Vegáætlun 1991-1994
Mánudaginn 18. mars 1991


     Ólafur Þ. Þórðarson :
    Herra forseti. Ég tel að það sé ekki óeðlilegt þó að þingið taki dálitla stund í að ræða jafnstór mál og hér eru á dagskrá. Mörkun langtímaáætlunar í vegamálum segir okkur í tölum við hverju við megum búast í framkvæmdum í samgöngumálum á landi. Þegar sú nefnd, sem fjallaði um undirbúningsvinnu þessarar áætlunar, hafði lokið sínum störfum þá blasti það við að á Vestfjörðum höfðu tvö verkefni þokast of langt frá þeim markmiðum sem við höfðum sett okkur til þess að ásættanlegt væri. Annað verkefnið voru verklok á Óshlíð, en okkur hafði borist í hendur skýrsla frá Vegagerð ríkisins þar sem nauðsynlegar upplýsingar voru til lokaákvarðanatöku í því máli.
    Ég tel að með þeim samþykktum, sem gerðar hafa verið í framhaldi af því og með þeim tillöguflutningi sem hér er, sé komin ásættanleg lausn í þeim efnum þannig að allir geti við unað. Þar fagna ég því að ákveðið hefur verið að klára vegsvalir á Óshlíð sem eru við tvö gil sem hafa mjög háa snjóflóðatíðni samkvæmt þeim upplýsingum sem fyrir liggja.
    Við höfum orðið varir við það þingmenn Vestfjarða að umræðan um Gilsfjarðarbrú hefur mjög verið túlkuð á þann veg sem ákveðnir þingmenn væru að bregðast því trausti sem íbúar þessara svæða hefðu haft á þeirra yfirlýsingum og orðum. Það hefur verið samdóma stefna þingmanna Vestfjarða, eftir því sem ég best veit, að sjá til þess að fjárframlög í Gilsfjarðarbrú kæmu í beinu framhaldi af verklokum á Dýrafjarðarbrú.
    Hér í þessari áætlun til fjögurra ára kemur fram að lokafjárveiting til verka við Dýrafjarðarbrú er á árinu 1992. Og samkvæmt brtt. sem hér er lögð fram er lagt til að hækka fjárveitingar til Gilsfjarðarbrúar á þessu fjögurra ára tímabili, framlagið úr Stórverkefnasjóði úr 15 millj. í 55 millj. Og fyrsta fjárveiting til verksins sem flokka má undir framkvæmdafjárveitingu er á árinu 1993.
    Ég uni því vel þegar Friðjón Þórðarson gerir hér mjög ákveðið grein fyrir sinni afstöðu í þessu máli. Ég lít á það svo að hann telji nauðsyn að veita arftaka sínum í Vesturlandskjördæmi skriflega staðfestingu á því hvað hann hefði gert hefði hann setið á Alþingi Íslendinga áfram, þ.e. ef Friðjón Þórðarson hefði setið þar áfram. Og ég fagna því að hann negli það niður mjög ákveðið með þessum hætti að hann leggur til að ekki verði lengi beðið með að bjóða það verk út eftir að framkvæmdafjárveitingar hafa fengist í verkið.
    En það eru mótframlög frá heimamönnum til þessa verks þannig að til viðbótar við þær 55 millj. sem ætlaðar eru úr Stórverkefnasjóði eru 34 millj. sem kæmu frá heimamönnum af hlut kjördæmanna, þ.e. Vestfjarðakjördæmis og Vesturlandskjördæmis, á móti þessum 55.
    Ég vil undirstrika að þessi brúargerð yfir Gilsfjörð er tímamótaákvörðun. Það er tímamótaákvörðun að negla það niður eins og hér er gert að í hana sé farið. Og ég vil segja það hér og nú að ég hygg að hún

tryggi það að vegur Reykhóla við Breiðafjörð verði sá sami og hann var fyrr á öldum, þ.e. að ljóst sé að þar sé byggilegra en á öðrum stöðum við Breiðafjörð. Þegar ég segi þetta þá er ég að undirstrika það að sú hafnaraðstaða sem þar er og það heita vatn sem þar er eigi eftir að verða Austur - Barðastrandarsýslu og Dalabyggð til sérstakrar framfarasóknar á næstu árum.
    Ég tel rétt að geta þess hér að auðvitað er hið stóra verkefni sem við þingmenn Vestfjarða fögnum að náðist í höfn með ánægjulegum stuðningi hæstv. samgrh. ( Landbrh.: Var það bara stuðningur?) Var það bara stuðningur? segir hann. Við þökkum samgrh. þetta mál því að við vitum að vinfengi hans við fjmrh. er mikið og teljum að það hafi ráðið úrslitum um það að fá hans afstöðu í málinu, að hans stuðningur við það verk gerir það kleift að því hefur verið flýtt. Og því fagna Vestfirðingar.
    En ég get ekki látið hjá líða að vekja jafnframt á því athygli að þrátt fyrir að menn séu hér með á borunum hugmyndir um 12 ára framkvæmdatímabil í vegamálum, þá er það aðeins á seinasta tímabilinu sem byrjað er á því verki að tengja saman með viðunandi hætti Vestur-Barðastrandarsýslu og Vestur-Ísafjarðarsýslu. En auðvitað eru Vestfirðir klofið svæði um Arnarfjörð meðan vegamál þar á milli eru eins og þau verða þetta tímabil, næstu 12 ár, og segir okkur þess vegna hversu fjórðungurinn á mikið ógert í samgöngumálum. Einnig vil ég undirstrika það hér að ég tel að það sé óásættanlegt nema Alþingi Íslendinga á því tímabili, þessu 12 ára tímabili, manni sig upp í það að taka ákvörðun um að leysa samgöngumálin við Árneshrepp á Ströndum.
    Það er nú einu sinni svo að sumir útverðir eru það merkir að þeir mega ekki falla. Og ég ætla nú, með leyfi forseta, að vitna til sögu Bandaríkjanna um Alamo, þar sem Davy Crockett féll ásamt félögum sínum vegna þess að stjórnin í Washington taldi það ekki þess virði að verja það virki. Þegar sendiboðinn, sem hafði fengið það erindi að tilkynna næstu herstjórnarstöð að þeir mundu verjast og falla til síðasta manns, tilkynnti þeim jafnframt að hann ætlaði að snúa aftur og halda bardaganum áfram hvort sem þeir fengju stuðning eða ekki, þá fór það nú svo að bandarísku hershöfðingjana brast þrek til að sitja aðgerðarlausir hjá og gera ekki neitt heldur héldu á stað með herinn til stuðnings þeim sem börðust við Alamo. En hins vegar voru allir fallnir þegar þeir komu á staðinn. Því segi ég þetta að Árneshreppur er einhver fegursta perla Íslands í náttúrulegu tilliti og þangað eiga óhemjustórir hópar ferðamanna eftir að leggja leið sína. Og íslenskt þjóðfélag hlýtur að þurfa að taka um það ákvörðun miklu fyrr en þær tölur sem hér eru lagðar til grundvallar bjóða upp á, hvort menn vilja verja þá byggð með þeim hætti sem ég vona að Alþingi Íslendinga verði einhuga um og leggi til fjárveitingar til jaðarbyggða eins og gert var hér á tímabili og leysti mörg erfið mál í samgöngumálum Íslendinga.
    Ég veit að hæstv. núv. samgrh. kannast við hafísveginn sem lagður var á Norðurlandi á sínum tíma og

þetta er spurning um það hvort menn taka slíka ákvörðun til að leysa það mál sem hér er á dagskrá. Ég er ekki að biðja um yfirlýsingar á þessari stundu. En ég vænti þess að menn hugsi um það og meti með sér hvort það er ásættanlegt að bíða jafnlangan tíma og þær hugmyndir sem hér liggja fyrir benda til í þessum efnum.
    Herra forseti. Ég ætla ekki að misbjóða þolinmæði forseta með langri ræðu hér. Ég veit að tíminn er stuttur og yfirgef þess vegna stólinn.