Ragnhildur Helgadóttir (um þingsköp) :
Herra forseti. Ekki mun ég blanda mér í þetta mál efnislega. En ég hlýt að virða þá samviskusemi hæstv. fjmrh. að vilja ekki hleypa umræðulaust áfram máli sem hann telur fela í sér 3 milljarða kr. kostnað. En hvað veldur þá því að hæstv. ráðherra og samflokksráðherrar hans berjast fyrir því í þingi nú dag eftir dag að koma áfram málum sem fela í sér milljarða kostnað, t.d. eitt frv., að sögn þeirra sem sendu menntmn. Nd. gögn sín, 6 -- 7 milljarða kostnað án þess að hæstv. ráðherra hefði nokkrar minnstu áhyggjur af því, heldur þvert á móti keppist við að reyna að ýta málinu áfram án þess að fyrir þessum atriðum sé séð? Ég skil ekki svona ósamræmi í málflutningi og hegðan. Mér þykir það afar óeðlilegt og svo að ég bæti við eins og margir hafa gert hér í dag, allra óeðlilegast á síðustu dögum þings að haga málum með þessum hætti. Ég held að það væri þá skynsamlegra að láta slíka ráðdeild ganga fram yfir öll mál sem hæstv. ráðherra sjálfur ber fyrir brjósti.