Húsnæðisstofnun ríkisins
Mánudaginn 18. mars 1991


     Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) :
    Virðulegi forseti. Hv. þm. beindi til mín þeirri spurningu hvað það kostaði að afgreiða þá sem eru í biðröðinni. Hluti af því fólki er þegar með lánsloforð. Ég hygg að ég muni þá tölu rétt að það kosti um 6 milljarða að afgreiða þá sem eru með lánsréttarbréf sem kæmu til afgreiðslu sennilega 1992 og síðar. Það yrði að gerast með þeim hætti, eins og lýst er í ákvæði til bráðabirgða, að taka upp samninga við lífeyrissjóðina um fjármögnun til þess hóps sem er með lánsréttarbréf. Fyrir öðrum er séð á þessu ári. Þeir fá sín lán greidd og mig minnir að það sé 1. sept. sem búið verður að afgreiða þá sem eru með lánsloforð í höndunum. Aðrir sem eru með lánsréttarbréf í höndunum yrðu afgreiddir 1992, 1993 og 1994.
Það færi eftir því hvaða samningar tækjust við lífeyrissjóðina hve fljótt væri hægt að afgreiða þennan hóp. Gert er ráð fyrir að senda öllum þessum aðilum bréf til að athuga hvort þeir óski eftir að fá afgreiðslu í 1986-kerfinu. Hluti þeirra hefur þegar fengið fyrirgreiðslu í húsbréfakerfinu þannig að ekki er vitað hvað hér er um stóran hóp að ræða. Það er því ekki endanlega hægt að segja um það fyrr en þessi athugun hefur farið fram með þeim hætti sem ég hef hér lýst og er líka háð því hvernig til tekst að semja við lífeyrissjóðina.