Lækkun húshitunarkostnaðar
Mánudaginn 18. mars 1991


     Danfríður Skarphéðinsdóttir :
    Virðulegur forseti. Ég vil aðeins leggja örfá orð í belg í þessari umræðu. Eins og síðasti ræðumaður, hv. 3. þm. Vesturl., vil ég þakka samstarfið í þeirri nefnd sem vann að skýrslu þeirri sem lögð er fram sem fylgiskjal með þáltill. Þá vil ég einnig þakka starfsmanni nefndarinnar, Jóni Ingimarssyni, sem var okkur mjög innan handar við upplýsingaöflun svo og sérfræðingar frá Rafmagnsveitum ríkisins og Landsvirkjun.
    Hér er um að ræða gífurlegt hagsmunamál til þess að auka jöfnuð fólks í landinu. Eins og kom fram í máli hæstv. iðnrh. hér fyrr í dag mun u.þ.b. fjórðungur þjóðarinnar njóta lækkunar í húshitunarkostnaði nái till. sem þessi fram að ganga.
    Eins og fram kemur í skýrslunni þá höfðu ýmsir nefndarmenn fyrirvara um ýmis atriði sem tengjast tillögunum sem fram koma. Ég vil minna á að það kemur fram að meiri hluti nefndarinnar telur að Landsvirkjun ætti að taka meiri þátt í jöfnun orkuverðs heldur en till. gerir ráð fyrir. Kvennalistakonur eru þessarar skoðunar og það vildi ég einnig láta koma fram hér. Ég taldi þó ekki ástæðu til þess að gera sérstakan fyrirvara við undirskrift mína undir skýrsluna þegar við skiluðum henni af okkur vegna þess að stjórnarsáttmálar allra ríkisstjórna á undanförnum árum hafa haft inni fyrirheit um að jafna orkuverð í landinu. Þess vegna lít ég svo á að komandi ríkisstjórn og ríkisstjórnir muni vinna að þessum málum. Það skiptir öllu máli að þessi till. komi til framkvæmda strax og að þeim þrepum sem að er stefnt verði náð á þeim tíma sem till. gerir ráð fyrir, þ.e. á tveimur árum.
    Ég vildi aðeins láta þetta koma hér fram, virðulegur forseti. Sömuleiðis vil ég láta koma fram að ég tel fráleitt að tengja þetta mál við byggingu nýs álvers og virkjana vegna þess, vegna þess einmitt að þetta hefur verið á stefnuskrá allra ríkisstjórna á undanförnum árum, svo og er að finna ákvæði um jöfnun á húshitunarkostnaði í stefnuskrám allra stjórnmálaflokkanna. Ég tel því fráleitt að tengja það við virkjanir vegna álvers og legg áherslu á að þessu sé haldið algerlega aðskildu. Í mínum huga skiptir öllu máli að till. komist í framkvæmd og það sem allra fyrst þó hún sé seint fram komin á þessu kjörtímabili. Vegna fyrri yfirlýsinga þingflokka sem nú eiga sæti á Alþingi hlýtur þetta að verða eitt af forgangsverkefnum nýrrar ríkisstjórnar sem tekur væntanlega við að afloknum kosningum.