Félagsþjónusta sveitarfélaga
Mánudaginn 18. mars 1991


     Guðmundur H. Garðarsson :
    Virðulegur forseti. Það er með þetta frv. eins og mörg önnur frv. sem stjórnarsinnar eru með þessa síðustu daga þingsins að það hefði þurft að fá miklu betri og nákvæmari meðferð áður en það kæmi til afgreiðslu með þeim hætti sem þeir leggja til. Við í minni hl. félmn. leggjum ekki fram skriflegt nál. Hins vegar legg ég hér fram brtt. á þskj. 1035 um það að 34. gr. frv. falli brott en þar er kveðið á um skyldur sveitarstjórna til að tryggja framboð á leikskólarými. Án þess að fara frekar út í það vek ég athygli virðulegs forseta og þingmanna á því að með þessu frv. fylgir ekki greinargerð um hvaða kostnað þetta kann að hafa í för með sér fyrir sveitarstjórnir. Er það auðvitað mjög alvarlegt mál að hér á að efna til skuldbindinga án þess að gera grein fyrir því hvaða fjárhagslegu kvaðir fylgja því. Öll getum við verið sammála um að betur þurfi að búa að leikskólum, það fer ekki milli mála, en það er auðvitað ábyrgðarlaust að gera það með þeim hætti sem felst í þessu frv. án þess að þær kvaðir og skyldur sem því fylgja séu tíundaðar með fjárhagslegum dæmum.
    Við erum þeirrar skoðunar að frv. hefði þurft að skoðast betur og teljum að það sé mjög alvarlegt mál að afgreiða þetta frv., sem og mörg önnur síðustu daga, með þeim hætti sem hér er gert. En með tilliti til þess að í frv. eru einstök atriði sem við getum fallist á þá munum við sitja hjá við atkvæðagreiðsluna.