Frsm. minni hl. sjútvn. (Jón Sæmundur Sigurjónsson) :
    Virðulegi forseti. Ég tala hér fyrir nál. frá minni hl. sjútvn. um frv. til laga um ráðstafanir vegna aflabrests í loðnuveiðum.
    Nefndin hefur fjallað um frv. Til fundar við nefndina komu Jakob Jakobsson og Sveinn Sveinbjörnsson frá Hafrannsóknastofnun, Kristján Ragnarsson frá LÍÚ, Óskar Vigfússon og Hólmgeir Jónsson frá Sjómannasambandi Íslands, Guðjón A. Kristjánsson, Helgi Laxdal og Benedikt Valsson frá Farmanna - og fiskimannasambandi Íslands, Þórður Skúlason frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Húnbogi Þorsteinsson frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, Jón Ólafsson og Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson frá Félagi íslenskra fiskimjölsframleiðenda, Halldór Guðbjarnason, bankastjóri Landsbanka Íslands, Lárus Jónsson frá Félagi rækju - og hörpudisksframleiðenda og Þorsteinn Gíslason og Jón Reynir Magnússon frá Síldarverksmiðjum ríkisins. Umsagnir og gögn bárust frá Siglufjarðarkaupstað, Fiskifélagi Íslands, sjútvrn., Byggðastofnun og Þjóðhagsstofnun, auk þess sem þau gögn sem sjútvn. Ed. hafði til hliðsjónar lágu fyrir nefndinni.
    Meiri hl. nefndarinnar, þeir Matthías Bjarnason, Geir Gunnarsson, Hreggviður Jónsson og Kristinn Pétursson, er samþykkur því að málið sé afgreitt frá nefndinni en stendur ekki að áliti þessu. Meiri hl. nefndarinnar mun ekki heldur skila nál. Þrír hinir fyrsttöldu, ásamt fleirum, flytja brtt. við málið í heild á þskj. 995.
    Minni hl. nefndarinnar leggur til að frv. verði samþykkt með þeim breytingum sem gerðar voru í Ed.
    Undir þetta álit skrifa Guðni Ágústsson, Alexander Stefánsson og Jón Sæmundur Sigurjónsson.