Lækkun húshitunarkostnaðar
Mánudaginn 18. mars 1991


     Stefán Valgeirsson :
    Virðulegi forseti. Ég hefði kosið að hæstv. iðnrh. væri hér. Í september 1988 var mynduð ríkisstjórn og þá lögðu mínir félagar mikla áherslu á að reynt væri að jafna aðstöðumuninn í þjóðfélaginu. Eitt af því var það að jafna orkukostnaðinn. En við sjáum það á þessu plaggi og raunar sá maður það löngu fyrr að áhugi hæstv. ráðherra fyrir þessu máli var ákaflega lítill, það er ekki fyrr en 1. okt. á sl. ári sem hann virðist muna eftir þessu ákvæði og fer að skipa nefnd. Og síðan liggur hér fyrir tillaga og greinargerð sem er að mörgu leyti ágæt, enda margir góðir menn og færir sem hafa lagt þar hönd á.
En ekkert er gert af því sem átti að gera á þessu kjörtímabili, ekki neitt. Þetta er þáltill. Þetta er viljayfirlýsing. Ef ég man rétt þá hafa svona tillögur um þetta mál komið áður og verið samþykktar. Þetta er sem sagt ekki neitt. Ég hefði viljað fá hæstv. iðnrh. hér í salinn en hann er sjálfsagt að sinna einhverju öðru. En út yfir allan þjófabálk tekur. ( Forseti: Hæstv. iðnrh. er í húsinu og forseti mun því gera honum viðvart um að það sé óskað eftir nærveru hans.) Ætli þessar átta mínútur verði ekki liðnar þegar hann kemur? --- Það sem hér liggur fyrir er aðeins viljayfirlýsing. Ég sagði áðan að slík tillaga hefur verið samþykkt áður án árangurs og ekki staðið að neinu leyti við það loforð og það ákvæði í stjórnarsáttmálanum sem við undirskrifuðum í september 1988. Það er alveg furðulegt að ráðherra sem kennir sig við jafnaðarflokk framkvæmi ekki það sem hann skrifar undir og heldur við því óréttlæti sem er í þessu máli.
    Það er vandalaust að lengja lán Landsvirkjunar. Það á að borga þau öll upp og Blöndu líka á 14 árum. Þar með eignast Reykjavíkurborg og Akureyri helminginn af öllu sem er búið að virkja og ríkið annað eins á móti. Ef menn meina eitthvað með því sem þeir segja, þá er það allt annað en þetta. Hæstv. samgrh. hefur sýnt það að hann hefur staðið að nokkru leyti við það sem hann gekkst undir, að minnka muninn á símakostnaðinum, en hér er ekki neitt. Út yfir allt tekur þó skilyrði Framsfl. að þetta verði samþykkt ef þeir eigi að standa að því að samþykkja hina dæmalausu tillögu iðnrh. í sambandi við álbræðsluna á Keilisnesi. Ég held að það hafi sjaldan gerst hér á Alþingi að annar eins kaupmáli hafi verið gerður og hér er um að ræða ef rétt reynist. Ég get ekki rengt það að þessi fyrirvari hafi verið gerður hjá Framsfl. í sambandi við álverksmiðjuna.
    Ég verð að lýsa vanþóknun minni á þessari tillögu, á því að það er ekki hafist handa fyrr en allt er komið í óefni og ekki staðið við neitt í jöfnuði af því sem lofað var. Þetta er leiðinleg niðurstaða og leiðinleg fyrir þá sem kenna sig við jafnaðarflokk Íslands.