Ólafur Þ. Þórðarson :
    Herra forseti. Mér finnst það nú koma úr hörðustu átt þegar maður í mínum þyngdarflokki biður um matarhlé og telur sig ekki hafa þrek til að dvelja hér örlítið lengur og ég skil ekki hvaðan á mig stendur veðrið. Ég hvet forseta til að halda áfram vinnu og láta ekki fipa sig í störfum.