Lækkun húshitunarkostnaðar
Mánudaginn 18. mars 1991


     Eiður Guðnason :
    Virðulegi forseti. Í fullri hreinskilni verð ég að játa að ræðu síðasta ræðumanns, hv. þm. Ásgeirs Hannesar Eiríkssonar, skildi ég alls ekki. Hér er ekki verið að taka neitt af Reykvíkingum. Reykvíkingar búa við eitt lægsta orkuverð á landinu og sennilega búa þeir við eitt allra lægsta orkuverð í Vestur - Evrópu og jafnvel þótt víðar væri leitað. Reykvíkingar eru svo heppnir að vera á svæði þar sem heitt vatn er í iðrum jarðar, orkulind, sem að réttu ætti að vera sameign allrar þjóðarinnar, sú orka sem er að finna í iðrum jarðar. Þetta hefur verið nýtt vel og skynsamlega hér í Reykjavík og var byrjað á því snemma og Reykvíkingar hafa notið þess. En ég játa aftur og enn að ég skil ekki hvað hv. síðasti ræðumaður var í rauninni að fara með sinni ræðu hér.
    Ég ætla, virðulegi forseti, aðeins að víkja að nokkrum atriðum sem fram hafa komið hér í ræðum annarra hv. þm.
    Það hefur ekki þurft að hlusta grannt til að heyra að sumum þeirra sem hér hafa talað þykir þessi tillaga ekki ganga mjög langt eða vera nægilega markviss. Ég vil þó segja það að í þessari tillögu eru sett skýrari markmið og ákveðnar bent á leiðir en í nokkurri annarri tillögu af þessu tagi sem hér hefur verið lögð fram á hinu háa Alþingi. Um það þarf ekki að deila. En þá vil ég spyrja bæði hv. 1. þm. Vesturl. og hv. 3. þm. Vesturl., sem eru nú að ljúka sínum þingferli þar sem þeir verða ekki í framboði í næstu kosningum. ( PJ: Er ræðumaður hættur við að fara í framboð?) Ég var að tala um 1. og 2. Ég bið velvirðingar og þakka hv. 2. þm. Norðurl. v. Pálma Jónssyni fyrir þessa ábendingu. (Gripið fram í.) Það er óþarfi, hv. þm. Friðrik Sophusson. En ég vil spyrja þá hv. þm. sem eru nú að ljúka sínum þingferli: Ef þetta er svona einfalt og ef þetta er svona auðvelt, hvers vegna hefur þá ekki flokkur hv. þm. Friðjóns Þórðarsonar, sem haft hefur um langa hríð hreinan meiri hluta í stjórn Landsvirkjunar, ekki beitt sér fyrir því að þessi orkukostnaður væri jafnaður? Og ég spyr hv. 1. þm. Vesturl. Alexander Stefánsson. Hans flokkur hefur átt aðild að ríkisstjórn í í 20 ár. Hvers vegna hefur Framsfl. ekki beitt sér fyrir jöfnun orkuverðs? Það er vegna þess að það hefur verið flókið mál og ekki auðleyst. Það liggur alveg ljóst fyrir. Og ég spyr hv. þm. Friðjón Þórðarson, sem kom hér upp í þennan ræðustól og sagði að raforkuverð í Búðardal og Borgarnesi væri þrisvar og tvisvar sinnum hærra en það er hér í Reykjavík: Hefur hv. þm. lesið þá skýrslu sem hér er verið að ræða um? Ég hygg að hann hafi ekki lesið hana. Ég bið hann að lesa á bls. 19. Þar stendur:
    ,,Mismunur á raforkuverði milli Rafmagnsveitna ríkisins og Rafmagnsveitu Reykjavíkur var mjög mikill fyrir 10 árum síðan, eða 65,5%, og hafði reyndar komist í um 88% nokkru áður. Mismunurinn hefur minnkað síðan, sérstaklega á síðustu árum og er nú aðeins 13,6% miðað við gefnar forsendur. Ef tekið er tillit til þess að afltoppur er ákvarðaður með mismunandi hætti verður munurinn minni, eða um 8,6%.`` Ég

spyr Friðjón Þórðarson, hv. 2. þm. Vesturl., aftur og enn: Hvar í þessari skýrslu finnur hann þess stoð að þetta sé með þeim hætti sem hann sagði hér áðan, að raforkuverð í Búðardal væri þrisvar sinnum hærra en í Reykjavík? Ég bið hann aftur og enn að sýna það og sanna. Annars hefur hann farið með rangt mál ef hann ekki getur sannað það.
    Og ég vil líka spyrja þessa hv. þm.: Eru þeir þeirrar skoðunar að Alþingi eigi að jafna þetta með löggjöf? Getur Alþingi breytt töxtum Landsvirkjunar með löggjöf? Nú spyr ég aftur þessa hv. þm., Alexander Stefánsson og Friðjón Þórðarson: Er það sú leið sem þeir eru að tala um? Sú leið er einfaldlega ekki fær, hv. þm., vegna þess að ríkið er ekki meirihlutaeigandi Landsvirkjunar. Hér er farin sú leið að beina þeim tilmælum til þeirra manna sem Alþingi kýs í stjórn Landsvirkjunar að þeir beiti sér fyrir þessu.
    Ég minni líka á það að við úr þessari orkuverðsjöfnunarnefnd komum til fjvn. fyrir jól til að kynna henni okkar mál. Þar virtist ekki fé liggja á lausu til þessara hluta. Ég veit ekki til þess að í fjvn. hafi komið fram tillaga um auknar fjárveitingar til orkujöfnunar. Það sem verið er að tala um hér er að færa mjög lítinn hluta af niðurgreiðslufé í þessum áfanga, 35 millj. kr., sem hefur hverfandi áhrif á framfærsluvísitöluna, nánast engin áhrif. Ég bendi á að það eru um 5500 millj. kr. ætlaðar til þess að greiða niður vöruverð landbúnaðarafurða á ári. Er ekki tilvalið að nota einhvern lítinn hluta þess til að jafna aðstöðumun fólks með öðrum hætti og lækka orkukostnaðinn? Ef 35 millj. væru teknar af þessum fimm þúsund og eitthvað milljónum, þá eru það 0,7% af þeirri upphæð. Eru hv. þm. Egill Jónsson, Alexander Stefánsson og Friðjón Þórðarson að hafa á móti þessu? Ég held að þessir menn verði að svara.
    Í þessari tillögu hefði vissulega verið ákjósanlegt að geta sagt: Við skulum taka 300 millj., 260 millj., úr ríkissjóði. En hvar ætla menn þá að skera niður? Vilja menn leggja á nýja skatta? Ég er reiðubúinn að ræða það að leggja á nýja skatta fyrir mitt leyti til þess að jafna orkuverð. Eru hv. þm. tilbúnir til þess? Það þýðir ekki að koma hér og segja: Þetta er gagnslaust og þetta er einskis vert þegar menn hafa annars vegar verið í landsstjórninni í 20 ár. Að vísu hefur ýmislegt verið gert en það hefur aldrei verið gengið eins langt og hér er gert ráð fyrir að ganga. Ef menn hafa hreinan meiri hluta í stjórn Landsvirkjunar og geta ráðið þeim töxtum sem hér er um að ræða, gera ekki nokkurn skapaðan hlut þar, koma síðan í ræðustól á hinu háa Alþingi og segja: Hér er ekki nóg að gert. Þessar tillögur eru hvorki fugl né fiskur. Ég vísa þessari gagnrýni þessara hv. þm. á bug og tel að ef það skref væri stigið sem hér er gert ráð fyrir, þá yrði það eitt það merkasta sem gert hefði verið til þess að jafna orkukostnað í landinu. En mér heyrist að þessir tveir hv. þm., 1. og 2. þm. Vesturl., sem nú eru að láta af þingmennsku, hafi einfaldlega ekki sérstaklega mikinn áhuga á því að það sem hér um ræðir í þessari tillögu nái fram að ganga og skal ég nú ljúka máli mínu, virðulegi forseti.