Samvinnufélög
Föstudaginn 15. mars 1991


     Frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson) :
    Herra forseti. Þetta frumvarp tók ofurlitlum breytingum í Ed. Mér hefur ekki unnist tækifæri til þess að taka það fyrir á fundi í fjh.- og viðskn. en fyrir mitt leyti get ég stutt þær brtt. sem þar voru gerðar og mælt með samþykkt frumvarpsins Ef aðrir nefndarmenn í fjh.- og viðskn. hafa ekkert við það að athuga þá tel ég að óhætt sé að afgreiða þetta frumvarp og samþykkja það.