Lækkun húshitunarkostnaðar
Mánudaginn 18. mars 1991


     Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson) :
    Virðulegi forseti. Hv. 4. þm. Austurl., síðasti ræðumaður, tók undir með hv. 1. þm. Reykv. í því að reyna að halda því fram að það lægi lítið eftir þessa ríkisstjórn í orkuverðjöfnunarmálum. Það sætir satt að segja furðu. Ég leyfi mér að vísa til framsöguræðu minnar og skýrslunnar hinnar merkilegu sem hér liggur fyrir þinginu um þær mikilvægu aðgerðir sem gripið hefur verið til á starfstíma þessarar ríkisstjórnar í þessu efni og reyndar fyrri ríkisstjórna eins og hv. 2. þm. Norðurl. v. vék hér réttilega og drengilega að. Verð ég nú að segja að ólíkt hafast þeir að í ræðustól, hv. 4. þm. Austurl. og hv. 2. þm. Norðurl. v., þegar um það er að tefla að sýna réttsýni í málflutningi.
    Ég vildi svo víkja að því að mér þótti það sérkennilegur málflutningur hjá hv. 1. þm. Reykv. þegar hann vék þannig að þeim lið í þessari tillögu að hann væri óvenjulegur og það virtust eiginlega vera fullnægjandi rök fyrir því að hann kæmi ekki til greina sem tillögugrein. Það þykir mér nú helst til mikil íhaldssemi. Þetta var einmitt það nýmæli að þingið lýsti skoðun á því hvað þingkjörnir stjórnarmenn ættu að hafa að leiðarljósi í sínum störfum. Ég teldi það reyndar merkilegt nýmæli ef þingið fengist til þess að gefa slík fyrirmæli þótt ég viðurkenni að sjálfsögðu það sem kom fram hjá hv. 1. þm. Reykv. að þingflokkar eiga hlut að því kjöri.
    Hv. 1. þm. Reykv. og reyndar hv. 2. þm. Norðurl. v., hv. 4. þm. Austurl. og e.t.v. fleiri töldu það galla á þessari tillögu að hún væru aðeins stefnuyfirlýsing.
Í fyrsta lagi er það ekki rétt vegna þess að hún er miklu meira en stefnuyfirlýsing. Hún er leiðbeinandi fyrir framkvæmdarvaldið um það hvernig vinna skuli að þessu þjóðþrifamáli. Hins vegar er það líka að mínu áliti næsta skammsýnn og ég vil segja þröngsýnn skilningur hjá hv. 1. þm. Reykv. þegar hann segir að það rýri gildi tillögu að hún sé stefnumarkandi. Það tel ég þvert á móti þáltill. til gildis og tel það vera aðalsmerki þeirra. Það er hlutverk þeirra hér í þinginu fyrst og fremst.
    Ég mun ekki, virðulegi forseti, taka hér fyrir mörg hinna einstöku atriða sem hér hefur verið vikið að, mun þó aðeins víkja að því sem kom fram í máli hv. 1. þm. Vesturl. og hv. 4. þm. Austurl. um það hversu mikils virði í peningum 6. liður tillögunnar væri þar sem að því er vikið að verja skyldi hluta af því fé sem ríkið kynni að greiða Landsvirkjun fyrir virkjunarréttindi til þess að jafna orkuverðið í landinu. Ég mun ekki setja fjárhagslegt mat á þetta. Þetta er eins og annað í þessu máli að nokkru leyti stefnuyfirlýsing. En hún er líka mjög merkileg, ég tek það fram. Hún er afrakstur nefndarstarfsins. Hún er tilraun til þess að sýna þeim landshlutum þar sem virkjað er nokkra tillitssemi í ráðstöfun fjárins. Þetta hélt ég að hv. 4. þm. Austurl. ætti að hafa forsendur til að skilja öðrum mönnum betur, en þar hef ég greinilega ofmetið hann.
    Ég vil endurtaka það að ég tel að það væri réttlætismál að samþykkja slíka leiðbeiningu hjá þinginu til framkvæmdarvaldsins í réttlætismáli eins og því sem við ræðum hér og nú og verð að lýsa furðu minni á því að menn skuli hér hafa uppi svigurmæli um það að hér sé ráðherrann að álykta út og suður og ætli að gera hluti sem hann hafi ekki undirbyggt vel í samráði við þingið. Ég leyfi mér að benda á það að þessi þáltill. er í öllum greinum afrakstur af nefnd þar sem allir þingflokkar hafa átt fulltrúa. Það er að sönnu rétt að þingflokkur sjálfstæðismanna eða fulltrúar hans gerðu fyrirvara við skýrsluna en þeir skrifa undir hana og ég lít svo á að þeir séu meðhöfundar hennar.