig barst nefndinni kostnaðarumsögn um frv. frá fjmrn. og umsögn um frv. frá Sambandi ísl. sveitarfélaga.
    Það er forsaga þessa máls að í janúarmánuði 1989 skipaði menntmrh. nefnd til þess að endurskoða lög um byggingu og rekstur dagvistarheimila fyrir börn í þeim tilgangi að skapa ramma um nýtt skólastig, forskólastig fyrir börn undir skólaskyldualdri. Nefndinni var einnig falið að gera áætlun um uppbyggingu og rekstur dagheimila og leikskóla næstu tíu ár og um æskilegt fyrirkomulag á stofn - og rekstrarkostnaði. Þetta var allfjölmenn og mjög vel skipuð nefnd sem skilaði áliti í formi tveggja frv. þar sem annars vegar var um að ræða frv. til laga um leikskóla og hins vegar frv. til laga um ríkisframlag til sveitarfélaga vegna leikskóla.
    Eftir að frv. kom til ríkisstjórnarinnar munu hafa verið gerðar á því nokkrar breytingar en síðan var það lagt hér fram á Alþingi og þá er það auðvitað kjarni máls að frv. var það seint fram komið að það var útilokað að það fengi venjulega meðferð þingmála með því að það væri sent til umsagnar fjölmargra aðila heldur áttu nefndarmenn einungis um það að velja annaðhvort að ræða málið stuttlega við þá sem höfðu staðið að gerð þess og áttu þar hagsmuna að gæta og afgreiða síðan málið inn í þingið á nýjan leik þannig að þar yrði ákveðið hver yrðu frekari örlög frv., nú eða þá að láta það liggja.
    Það kom fljótt í ljós að mikill áhugi var á því meðal samtaka foreldra barna í leikskóla og meðal fóstra að mál þetta yrði afgreitt. Og þótt nefndinni hefði þótt betra að hafa meiri tíma til að fjalla um frv., þá vildi nefndin eða meiri hl. hennar, sem ég er hér að mæla fyrir, ekki taka ábyrgð á því að láta málið liggja og sofna í nefnd eins og það heitir heldur vildi afgreiða málið, sérstaklega með tilliti til þess að búið var að afgreiða frv. til laga um félagsþjónustuna. Síðan er þá bara að sjá hvort einhver möguleiki er á því að málið hljóti hér afgreiðslu.
    Ég hlýt að láta þess getið að Samband ísl. sveitarfélaga sendi okkur samþykkt þar sem mælt var á móti því að málið yrði hér afgreitt, fyrst og fremst á þeirri forsendu að málið þyrfti nánari athugunar við. Hins vegar er það nú ekki svo að Samband ísl. sveitarfélaga hafi hvergi nærri þessu máli komið því að málið var rætt við forustumenn Sambands ísl. sveitarfélaga fyrr á þessum vetri, kynnt fyrir þeim og hlustað á þeirra athugasemdir áður en frv. var lagt fram.
    Það er auðvitað ævinlega nokkurt álitamál hversu

mikinn hraða á að hafa á málum og hvort mál séu á þann veg komin að forsvaranlegt sé að afgreiða þau. Kannski er aðalágallinn á þessu máli fyrst og fremst sá að það skuli ekki vera stærra og meira um sig en það er hér. Margir hefðu viljað sjá frv. til laga um ríkisframlag til sveitarfélaga vegna leikskóla verða fylgifrv. þessa frv. hér á leið í gegnum Alþingi. En af því varð ekki vegna þess að ekki náðist samkomulag um það. Ég hygg að það sé nú einmitt aðalágallinn á þessu máli í heild að það er ekki mikið fjármagn til þessarar nauðsynlegu starfsemi sem fylgir þessu frv. út af fyrir sig.
    Hins vegar var það eftirtektarvert að við umræður um málið í hv. menntmn. komu ekki fram neinar brtt. við frv. aðrar en sú eina sem meiri hl. nefndarinnar flytur á þskj. 901. Sú brtt. er ákaflega einföld. Hún er varðandi síðasta málsl. 1. gr. um að hann orðist svo: ,,Leikskóli er samkvæmt lögum þessum fyrir börn frá þeim tíma að fæðingarorlofi lýkur til sex ára aldurs.`` En í frv. er gert ráð fyrir því að þetta sé þannig orðað að leikskólinn sé fyrir börn frá hálfs árs aldri eða frá þeim tíma að fæðingarorlofi lýkur. Þetta þótti nefndarmönnum óþarfi og þetta var reyndar eina brtt. sem var á ferðinni meðal þeirra sem fjölluðu um þetta mál þannig að það virtist ekki vera nein efnisleg andstaða gegn málinu eða hugmyndir um að það þyrfti að breytast með einum eða öðrum hætti. Og það var kannski alveg sérstaklega með þetta í huga sem meiri hl. nefndarinnar taldi að það ætti þá varla að vera svo ótímabært að koma málinu til umræðu hér við 2. umr. hversu mikill tími sem verður síðan til þess að afgreiða málið endanlega.
    Virðulegi forseti. Ég hef hér gert grein fyrir brtt. og nál. meiri hl. menntmn. Nefndin mælir með samþykkt frv. með þessari breytingu.