Frsm. félmn. (Hjörleifur Guttormsson) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. frá félmn. um till. til þál. um fullgildingu á alþjóðasamþykkt nr. 155, um öryggi og heilbrigði við vinnu og starfsumhverfi:
    ,,Nefndin hefur fjallað um till. og leggur til að hún verði samþykkt.
    Nefndin telur að rétt sé að fullgilding samþykktarinnar verði takmörkuð við gildissvið laga nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Þetta þýðir að fullgildingin mun ekki taka til siglinga, fiskveiða og loftferða.``
    Undir þetta rita allir nefndarmenn félmn.