Húsnæðisstofnun ríkisins
Föstudaginn 15. mars 1991


     Alexander Stefánsson (um þingsköp) :
    Herra forseti. Vegna þess sem kom hér fram hjá hv. síðasta ræðumanni þá held ég að það sé nú rétt að láta það koma fram að það er ekki ágreiningur í ríkisstjórnarliðinu um þetta frv. Þetta er búsetafrv. og það var búið að ganga frá því þannig að það fengi a.m.k. andstöðulausa afstöðu hér frá a.m.k. stjórnarliðinu þannig að það ætti að vera hægt að afgreiða það án þess að það valdi miklum hrellingum hér, þó margt annað mætti segja um málið.