Frsm. félmn. (Hjörleifur Guttormsson) :
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nál. félmn. um till. til þál. um afnám margsköttunar á iðgjaldi sjóðfélaga til lífeyrissjóða:
,,Nefndin hefur fjallað um tillöguna og leggur til að hún verði samþykkt með breytingu sem nefndin flytur á sérstöku þskj.``
Þá breytingu er að finna á þskj. 954 þar sem lagt er til að tillgr. orðist svo:
,,Alþingi ályktar að fela fjmrh. að gera könnun á skattalegri meðferð lífeyrissparnaðar og undirbúa nauðsynlegar lagabreytingar til að slíkur sparnaður njóti ekki lakari kjara en annar sparnaður í landinu.``
Jafnframt er lagt til að fyrirsögn tillögunnar orðist svo: ,,Till. til þál. um skattalega meðferð á lífeyrissparnaði.``