Húsnæðisstofnun ríkisins
Mánudaginn 18. mars 1991


     Alexander Stefánsson :
    Herra forseti. Hér er um að ræða tilraun til að koma aftur inn í húsnæðislöggjöf heimild til húsnæðismálastjórnar til að veita sérstök lán til þriggja ára til þeirra sem lenda í erfiðleikum með útborgun af alveg sérstæðum aðstæðum. Eins og oft vill verða í sambandi við þessi mál þarf Húsnæðisstofnun að hafa slíka heimild. Hún var felld niður á sl. ári og hér er tilraun til að koma henni inn aftur. Ég segi já.