Landbúnaðarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) :
Hæstv. forseti. Það eru aðeins fáein orð í lokin á þessari umræðu um vegáætlun til að í fyrsta lagi þakka hv. fjvn. fyrir hennar störf að þessu máli og þeim hv. þm. sem hér hafa tekið þátt í umræðunum.
Ég fagna einnig þeirri samstöðu sem náðist um afgreiðslu málsins frá hv. fjvn. og komið hefur hér fram þó svo að fulltrúar minni hlutans hafi þar fyrirvara sem gerð hefur verið grein fyrir og snýr m.a. að tekjuforsendum vegáætlunarinnar.
Þá er einnig ástæða til að færa þingmannahópum kjördæmanna þakkir sem samkvæmt venju hafa unnið að málinu og ákveðið skiptingu vegafjár til framkvæmda í sínum kjördæmum fyrir þeirra þátt í þessu máli.
Enn fremur liggur hér frammi í þinginu nál. á þskj. 961, um langtímaáætlun í vegagerð, sem ég vil nefna og þakka hv. fjvn. fyrir. Það er að vísu ekki tillaga nefndarinnar að áætlunin verði afgreidd að þessu sinni sökum þess nauma tíma sem vannst til að vinna hana. Engu að síður liggur hér fyrir í þessu nál. grófur rammi um framkvæmdir eins og þær gætu orðið á þessum þremur tímabilum og er engum blöðum um það að fletta að þó að áætlunin sem slík sé ekki afgreidd hér á þinginu þá er engu að síður mikilvægt að slíkt plagg sé til þannig að við það megi styðjast og hafa það til hliðsjónar þegar vegáætlanir á næstu árum verða til endurskoðunar. Ég vil því færa hv. fjvn. þakkir fyrir allt þetta starf sem nefndin hefur skilað á skömmum tíma og unnið vel að venju.
Hér hefur skýrt komið fram í umræðum að hv. þm. gera sér grein fyrir þeirri miklu þörf sem er á fjárveitingum til vegamála og að flestum fer svo þegar þau mál ber á góma að menn fjalla gjarnan meira um þau verkefnin sem verða að bíða og ekki er því miður unnt að ráðast í heldur en kannski hin sem þrátt fyrir allt er þó verið að vinna. Það er þó engu að síður ástæða til að gleðjast yfir því að með afgreiðslu þessarar ályktunar eins og hún nú liggur fyrir í formi brtt. fjvn., og reyndar eins og niðurstöðutala þáltill. á þskj. 716 hljóðaði upp á, verður ráðstafað til framkvæmda í vegamálum 5540 millj. á þessu ári, sem er allmiklu hærri upphæð en við höfum séð undanfarin ár og sömuleiðis verulega hærra hlutfall af landsframleiðslu heldur en farið hefur til vegamála núna mörg undangengin ár. Ég hygg að það sé hægt a.m.k. að gleðja sig við það að okkur miðar þó þarna sannarlega í rétta átt. Árið 1987 fór þetta hlutfall, þ.e. útgjöld til vegamála sem hlutfall af þjóðarframleiðslu, lægst á löngu árabili eða niður í 1,16%, þ.e. borið saman við hinn nýja endurskoðaða grunn þjóðarframleiðslunnar. Þetta hlutfall hækkaði síðan í 1,25% 1988, í 1,35% 1989, 1,46% 1990 og mun með þessum fjárveitingum sem hér eru lagðar til hækka enn, líklega í eitthvað á milli 1,55 og 1,60% af þjóðarframleiðslu. Þannig að þó svo að mönnum þyki fjárhæðirnar hvergi nægjanlega miklar miðað við verkefnin þá er þó engu að síður verið að auka hlutdeild vegamálanna í ráðstöfun þjóðarauðsins með þessum breytingum ár frá ári. Og þær eru aftur að komast upp í það horf sem þær voru þegar þetta var í besta horfinu allt frá árinu 1974 -- 1975 og til og með þessu ári. Og það þarf að fara aftur til áranna 1971 -- 1974 til að finna hærri fjárveitingar á þessu sviði.
Ég vil einnig þakka hv. þm. sem hér hafa látið hlýleg orð falla í garð starfsmanna Vegagerðar ríkisins sem samkvæmt venju hafa unnið mikið starf með þingmönnum í þingmannahópunum og með hv. fjvn. við þetta verkefni.
Hér hafa hv. þm. sem tekið hafa þátt í umræðunni nokkrir nefnt stórverkefni sem því miður er ekki ráðist í eins fljótt eða af eins miklum krafti og þeir hefðu gjarnan viljað. Framkvæmdir svo sem eins og tengingu Norðurlands og Austurlands, brú yfir Gilsfjörð og vegasamgöngur við Siglufjörð eða tengingu Siglufjarðar og utanverðs Skagafjarðar við Eyjafjörð hefur einnig oft borið á góma. Enn fremur nefndi hér hv. 2. þm. Vestfjarða Árneshrepp á Ströndum og nauðsyn þess að tengja þá byggð með betri hætti en nú er við vegakerfi landsmanna.
Það get ég allt saman tekið undir og tel að þetta hljóti að verða verkefni við endurskoðun vegáætlunar á næstu árum, hvernig unnt er að þoka þessum brýnu málum inn í framkvæmdaröðina. Ekki síst
á ég þar við það sem hv. 6. þm. Norðurl. e. nefndi þar sem er hringvegurinn eða tenging Norðurlands og Austurlands. Það blasir við að með framkvæmdum eins og þær munu leggjast á allra næstu árum, þá mun að mestu leyti ljúka uppbyggingu hringvegarins og lagningu bundins slitlags á hann að slepptum þeim endanum sem fjærst liggur höfuðborgarsvæðinu, þ.e. öræfunum milli Norðurlands og Austurlands. Þar verður áfram miðað við þessar áætlanir eyða, því miður, um allmörg ár. Mér segir svo hugur um að innan fárra ára muni vaxandi þrýstings gæta á það að ljúka þessari hringtengingu. Ég hygg því að hv. þm. sem þetta bera mjög fyrir brjósti þurfi nú ekki að örvænta um það að þetta verkefni gleymist. Ég hygg að allar aðstæður í vegakerfinu muni sjálfkrafa kalla á að þetta komi inn í umræðuna með vaxandi þunga á næstu árum.
En aðalatriðið er þó það og þar veit ég að vilji hv. þm. er ótvíræður að standa vörð um áframhaldandi uppbyggingu á þessu sviði og umtalsverðar framkvæmdir því að án þess að það sé gert mun seint takast það verkefni sem Vegagerð ríkisins hefur metið að miðað við þessar fjárveitingar taki um 25 ár að koma öllu vegakerfi landsins í fullnægjandi eða gott horf.
Hæstv. forseti. Ég vil við lok þessarar umræðu þakka svo enn á ný öllum hv. alþingismönnum og starfsmönnum, embættismönnum, sem að þessum verkefnum hafa unnið. Er það orðið allmikið starf á þessum vetri þar sem fram hefur farið bæði reglubundin endurskoðun vegáætlunar og vinnsla við langtímaáætlun og talsverð vinna hér í þinginu.