Húsnæðisstofnun ríkisins
Mánudaginn 18. mars 1991


     Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) :
    Virðulegi forseti. Í nefnd sem endurskoðaði félagslega íbúðakerfið fyrir einu og hálfu ári síðan og í áttu sæti m.a. fulltrúar ASÍ og BSRB var lagt til að þetta ákvæði, sem hér eru greidd atkvæði um, yrði fellt niður vegna þess að í staðinn komu ýmis önnur ákvæði sem tryggja áttu betur hag láglaunafólks. Ég styð sjónarmið ASÍ og BSRB í þessu máli og segi nei.