Frsm. 2. minni hl. menntmn. (Sólveig Pétursdóttir) :
Hæstv. forseti. Það frv. sem hér er til umræðu er fyrir margar sakir afar merkilegt. Ég verð að lýsa furðu minni á þeim vinnubrögðum sem viðhöfð hafa verið af hálfu ríkisstjórnarinnar í þessu máli. Deilur milli ráðherra, þ.e. hæstv. menntmrh. og hæstv. félmrh., urðu til þess að þetta frv. kom ekki til afgreiðslu fyrr en á síðustu dögum þingsins. Þá var þetta mál allt í einu afgreitt út úr hv. menntmn. þessarar deildar án þess að nokkurt færi gæfist á efnislegri umfjöllun þess. Það fólk sem segir í nál. meiri hl. að hafi komið til viðræðna um málið kom aðeins á þennan eina fund nefndarinnar, þ.e. þann 12. mars sl. Gafst því svo til enginn tími til viðræðna né heldur var leitað álits Sambands ísl. sveitarfélaga sem eiga að kosta þetta mál alfarið. Sambandið mótmælti strax þessari málsmeðferð með bréfi sem er fskj. með nál. 2. minni hl.
Það virðist alveg ljóst að sveitarfélögin munu ekki ráða óstudd við þetta verkefni því hér er um gífurlega fjármuni að ræða svo sem sjá má af fylgiskjölum með þessu frv. Það er enn fremur alveg ljóst að ekki er samstaða í hæstv. ríkisstjórn um afgreiðslu þessa máls. Ástæðan er sú að fylgifrv., sem kveður á um fjármögnun, m.a. um greiðslur úr ríkissjóði til sveitarfélaganna, fékkst ekki lagt fram jafnhliða fyrirliggjandi frv. Það er höfuðforsenda þess að þetta mál verði afgreitt að bæði frv. verði að lögum ef hugur hv. þm. stendur á annað borð til þess.
Þessu leikskólafrv. hefur einnig verið breytt þannig í meðförum ríkisstjórnarinnar að engin leið er að sjá hvort þessi uppbygging leikskóla á að fara af stað eða ekki. Það er því engan veginn ljóst hvort um er að ræða breytta réttarstöðu í þessum málaflokki. Eftir stendur frv. sem er hvorki fugl né fiskur. Pólitískar viljayfirlýsingar eiga heima í stefnuskrám stjórnmálaflokka eða ályktunum Alþingis en ekki í lagafrumvörpum.
Hæstv. menntmrh. getur e.t.v. auglýst þetta mál í kosningabaráttunni en hann hefur enga möguleika á að tryggja framkvæmd þess. Hver er þá tilgangur slíkrar lagasetningar? Hagsmunum hverra er verið að þjóna? Hér er um allt of mikilvægt mál að ræða til þess að lenda í slíkri fljótaskrift. Hæstv. ríkisstjórn getur ekki vikið sér undan ábyrgð í þessu máli. Þess vegna er hér gerð tillaga um að vísa málinu til ríkisstjórnar.
Eins og greint er frá í nefndaráliti var frv. þetta ekki sent til umsagnar. Hins vegar var nefndarmönnum afhent á þessum fyrsta og eina fundi, þ.e. 12. mars sl., sérálit Bergs Felixsonar, en hann er framkvæmdastjóri Dagvistar barna í Reykjavík. Hann afhenti nefndarmönnum einnig umsögn borgarráðs, sbr. umsögn stjórnar Dagvistar barna í Reykjavík og vil ég gera grein fyrir þeim hér, með leyfi virðulegs forseta, og þá einnig umsögn úr séráliti minni hlutans í borgarráði sem rennir enn frekari stoðum undir þá tillögu sem gerð er í nefndaráliti því sem hér er mælt fyrir.
Bergur Felixson átti sæti í nefnd þeirri er samdi leikskólafrv. Hann skilaði séráliti dags. 19. nóv. 1989:
,,Undirritaður hefur tekið þátt í störfum nefndar við gerð lagafrv. um leikskólastig og telur nauðsynlegt að setja rammalöggjöf fyrir þennan mikilvæga málaflokk. Frá fyrstu stund hef ég lagt áherslu á að rekstur leikskóla verði áfram á ábyrgð sveitarstjórna og er það í samræmi við nýsett lög um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Eins og frv. liggur nú fyrir eru þó bæði settar skyldur á sveitarfélögin umfram það sem ég get samþykkt, 3. gr., og einnig finnst mér gengið um of á forræði sveitarfélaga með því að fela ráðuneytinu of mikið og miðstýrt vald varðandi alla starfsemi leikskóla. Mun ég því sitja hjá við afgreiðslu þess hjá nefndinni.``
Meiri hluti borgarráðs tók undir umsögn frá stjórn Dagvistar barna sem er dags. þann 11. des. 1990 og er svohljóðandi:
,,Á fundi stjórnar Dagvistar barna í gær var samþykkt með fjórum samhljóða atkvæðum tillaga að umsögn um frv. til laga um leikskóla. Stjórn Dagvistar barna er sammála höfuðmarkmiðum frv. og telur brýnt að sett sé fram raunhæf rammalöggjöf um þennan mikilvæga málaflokk. Hins vegar telur stjórn Dagvistar barna að útfærslu frv. sem hér liggur fyrir sé verulega ábótavant. Að mati stjórnar Dagvistar barna er í frv. gengið um of á forræði sveitarfélaga með því að fela menntmrn. of mikið og miðstýrt vald varðandi alla starfsemi leikskóla, sbr. 2. mgr. 3. gr., og vísað er í fleiri ákvæði frv. Þá eru settar skyldur á sveitarfélögin í algeru ósamræmi við nýsett lög um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga án þess að tilgreint sé hver beri kostnað af þeim.
Stjórn Dagvistar barna er sammála því markmiði að dagvistarheimili fyrir börn að sex ára aldri, eins og þau eru skilgreind samkvæmt núgildandi lögum, skuli kallast leikskólar, enda hefur Dagvist barna í Reykjavík haft frumkvæði að þróun í þá átt. Stjórnin telur þó ekki rétt að undanskilja skóladagheimili í þessu skyni eins og gert er í lagafrv., enda sé þar um sama form á þjónustu að ræða. Það er yfirlýst stefna Dagvistar barna í Reykjavík að málefni leikskóla verði áfram vistuð í menntmrn. Samkvæmt lagafrv. því sem hér liggur fyrir er engan veginn tryggt að svo sé. Stjórn Dagvistar barna leggur því til við borgarráð að það mæli ekki með samþykkt lagafrv. um leikskóla í þessari mynd.``
Kristín Á. Ólafsdóttir, borgarfulltrúi fyrir Nýjan vettvang, og Elín G. Ólafsdóttir, borgarfulltrúi fyrir Kvennalistann, óskuðu eftir eftirfarandi bókun í borgarráði:
,,Í 3. gr. frv. segir m.a.: ,,Sveitarfélögum er samkvæmt lögum þessum skylt að hafa forustu um að tryggja börnum þann lögvarða lágmarksrétt til þjónustu sem lög þessi gera ráð fyrir.`` Í frv. kemur hins vegar hvergi fram hver þessi lögvarði lágmarksréttur er eftir að felld var brott fyrri málsgrein 3. gr. frv. eins og það kom frá forskólanefndinni. Sveitarfélögum er skylt samkvæmt lögum þessum að reka eða eiga aðild að rekstri leikskóla fyrir börn á leikskólaaldri. Óski foreldrar eða aðrir forráðamenn eftir leikskóladvöl fyrir barn skal hún veitt í 4 -- 9 stundir daglega eftir því sem best hentar barni og fjölskylduaðstæðum þess. Í bráðabirgðaákvæði er reiknað með því að markmið þetta náist innan tíu ára og þannig horft fram til þess að raunverulega sé tryggður réttur barns. Mikilvægt er að greinin úr frv. forskólanefndarinnar komi inn aftur.
Það sem kallast í umsögn Dagvistar barna ,,of mikið og miðstýrt vald menntmrn.`` er trygging ríkisvaldsins fyrir því að börn, hvar sem þau búa á landinu, njóti þeirrar faglegu menntunar og þjónustu sem frv. gerir ráð fyrir. Er það fyllilega sambærilegt við það sem gildir í grunnskóla.`` Ég vek athygli hv. þm. sérstaklega á næstu málsgrein þessarar umsagnar. ,,Í fylgifrv. er gert ráð fyrir því að ríkið taki þátt í fjármögnun leikskóla og því misskilningur hjá stjórn Dagvistar barna að verið sé að setja skyldur á sveitarfélög án þess að tilgreina hver skuli bera kostnað af þeim. Þetta er vissulega í ósamræmi við verkaskiptalögin, en hætt er við að þess verði langt að bíða að öll börn eigi kost á leikskólagöngu ef sveitarfélögin eiga ein og óstudd að sjá um uppbyggingu og rekstur. Er í því sambandi bent á kostnaðarútreikninga í athugasemdum með fjármögnunarfrv.`` Það er þá ljóst að skilningur stjórnar Dagvistar barna hefur að einhverju leyti verið á rökum reistur. Eins og meðferð á þessu máli er háttað er engan veginn séð annað en að hér sé verið að leggja skyldur á sveitarfélögin fyrst og fremst og þar komi ríkið ekkert inn í til sögunnar.
Í lok þessarar bókunar Kristínar Á. Ólafsdóttur og Elínar G. Ólafsdóttur segir síðan: ,,Órökrétt er að ætla skóladagheimilum stað í frv. þessu þar sem það fjallar um nýtt skólastig sem kemur á undan grunnskóla. Við tökum undir þá skoðun stjórnar Dagvistar barna að tryggja verður að málefni leikskóla verði áfram óskipt vistuð í menntmrn. Við leggjum ríka áherslu á að frv. verði að lögum á yfirstandandi þingi.``
Ég fæ ekki betur séð, hæstv. forseti, en að þessir fulltrúar borgarstjórnarminnihlutans séu sammála mér í þeim athugasemdum er ég hef gert þannig að fjármögnunarfrv. verði að koma fram samhliða leikskólafrv. og að hvergi sé skýrt í frv. hvort um einhvern lögvarinn rétt sé að ræða. Því verður ekki séð af meðferð þessa máls að í frv. sé það tryggt að börn, hvar sem þau búa á landinu, njóti þeirrar menntunar og þjónustu sem frv. gerir ráð fyrir.
Hæstv. forseti. Ég veit að nú er naumur tími eftir af þinghaldi, en ég taldi þó rétt að gera grein fyrir þessum umsögnum. Auðvitað mætti segja margt annað um þetta frv. sem í sjálfu sér er jákvætt fyrir barnafjölskyldur þessa lands. Í því eru líka mörg nýmæli sem vert væri að skoða nánar. Því miður hefur hins vegar verið haldið þannig á þessu máli af framkvæmdarvaldinu að viðbúið er að tími til umræðna um þetta mál hér á hinu háa Alþingi verði takmarkaður.
Þá vil ég einnig geta þess, vegna orða formanns hv. menntmn. Nd. hér áðan um að engar brtt. utan ein hafi komið fram, að það er varla von þegar ekki er
gefinn tími til þess að skoða þetta mál betur. Enda er málið gallað eins og ég hef gert grein fyrir í máli mínu. Bæði borgarráð og Samband ísl. sveitarfélaga hafa boðað að þau vilji koma að alvarlegum athugasemdum, en þau fengu ekki tækifæri til þess. Það er mergur málsins. Mér heyrist einnig að fulltrúi Kvennalistans, hv. þm. Guðný Guðbjörnsdóttir, taki undir mörg þau sjónarmið er ég hef gert að umtalsefni. Að vísu munu þær vilja styðja þetta frv. þrátt fyrir galla þess, m.a. skort á fjármögnun. Því þótti mér athyglisvert að sjá nefndarálit á þskj. 931 frá fulltrúa kvennalistakvenna, hv. þingkonu Danfríði Skarphéðinsdóttur ef ég man rétt, í Ed. um húsnæðislánakerfið þar sem boðuð er hjáseta kvennalistakvenna vegna þess að fjármögnun er ekki tryggð. Ég er hins vegar sammála þeim um mikilvægi þeirra málefna sem við höfum rætt undanfarna daga, bæði um grunnskóla og síðan um leikskóla, sem við höfum rætt hér í dag.
Með leyfi virðulegs forseta mun ég nú gera grein fyrir nefndaráliti frá 2. minni hl. menntmn. um frv. til laga um leikskóla. Nefndarálitið er á þskj. 967:
,,Frv. þetta var afgreitt óvænt úr nefndinni 12. mars sl. Formaður nefndarinnar hafði áður lýst yfir því að málið yrði ekki afgreitt þar sem ekki gæfist tími til að senda það til umsagnar er svo skammt væri til þingloka. Undirrituð óskaði þá eftir fresti á afgreiðslunni til þess að fá tækifæri til að kynna málið fyrir þingflokki og að frv. yrði sent til umsagnar Sambands íslenskra sveitarfélaga en hvoru tveggja var hafnað. Þessi vinnubrögð ganga þvert á hefðbundnar venjur um afgreiðslu mála á Alþingi og eru því ekki ásættanleg.`` Raunar gat ég ekki heyrt betur hér áðan en að formaður hv. menntmn. þessarar deildar væri sammála mér í því að þessi vinnubrögð væru alls ekki í lagi.
,,Málefni leikskóla er búið að vera ágreiningsefni í ríkisstjórninni á yfirstandandi þingi. Menntmrh. og félmrh. hafa deilt hart og bæði viljað að þessi málaflokkur heyrði undir sitt ráðuneyti. Þannig lagði félmrh. fram frv. til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, þar sem m.a. var kveðið á um leikskóla. Menntmrh. lagði engu að síður fram frv. til laga einnig um leikskóla þannig að á tímabili voru tvö frv. til meðferðar í þinginu um sama efni.
Svo virðist sem félmrh. hafi nú þurft að breyta sínu frv. þannig að ákvæði um leikskólann voru tekin í burtu, enda ekkert óeðlilegt því að það er skoðun margra, m.a. sjálfstæðismanna, að þessi málaflokkur eigi betur heima í menntmrn.
Það breytir hins vegar ekki þeirri staðreynd að frv. menntmrh. komst þar með svo seint til meðferðar að enginn tími gafst til efnislegrar umfjöllunar í nefndinni. Þar er því ekki við stjórnarandstöðuna að sakast þar sem ekki var einu sinni veitt tækifæri til að leita álits Sambands íslenskra sveitarfélaga, sem eiga þó að bera hitann og þungann af þessu máli, sbr. nýleg lög um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Þannig segir m.a. í 1. mgr. 3. gr. frv.: ,,Stofnun leikskóla og rekstur er á ábyrgð sveitarfélaganna en fagleg yfirstjórn málaflokksins samkvæmt lögum þessum er á
hendi menntmrn.``
Samband íslenskra sveitarfélaga hefur mótmælt þessari málsmeðferð með svohljóðandi bréfi, sbr. fylgiskjal með nefndaráliti þessu.
Þá kemur fram í greinargerð frv. að nefndinni er samdi upprunalegt frv. var einnig falið að athuga æskilegt fyrirkomulag á stofn- og rekstrarkostnaði og samdi nefndin annað frv. um ríkisframlag til sveitarfélaga vegna leikskóla. Það frv. var stöðvað í ríkisstjórninni og fékkst ekki lagt fram, væntanlega vegna þeirra miklu útgjalda sem það hefði í för með sér fyrir ríkissjóð og vart yrðu fjármögnuð öðruvísi en með skattahækkunum. Hefur stjórnarliðum e.t.v. þótt nóg að gert í aukningu á skattbyrði almennings, enda kosningar fram undan. Þrátt fyrir þá staðreynd að ekkert sé hugsað fyrir fjármögnun samfara þessu frv. þá leggur menntmrh. áherslu á afgreiðslu þessa máls og gangi það eftir þá er ljóst að næstu ríkisstjórn verður nokkur vandi á höndum þar sem henni ber þá að tryggja framkvæmd þessara laga.
Margir hafa bent á nauðsyn þess að fjármögnun verði jafnhliða tryggð. Þannig segir t.d. í umsögn ASÍ frá 3. okt. 1990: ,,Miðstjórn Alþýðusambandsins álítur að markmiðum þeim, sem nefnd til endurskoðunar á byggingu og rekstri dagvistarheimila setti sér í sínu starfi, verði ekki náð nema bæði frv. nefndarinnar verði samþykkt sem lög. Jafnframt vill miðstjórnin leggja áherslu á að frumvörpunum verði ekki breytt á þann hátt að skertur verði réttur barna til vistunar og skyldur sveitarfélaga til uppbyggingar og rekstrar leikskóla.`` Í þessari umsögn er vakin athygli á þeirri staðreynd að við meðferð málsins í ríkisstjórn var sú breyting gerð sem nú kemur fram í 3. gr. frv. Þar sem áður var kveðið á um skyldu sveitarfélaganna til þess að reka leikskóla segir nú í 2. mgr. 3. gr. frv.:
,,Sveitarfélögum er samkvæmt lögum þessum skylt að hafa forustu um að tryggja börnum þann lögvarða lágmarksrétt til þjónustu sem lög þessi gera ráð fyrir.`` Þessi setning er illskiljanleg og hætt er við ágreiningi þegar ganga á úr skugga um, hvað þessi ,,réttur`` feli raunverulega í sér.
Undirrituð er þeirrar skoðunar að það samræmist ekki tilgangi löggjafar að hafa lög þannig úr garði gerð að þau feli einungis í sér einhverja viljayfirlýsingu, slíkt eigi öllu fremur heima í ályktunum þingsins. Lagafyrirmæli eiga að vera skýr og kveða á um rétt og skyldur.
Þetta frv. er mjög merkilegt fyrir margar sakir og felur í sér athyglisverð nýmæli sem væntanlega kæmu barnafjölskyldum þessa lands til góða. Augljóst er að mikil vinna hefur verið lögð í gerð þess og vafalaust hafa margir áhuga á framgangi frv. enda þörfin víða brýn. Þó verður ekki hjá því komist að benda á þá staðreynd að eins og staðið er að þessu máli tryggir það á engan hátt meginmarkmið frv. Ríkisstjórnin getur ekki vikið sér undan ábyrgð á þennan hátt. Hún verður að taka afstöðu til þess hvort henni sé alvara í því að taka raunhæft á þessu máli. Til þess að fá úr því skorið er hér gerð tillaga um það að máli þessu verði vísað til ríkisstjórnarinnar.``
Þá vil ég, með leyfi virðulegs forseta, gera grein fyrir stuttu bréfi frá Sambandi ísl. sveitarfélaga sem birt er sem fskj. með þessu nál. seinni minni hl. Það er dags. þann 13. mars, daginn eftir að mál þetta var afgreitt út úr menntmn. hv. deildar:
,,Samband íslenskra sveitarfélaga gerir athugasemd við það að nú skuli stefnt að því að afgreiða á Alþingi frv. til laga um leikskóla án þess að sambandinu hafi verið gefinn kostur á að fjalla efnislega um málið og gefa formlega umsögn.
Menntmrh. og aðstoðarmaður ráðherra komu á fund stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 19. jan. 1990 og kynntu drög að frv. til laga um leikskóla og drög að frv. til laga um ríkisframlög til sveitarfélaga vegna leikskóla.
Fjölmargar athugasemdir við frv. komu fram á fundinum og var gengið út frá því að stjórnin fengi þau til formlegrar umsagnar þegar málið yrði lagt fyrir Alþingi.
Augljóst er að svo veigamikill málaflokkur, sem nú er í höndum sveitarfélaga samkvæmt verkaskiptalögum ríkis og sveitarfélaga, verður að fá umfjöllun á sameiginlegum vettvangi sveitarstjórnarmanna.
Samband íslenskra sveitarfélaga hefur ýmsar athugasemdir fram að færa, einkum varðandi 3. og 4. kafla frv. þar sem fjallað er um hlutverk sveitarfélaga í stofnun og rekstri leikskóla og yfirstjórn, enda kom það skýrt fram á fyrrnefndum fundi með ráðherra.
Samband íslenskra sveitarfélaga væntir þess að mál þetta verði eigi afgreitt nú án samráðs við sambandið.
Virðingarfyllst, Þórður Skúlason, framkvæmdastjóri.``
Hæstv. forseti. Ég taldi rétt að vekja sérstaka athygli á þessu bréfi frá Sambandi ísl. sveitarfélaga. Þar kemur fram sú nauðsyn sem ég hef áður bent á í minni ræðu að það er lágmark að leitað sé eftir umsögn frá þeim aðilum sem eiga að kosta þetta frv., bæði með nýbyggingum og í rekstri, og ég tel að þetta bréf undirstriki enn fremur þá tillögu sem ég hef gert í nefndaráliti um að máli þessu verði vísað til ríkisstjórnarinnar.