Frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson) :
Herra forseti. Á þskj. 1004 liggur fyrir álit meiri hl. fjh. - og viðskn. Þar segir: ,,Nefndin hefur haft frv. til athugunar um nokkurt skeið og fékk til fundar við sig Yngva Örn Kristinsson og Bjarna Braga Jónsson frá Seðlabanka Íslands, Halldór Jónatansson, Jóhann Má Maríusson og Örn Marinósson frá Landsvirkjun, Magnús Pétursson, Halldór Árnason og Jón Ragnar Blöndal frá fjmrn., Sveinbjörn Óskarsson frá fjmrn. vegna Herjólfs hf., Leif Kr. Jóhannesson frá Stofnlánadeild landbúnaðarins, Benedikt Jónsson frá Lífeyrissjóði bænda, Hermann Guðjónsson og Eyþór Elíasson frá Vita- og hafnamálastofnun, Kristínu Halldórsdóttur og Magnús Oddsson frá Ferðamálaráði, Jóhönnu Leópoldsdóttur og Snorra Tómasson frá Ferðamálasjóði, Þorstein Jónsson frá Kvikmyndasjóði, Braga Hannesson frá Iðnlánasjóði, Þorvarð Alfonsson frá Iðnþróunarsjóði, Guðmund Malmquist frá Byggðastofnun, Markús Örn Antonsson og Hörð Vilhjálmsson frá Ríkisútvarpinu, Jóhönnu Ottesen frá Útflutningslánasjóði, Hrafn Pálsson frá Framkvæmdasjóði aldraðra, Gísla Konráðsson frá Stéttarsambandi bænda, Gísla Karlsson frá Framleiðnisjóði, Þórð Friðjónsson frá Þjóðhagsstofnun, Hauk Hafsteinsson frá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins og Lífeyrissjóði hjúkrunarkvenna, Sturlu Tómasson og Grétu Aðalsteinsdóttur frá Framkvæmdasjóði fatlaðra, Snæbjörn Jónasson frá Vegagerð ríkisins, Hauk Hauksson frá Flugmálastjórn, Árna Þór Sigurðsson og Þórð G. Valdimarsson frá Lánasjóði íslenskra námsmanna, Þórleif Jónsson frá Landssambandi iðnaðarmanna, biskup Íslands, herra Ólaf Skúlason, Kristján Jónasson, Engilbert Ingvarsson og Birgi Ómar Haraldsson frá Djúpbátnum hf., Einar Sigurðsson og Guðmund Hermannsson frá hreppsnefnd Ölfushrepps, Sigurð E. Guðmundsson og Hilmar Þórisson frá Húsnæðisstofnun ríkisins, Halldór Kristjánsson frá samgrn., Jón Ólafsson frá Félagi fiskmjölsframleiðenda og Þorstein Gíslason frá Síldarverksmiðjum ríkisins.
Meiri hl. nefndarinnar mælir með samþykkt frv. með brtt. sem flutt er tillaga um á sérstöku þingskjali. Nefndarmenn úr meiri hluta flytja einnig brtt. á þskj. 1006 og 1008.
Í fylgiskjali með áliti þessu er birt yfirlit yfir aukin útgjöld og ábyrgðir ríkissjóðs samkvæmt brtt. á þskj. 1005 og 1006.``
Að þessu áliti standa Páll Pétursson, Ólafur Þ. Þórðarson, Jón Sæmundur Sigurjónsson og Ragnar Arnalds.
Brtt. meiri hl. er að finna á þskj. 1005 og vil ég gera í stuttu máli grein fyrir þeim breytingum sem frv. hefur tekið í nefnd.
Þá er fyrst til að taka um Framkvæmdasjóð aldraðra. Ákvæði frv. til lánsfjárlaga 1991 sem kveður á um skerðingu á framlagi til Framkvæmdasjóðs aldraðra falli niður.
Framkvæmdasjóður fatlaðra. Ákvæði frv. til lánsfjárlaga 1991 sem kveður á um skerðingu á framlagi
Framkvæmdasjóðs fatlaðra verði fellt niður. Jafnframt verði reglugerð um verkefni sjóðsins breytt og sjóðnum heimilað að leggja fé til meiri háttar viðhalds á stofnunum og heimilum fatlaðra. Um 35 millj. kr. sem þar með bætast við ráðstöfunarfé sjóðsins 1991 verði varið til viðhaldsverkefna.
Bjargráðasjóður. Ákvæði frv. til lánsfjárlaga 1991 sem kveður á um niðurfellingu á framlagi ríkissjóðs til Bjargráðasjóðs verði fellt niður til að auðvelda sjóðnum að bæta tjón vegna óveðurs, bæði 3. febr. sl. og eins vegna óveðurs sem varð nokkrum dögum fyrr.
Gjafir til björgunarsveita og mannúðar - og líknarstarfsemi. Þrátt fyrir ákvæði 2. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, er fjmrh. heimilt að fella niður eða endurgreiða virðisaukaskatt af gjöfum til björgunarsveita, svo og til mannúðar - og líknarstarfsemi. Jafnframt er heimilt að endurgreiða virðisaukaskatt af rannsóknatækjum sem vísindastofnunum eru gefin eða keypt fyrir styrki.
Þá er það niðurfelling aðflutningsgjalda af flugskýli. Fjmrh. verði heimilað að fella niður opinber gjöld sem tengjast fyrirhuguðum framkvæmdum Flugleiða við byggingu nýs viðhaldsflugskýlis á Keflavíkurflugvelli.
Meðferðarstöðin á Fitjum. Fjmrh. fyrir hönd ríkissjóðs er heimilt að veita meðferðarstöðinni á Fitjum 20 millj. kr. framlag til að tryggja áframhaldandi starfsemi og taka til þess nauðsynleg lán.
Þá eru bætur til ríkisfyrirtækja vegna óveðurstjóns. Fjmrh. fyrir hönd ríkissjóðs er heimilt að taka lán á árinu 1991 að fjárhæð allt að 350 millj. kr. til að mæta tjónabótum frá ríkisfyrirtækjum og stofnunum vegna eignatjóns af völdum óveðurs. Ráðstöfun þess fjár verði staðfest í fjáraukalögum 1991.
Til framkvæmda vegna loðnubrests o.fl. Fjmrh. fyrir hönd ríkissjóðs verði heimilt að taka lán á árinu 1991 að fjárhæð allt að 100 millj. kr. til opinberra framkvæmda og aðgerða í atvinnumálum í byggðarlögum sem hart hafa orðið úti vegna loðnubrests eða örðugs atvinnuástands. Um skiptingu fjárins milli hinna einstöku verkefna fer eftir ákvörðun fjvn.
Víða um land er við mikinn vanda að etja í atvinnumálum, bæði vegna loðnubrests, svo sem á Siglufirði, Raufarhöfn, Seyðisfirði og víðar, og einnig vegna annarra tilfallandi orsaka, svo sem á Blönduósi vegna verkloka við virkjun Blöndu. Þar er að skapast vandræðaástand í atvinnumálum.
Ríkisspítalar. Fjmrh. fyrir hönd ríkissjóðs verði heimilt að taka lán á árinu 1991 að fjárhæð allt að 60 millj. kr. til að fjármagna endurnýjun á tölvubúnaði ríkisspítala enda verði tekið tillit til þess í árlegu framlagi á fjárlögum næstu ára.
Þá eru það fragtflutningar. Fjmrh. er heimilt að verja allt að 25 millj. kr. til þess að greiða fyrir og styrkja fragtflutninga með flugi milli Íslands og annarra landa, enda stuðli það að auknum útflutningi innlendrar framleiðslu.
Búvörusamningur. Fjmrh. fyrir hönd ríkissjóðs er heimilt að stofna til skuldbindinga með útgáfu skuldabréfa á árinu 1991 að upphæð allt að 1700 millj. kr.
vegna samnings landbrh. við bændur um fækkun fjár og aðlögun sauðfjárframleiðslu að innanlandsmarkaði, sbr. lög nr. 46/1985. Heimild þessi gildir þar til gerðar hafa verið nauðsynlegar lagabreytingar vegna framkvæmdar samningsins að öðru leyti.
Þá er það vandi loðnuverksmiðja. Lagt er til að brugðist verði við þeim mikla vanda sem nú steðjar að loðnuverksmiðjum í landinu vegna þess að loðnan brást að verulegu leyti á þeirri vertíð sem nú er að ljúka. Lúta þessar tillögur annars vegar að því að létta af bráðum greiðsluvanda verksmiðjanna með því að veita heimild til ríkisábyrgðar á hluta skuldbreytinga og eldri lánum verksmiðjanna en hins vegar að því að bæta rekstrarafkomu verksmiðjanna til frambúðar með því að koma á fót sérstökum úreldingarsjóði loðnuverksmiðja.
Í minnisatriðum sem samstarfshópur ráðuneyta skilaði inn til ríkisstjórnarinnar 7. febr. sl. um aðgerðir vegna aflabrests í loðnuveiðum var á það bent að framleiðslugeta loðnuverksmiðjanna í landinu væri of mikil og því æskilegt að fækka þeim á næstu árum. Varpaði samstarfshópurinn fram þeirri hugmynd að stuðla mætti að fækkun verksmiðja með tilstyrk ríkisins. Á grundvelli hugmyndar starfshópsins lagði sjútvrh. til í ríkisstjórn að tekið yrði 200 millj. kr. lán og því láni yrði fyrir milligöngu Fiskveiðasjóðs Íslands varið til að stuðla að úreldingu loðnuverksmiðja. Er fyrsti liður brtt. í samræmi við þær tillögur. Hugmyndin er sú að gera tæknilega úttekt á loðnuverksmiðjunum. Út frá slíkum tæknilegum upplýsingum ásamt staðsetningu og fjárhagslegri stöðu verksmiðjanna þarf síðan að meta hvaða verksmiðjur skuli úrelda. Eigendum þessara verksmiðja verður gefinn kostur á að fá greiddan tiltekinn úreldingarstyrk. Styrkurinn yrði notaður til að semja við lánardrottna um greiðslur áhvílandi veðskulda. Í þessu skyni tekur ríkissjóður 200 millj. kr. lán skv. fyrsta lið brtt. og endurlánar það Fiskveiðasjóði. Er þá miðað við að þær loðnuverksmiðjur sem áfram starfa í landinu og njóta því hags af fækkun verksmiðja taki að sér að greiða 60% vaxta og afborgana af láninu en 40% verði endanlega borin af ríkissjóði.
Þá er lagt til að ríkissjóði verði heimilt að ábyrgjast allt að 200 millj. kr. skuldbreytingar á eldri lánum loðnuverksmiðja. Eins og áður er sagt veldur loðnubresturinn miklum greiðsluvanda hjá loðnuverksmiðjunum. Ríkisstjórnin hefur því beint þeim tilmælum til banka og sjóða að þeir skuldbreyti vanskilum af eldri lánum verksmiðjanna svo og greiðslu vaxta og afborgana sem á þetta ár falla af þeim lánum. Þar sem verksmiðjurnar eru skuldsettar er þó talin þörf á því að fylgja þessum tilmælum eftir með því að ríkissjóður bjóði sjálfskuldarábyrgð á fjórðungi slíkra skuldbreytinga. Er hugmyndin sú að sjálfskuldarábyrgð verði veitt í þeim tilvikum þar sem lánastofnanir meta það að skuldbreyta megi og nái til fjórðungs skuldbreytinganna án tillits til þess hvort skuldbreytingarnar eru veittar með nýju skuldabréfi eða með því að fresta afborgunum innan ramma þegar útgefinna skuldabréfa. Sameiginlegt hámark þessarar sjálfskuldarábyrgðar ríkissjóðs verði 200 millj. kr. og samsvarar það heildarskuldbreytingu upp á 800 millj. kr.
Loks er lagt til að heimiluð verði sjálfskuldarábyrgð ríkissjóðs á 300 millj. kr. láni til Síldarverksmiðja ríkisins, en staða fyrirtækisins er mjög erfið um þessar mundir, vegna þess að aflabrestur kemur á sama tíma og mikil uppbygging hefur átt sér stað hjá fyrirtækinu. Hluti þessarar upphæðar á að gera Síldarverksmiðjum ríkisins kleift að halda starfsfólki því sem sagt hefur verið upp störfum.
Rækjuverksmiðjur. Fjmrh. er heimilað fyrir hönd ríkissjóðs að taka lán allt að 200 millj. kr. á árinu 1991 og endurlána Byggðastofnun til að leysa úr vanda rækjuverksmiðja.
Þá er það Lánasjóður sveitarfélaga. Fjmrh. er fyrir hönd ríkissjóðs heimilt að taka lán á árinu 1991 að fjárhæð allt að 35 millj. kr. eða jafnvirði þeirrar fjárhæðar í erlendri mynt og endurlána Lánasjóði sveitarfélaga til umhverfisbótadeildar sjóðsins og veita lán eða styrki til umhverfisbætandi framkvæmda að fengnum tillögum umhvrh.
Djúpbáturinn hf. Djúpbátnum á Ísafirði er heimilt að taka lán að fjárhæð allt að 45 millj. kr. eða jafnvirði þeirrar fjárhæðar í erlendri mynt til að kaupa nýja ferju. Áætlað kaupverð nýja skipsins er 27 millj. kr. og nauðsynlegar breytingar eru taldar kosta allt að 18 millj. kr. Jafnframt er samgrh. heimilt að leyfa fyrirtækinu innflutning á ferjunni þó eldri sé en 12 ára, sbr. 2. mgr. 21. gr. laga nr. 51/1987, um eftirlit með skipum.
Þá er það Byggðastofnun, bætt eiginfjárstaða. Fjmrh. er fyrir hönd ríkissjóðs heimilt að yfirtaka skuldir Byggðastofnunar hjá Framkvæmdasjóði Íslands allt að 1.200 millj. kr.
Kaup á eignum orkuveitna. Fjmrh. er heimilt að ábyrgjast nauðsynleg lán vegna kaupa Rafmagnsveitna ríkisins á eignum Hitaveitu Siglufjarðar og Rafveitu Siglufjarðar.
Þá er fjmrh. heimilt fyrir hönd ríkissjóðs að fengnu samþykki fjvn. að semja við Hitaveitu Hjaltadals um ráðstafanir til að bæta fjárhag veitunnar í framtíðinni.
Kvikmyndasjóður. Lagt er til að fellt verði niður skerðingarákvæði vegna Kvikmyndasjóðs. Þetta er vegna gerðra skuldbindinga um samnorrænt verkefni í kvikmyndagerð.
Þess ber að geta að ýmis fleiri mál voru til meðferðar í nefndinni. Ég nefni sérstaklega hugmyndir um hafnarbætur í Þorlákshöfn ef þar yrði af byggingu þilplötuverksmiðju. Forsrh. mun fyrir hönd ríkisstjórnarinnar gefa yfirlýsingu um að hún sjái um að fé verði tiltækt til undirbúningsframkvæmda í höfninni í Þorlákshöfn ef samningar takast um byggingu þilplötuverksmiðju þar.
Hér er um veigamikil lánsfjárlög að ræða og verulegar viðbætur við frv. eftir að það kom frá Ed. Hluti þessa frv. hefði eins getað verið í fjáraukalögum en þar sem þau verða ekki til meðferðar fyrir þinglok var horfið að því ráði að afla lánsfjárheimildar með þessum hætti. Svipuðu máli gegnir með eignarnámsheimild í Vatnsleysustrandarhreppi en hún hefði þinglega
séð farið betur í sérstökum lögum. Horfið var að því ráði að tengja lánsheimildina lánsfjárlögum og telja lögspekingar það nægilegt.
Þá vil ég geta sérstaklega um fylgiskjal með nál. þar sem heimildirnar eru flokkaðar. Hér er um háar fjárhæðir að ræða en sumar eru þó aðeins tilfærslur úr einum vasa í annan og ólíklegt að þörf verði fyrir sumar upphæðirnar allar.
Herra forseti. Þetta voru brtt. sem meiri hl. fjh.- og viðskn., þ.e. Ólafur Þ. Þórðarson, Jón Sæmundur Sigurjónsson, Ragnar Arnalds og ég, stendur að. En Ragnar Arnalds stendur ekki að tveimur brtt. við lánsfjárlögin sem aðrir úr meiri hl. styðja. Kom það okkur nokkuð á óvart að á lokastigi skyldi flokksbróðir fjmrh. ekki treysta sér til að standa að afgreiðslu þessara tveggja greina.
Önnur brtt. fjallar um Landsvirkjun og hljóðar svo: ,,Landsvirkjun er enn fremur heimilt að fengnu samþykki ríkisstjórnarinnar að taka lán á árinu 1991 að fjárhæð allt að 800 millj. kr. eða jafnvirði þeirrar fjárhæðar í erlendri mynt til undirbúnings Fljótsdalsvirkjunar, stækkunar Búrfellsvirkjunar, fimmta áfanga Kvíslaveitu og stofnlína eins og nauðsynlegt er til þess að unnt verði að sjá nýju álveri fyrir nægjanlegri raforku frá áramótum 1994 -- 1995. Ákvörðun um þennan undirbúning og að nýta heimildir samkvæmt þessari málsgrein skal tekin í ljósi framvindu samninga um álver á Keilisnesi.``
Að sjálfsögðu verður ekki farið út í fjárfrekar framkvæmdir til undirbúnings þessa máls fyrr en skriður er á ný kominn á samninga um álver á Keilisnesi, en eins og menn vita eru þeir samningar í biðstöðu eins og stendur. En það er von okkar að úr rætist og þá þarf að hafa þessa heimild ef sumarið á ekki að tapast sem framkvæmdatími. Það er sem sagt sett undir þennan leka með þessu móti.
Þá er brtt. um kaup á jarðnæði fyrir nýtt álver. ,,Fjmrh. fyrir hönd ríkissjóðs er heimilt með samþykki ríkisstjórnarinnar að ábyrgjast með sjálfskuldarábyrgð eða taka lán að hluta eða öllu leyti í stað ríkisábyrgðar og endurlána Vatnsleysustrandarhreppi til að fjármagna kaup á jörðinni Flekkuvík, ásamt mannvirkjum, og lönd úr jörðunum Stóru- og Minni-Vatnsleysu, ásamt mannvirkjum og til að fjármagna kostnað og sérfræðiráðgjöf vegna lóðaöflunar fyrir álver á Keilisnesi. Endurgreiðsla Vatnsleysustrandarhrepps á veittum lánum samkvæmt þessari grein skal háð því að af byggingu og rekstri álvers verði en að öðrum kosti skulu hinar keyptu eignir falla til ríkissjóðs.
Náist ekki samningar við eigendur landa eða mannvirkja getur fjmrh. heimilað Vatnsleysustrandarhreppi að taka eignarnámi vatnsréttindi, land, aðstöðu og önnur réttindi sem nauðsynleg eru vegna byggingar álvers á Keilisnesi og hafnar vegna þess. Eignarnám samkvæmt þessu ákvæði skal framkvæmt samkvæmt lögum nr. 11/1973``, þ.e. um framkvæmd eignarnáms.
Eins og ég sagði áðan hefði farið betur á að flytja þetta í sérstöku frv. en að því ráði var horfið að útvega þessa bráðnauðsynlegu heimild sem lið í þeim bandormi sem hér er til umræðu.
Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að fara um þetta fleiri orðum en minni enn og aftur á þá skilagrein sem prentuð er sem fylgiskjal með nál. meiri hl. þar sem hinar einstöku fjárhæðir eru sundurliðaðar þingmönnum til glöggvunar.