Leikskóli
Mánudaginn 18. mars 1991


     Danfríður Skarphéðinsdóttir :
    Virðulegur forseti. Við kvennalistakonur höfum reynt að láta skoðun okkar í þessu mikilvæga máli koma fram í hnotskurn. Í tilefni af viðtali sem birtist við forseta Sþ. í Þjóðviljanum nú um helgina vil ég mega vænta þess að hæstv. forseti Ed. láti forseta Sþ. vita það að kvennalistakonur hafa ekki tafið þetta mál. Ég tel að það frv. sem við erum hér að afgreiða sé mjög mikilvægt þrátt fyrir þá annmarka sem eru á því og ég hef lýst. Ég hefði kosið að tala miklu meira um það hér í umræðunni það sem af er en tímans vegna og vegna þess að ég vil að það hljóti afgreiðslu þingsins hef ég sparað mér það.