Kristinn Pétursson :
Hæstv. forseti. Ég vil taka undir það með síðasta ræðumanni að þetta er svolítið skondin tillaga. Það eru engar hugmyndir í þessari þáltill. um hvernig skuli fara að því að lækka raforku til húshitunar. Það er voðalega létt í vasa að veifa svona plaggi fyrir kosningar um lækkun húshitunarkostnaðar með ekki einn einasta staf um það hvernig eigi að fara að því. Það stendur einfaldlega að Alþingi skuli ná auknum jöfnuði í þremur áföngum á næstu tveimur árum og í öðru lagi að það skuli gert með sérstökum aðgerðum og viðskrh. ákveði á síðari helmingi þessa árs í þriðja lagi að greiddar verði 30 millj. af því fé sem á fjárlögum er veitt til annarra hluta, sem er auðvitað alls ekki hægt. Iðnrh. á að láta fara fram úttekt á fjárhagsstöðu hitaveitna. Í fimmta lagi á fjmrh. að beita sér fyrir sérstökum ráðstöfunum til að aðstoða hitaveitur, ekki sagt hvernig. Og svo að síðustu á Landsvirkjun hugsanlega að greiða ríkinu fyrir virkjunarréttindi í framtíðinni og því verði varið til verðjöfnunar. Mér finnst svona tillaga vera hæstv. iðnrh. til háborinnar skammar.
En ég vil í sambandi við húshitunarkostnað minna á það að Alþingi sjálft ákvað að allt efni í háspennulínur yfir 135 kv., þ.e. einungis efni í staurastæði og stærstu línur, þ.e. 135 þús. volt, skyldi vera undanþegið tollum. Meðan söluskatturinn var var það undanþegið tollum, vörugjaldi og söluskatti en allt efni í línur undir 135 kv., sem eru allar dreifiveitur landsins, var allt saman með tollum, vörugjaldi og söluskatti. Og þannig kýldi ríkissjóður upp verðið á raforkunni í landinu með því að leggja gífurlega háar fjárhæðir í skatta á efni til allra dreifiveitna í landinu svo að hv. alþm. bjuggu þennan háa húshitunarkostnað til sjálfir með því að ofskatta allt efni til dreifiveitna en sleppa Landsvirkjun og hennar línum. Þetta hefur mér alltaf fundist stórmerkilegur hugsunarháttur ef það er þá einhver hugsun á bak við þetta, sem ég dreg nú í efa reyndar. Þetta er svona eins og fleiri tilviljanir sem maður verður vitni að héðan frá Alþingi. En það má ljóst vera að tollar, vörugjald, söluskattur og jöfnunargjald sem var á öllu efni til rafveitna og dreifiveitna í landinu undir 135 kv., tvöfaldaði verð á öllu efni til þessara virkjana og til þessara dreifistöðva, háspennulína og spennivirkja, tvöfaldaði verðið. Spurningin er því hvort hæstv. iðnrh. hefði ekki heldur átt að láta reikna aftur á bak hversu mikið væri búið að taka í tollum, vörugjaldi og söluskatti af þessum dreifiveitum og hugsanlega hefði hann getað endurgreitt einhver prósent af því. Það má segja að þar væri um málefnalega aðferð að ræða.
Í öðru lagi vil ég nefna að til er afgangsorka sem ekki er seld í dag og það er á næturnar. En svo merkilega hefur verið staðið að málum hjá yfirvöldum orkumála, þar á meðal hjá núv. hæstv. iðnrh., að næturhitun er ekki seld. Það er dýrara að kaupa húshitun með næturhitun en að kaupa olíu og hefur verið alveg fram á þennan dag. Einstöku sinnum hefur það verið ódýrara. Þetta tel ég vera mjög merkilegt
mál, að orka sem rennur fram af virkjunum á næturnar þegar lítil notkun er á ljósarafmagni skuli ekki vera seld eins og útsölurafmagn. Væri t.d. hægt að selja hana á 25% af olíuverði, svo að eitthvað sé nefnt, en aðrar viðmiðanir kæmu að sjálfsögðu til greina. Þeir sem búa á þessum svokölluðu köldu svæðum, sveitarfélög þar og einstaklingar, gætu þá nýtt sér þetta og keypt næturorku og þannig mætti leysa þau vandamál sem eru í sambandi við allt of háan orkukostnað á þessum köldu svæðum. Þetta vildi ég nefna sem tvo möguleika til þess að koma þeim að í umræðunni því að ég er að gagnrýna að hér séu engar tillögur. Hér eru þó alla vega tvær hugmyndir. En það er nokkuð seint hjá hæstv. iðnrh. að ætla að gera eitthvað í þessu núna á elleftu stundu á hv. Alþingi.
Ég vil svo lýsa yfir því að að sjálfsögðu styð ég það að lækka orkuverð þar sem það er allt of dýrt á þessum svokölluðu köldu svæðum, en ég tel að þessi tillaga eins og hún er uppsett sé ekki með nein slík markmið í huga. Hún er bara svona gersamlega út í loftið, þar sem á að lækka það með sérstökum aðgerðum ,,af því bara`` á síðari helmingi þessa árs er gert ráð fyrir breytingu á fjárlögum án þess að það komi fram í fjárlögum.