Ábyrgðadeild fiskeldislána
Mánudaginn 18. mars 1991


     Páll Pétursson (um þingsköp) :
    Herra forseti. Svo er mál með vexti að ósk kom fram um að þetta mál yrði athugað í nefnd og hugmyndir um breytingar á því skoðaðar. Það er sjálfsagt að verða við því og ég óska eftir því að að lokinni þessari atkvæðagreiðslu fái nefndin ráðrúm áður en málið verður tekið til 3. umr. til þess að fjalla um það. Sú umfjöllun ætti ekki að þurfa að taka ýkja langan tíma. Ég óska sem sagt eftir því að að lokinni þessari atkvæðagreiðslu fái nefndin tóm til þess að athuga málið og þær breytingarhugmyndir sem fram eru að koma.